Forstjóri Landsvirkjunar gerir ráð fyrir að arðgreiðslur tvöfaldist

Lands­virkj­un, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, hagn­að­ist um 14 millj­arða króna á síð­asta ári. For­stjóri Lands­virkj­unar gerir ráð fyrir að arð­greiðslur fyr­ir­tæk­is­ins muni tvö­fald­ast fyrir árið 2018 og verði á bil­inu 3 til 4 millj­arðar.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar. Mynd: Bára Huld Beck

Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, býst við því að arð­greiðslur fyr­ir­tæk­is­ins muni tvö­fald­ast hið minnsta fyrir árið 2018 og verði á bil­inu 3 til 4 millj­arðar. Lands­virkj­un, sem er að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins, hagn­að­ist um 14 millj­arða króna á síð­asta ári. Rekstr­ar­tekjur félags­ins hækk­uðu til muna og fyr­ir­tækið hefur staðið í skulda­nið­ur­greiðslum á und­an­förnum árum. Nú þykir því hafa skap­ast skil­yrði til að auka arð­greiðslur í skrefum til eig­anda síns, íslenska rík­is­ins. Fyrir liggur frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um nýt­ingu arð­greiðslna Lands­virkj­unar í svo­kall­aðan Þjóð­ar­sjóð.

Skapast skilyrði til að auka arðgreiðslur

[links]Lands­virkj­un, hagn­að­ist um 121 milljón dala, eða 14 millj­arða króna, í fyrra. Rekstr­ar­tekjur félags­ins hækk­uðu um 50,8 millj­ónir dala á milli ára og námu 533,9 millj­ónum dala, eða 61,9 millj­örðum króna. EBITDA hagn­aður, rekstr­­ar­hagn­aður fyrir fjár­­­magns­­kostn­að, skatta og afskrift­ir, var 45,2 millj­arðar króna og EBITDA hlut­fall fyr­ir­tæk­is­ins var 73 pró­sent af tekj­um. Þetta kemur fram i árs­reikn­ing Lands­virkj­unar

Í árs­reikn­ingum er haft eftir Herði Arn­ars­syni, for­stjóra Lands­virkj­un­ar, að árið 2018 hafi verið gott ár í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. „Tekjur hækk­uðu um 11% milli ára og hafa aldrei verið meiri, en þar mun­aði mestu um aukið selt magn og hækk­andi álverð.“

Hörður segir jafn­framt að eftir fram­kvæmdir síð­ustu ára, sem hafi að mestu verið fjár­magn­aðar með sjóðs­streymi, haldi nettó skuldir nú áfram að lækka. „Hlut­fall nettó skulda á móti EBIT­DA-­rekstr­ar­hagn­aði er nú komið niður í 4,8 og hefur skuld­setn­ing á þennan mæli­kvarða aldrei verið minni í sögu fyr­ir­tæk­is­ins. Nú hafa skap­ast skil­yrði til að auka arð­greiðslur Lands­virkj­unar í skrefum til eig­anda síns, en síð­ast­lið­inn ára­tug hefur fyr­ir­tækið fjár­fest fyrir um einn millj­arð doll­ara í nýjum orku­mann­virkjum og á sama tíma greitt niður skuldir fyrir einn millj­arð doll­ara.“

Í fyrra nam hagn­aður Lands­virkj­unar 108 millj­ónum Banda­ríkja­dala, sem nemur um 13 millj­örðum króna. Þá nam arð­greiðsla Lands­virkj­unar 1,5 millj­örðum í fyrra en for­stjóri Lands­virkj­unar telur að talan muni tvö­fald­ast hið minnsta fyrir árið 2018. „Það verður ákveðið á aðal­fundi í apríl en ég geri ráð fyrir að arð­greiðslur muni tvö­fald­ast fyrir árið 2018 og fara í 3 til 4 millj­arða. Síðan mun það jafn­vel tvö­fald­ast árið eftir. Ég myndi segja að við munum kom­ast í 10-20 millj­arða á tveimur árum,“ sagði Hörður í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Frumvarp um Þjóðarjóð

Frumvarp Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um þjóð­ar­sjóð, sem ávaxtar ávinn­ing íslenska rík­is­ins af orku­auð­lindum, er komið fram og í með­ferð á þingi. Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar er kveðið á um stofnun þjóð­ar­sjóðs en málið er engu síður umdeild og ekki ein­hugur um það hjá stjórn­ar­flokk­unum. Í frum­varp­inu er gert ráð fyrir því að sjóð­ur­inn verði fjár­magn­aður með fjár­magni sem kemur frá orku­auð­lindum á for­ræði rík­inu.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um Þjóð­ar­sjóð­inn í síð­ustu viku en þar segir að þegar horft er til þess að arð­greiðslur Lands­virkj­unar munu stig­magn­ast á næstu árum, þá geti heild­ar­eignir Þjóð­ar­sjóðs­ins farið í allt að tæp­lega 400 millj­arða króna miðað við 3,5 pró­sent ávöxtun á ári, á til­tölu­lega skömmum tíma, 10 til 20 árum.

Það gætu því veru­legar fjár­hæðir safn­ast í sjóð­inn en í sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar segir: „Þjóð­ar­sjóður verður stofn­aður utan um arð af auð­lindum lands­ins og byrjað á orku­auð­lind­inni. Hlutverk sjóðs­ins verður að byggja upp við­nám til að mæta fjár­hags­legum áföllum. Afmark­aður hluti ráð­stöf­un­ar­fjár sjóðs­ins verður not­aður til að efla nýsköpun og styðja við vöxt og þroska sprota­fyr­ir­tækja. Með því verður fræjum sáð til efl­ingar nýrra vel laun­aðra starfa í fram­tíð­inni. Einnig verður hluti nýttur til átaks í upp­bygg­ingu hjúkr­un­ar­rýma fyrir elstu kyn­slóð­ina.“

Frumvarp Bjarna sýnir hins vegar að horft er fyrst og fremst til þess að sjóð­ur­inn verði nýttur til mót­væg­is­að­gerða í áföllum í efna­hags­málum þjóð­ar­innar. Þannig er í frum­varp­inu gengið út frá lang­tíma­sjón­ar­miðum um upp­bygg­ingu á mjög burð­ugum sjóði sem geti tek­ist á við afleið­ingar af stórum, ófyr­ir­séðum og fátíðum áföllum á opin­ber fjár­mál, fremur en að sjóð­ur­inn sjálfur fjár­magni bein­línis bætur vegna t.d. tjóns til­tek­inna atvinnu­greina eða hópa.

Eins og áður sagði er ekki ein­hugur meðal stjórn­ar­flokk­anna um Þjóð­ar­sjóð­inn en nýlegar yfir­lýs­ingar Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sam­göngu­ráð­herra og for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, sýna glögg­lega að það sé ekki ein­hugur meðal rík­is­stjórn­ar­flokk­anna um það hvernig eigi að ráð­stafa þeim fjár­munum sem koma munu frá Lands­virkjun á næstu árum. Sigurður Ingi nefndi að hægt væri að nýta arð­greiðslur frá Lands­virkjun til að fjár­magna tug millj­arða vega­fram­kvæmdir, fremur að horfa til veggjalda. Þetta sam­ræm­ist ekki áformum um að safna arð­greiðslum Lands­virkj­unar í Þjóð­ar­sjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár