Landsvirkjun hagnaðist um 14 milljarða króna

Skapast skil­yrði til að auka arð­greiðslur Lands­virkj­unar í skrefum til eig­anda sín, íslenska rík­is­ins, eftir miklar fram­kvæmdir og skulda­nið­ur­greiðslur á und­an­förnum árum.

Annar áfangi aflstöðvarinnar á Þeistareykjum hóf starfsemi í fyrra.
Annar áfangi afl­stöðv­ar­innar á Þeista­reykjum hóf starf­semi í fyrra. Mynd: Landsvirkjun

Lands­virkjun, sem er að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins, hagn­að­ist um 14 millj­arða króna, eða 121 milljón dala, á síð­asta ári. Rekstr­ar­tekjur félags­ins hækk­uðu um 50,8 millj­ónir dala á milli ára og námu 533,9 millj­ónum dala, eða 61,9 millj­örðum króna. EBITDA hagn­aður (rekstr­ar­hagn­aður fyrir fjár­magns­kostn­að, skatta og afskrift­ir) var 45,2 millj­arðar króna og EBITDA hlut­fall fyr­ir­tæk­is­ins var 73 pró­sent af tekjum.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Lands­virkj­unar sem birtur var í dag.

Þar er haft eftir Herði Arn­ars­syni, for­stjóra Lands­virkj­unar, að árið 2018 hafi verið gott ár í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. „Tekjur hækk­uðu um 11% milli ára og hafa aldrei verið meiri, en þar mun­aði mestu um aukið selt magn og hækk­andi álverð.

Átjánda afl­stöð Lands­virkj­unar, Búr­fells­stöð II, var tekin í gagnið á árinu, auk þess sem annar áfangi þeirrar sautj­ándu, á Þeista­reykjum, hóf rekstur. Raf­orku­salan jókst um 430 gíga­vatt­stundir frá fyrra ári og var um 14,8 tera­vatt­stundir.

Áfram bætt­ist við hóp við­skipta­vina stórnot­enda hjá fyr­ir­tæk­inu á árinu. Gerðir voru raf­magns­samn­ingar við tvo aðila í gagna­vers­iðn­aði; Advania Data Centers og Etix Everywhere Iceland. Hópur við­skipta­vina er nú fjöl­breytt­ari en nokkru sinni fyrr.“

Skuldir lækka

Lands­virkjun hefur lagt mikla áherslu á að lækka skuldir síð­ustu ár. Nettó skuldir fyr­ir­tæk­is­ins um síð­ustu ára­mót voru um 1.884,6 millj­ónir dala, 218,6 millj­arðar króna, og lækk­uðu um 158 millj­ónir dala í fyrra. Handbært fé frá rekstri 295,8 millj­ónum dala, 34,3 millj­örðum króna, sem er hækkun upp á 6,4 pró­sent frá fyrra ár

Hörður segir að eftir fram­kvæmdir síð­ustu ára, sem hafi að mestu verið fjár­magn­aðar með sjóðs­streymi, haldi nettó skuldir nú áfram að lækka. „Hlutfall nettó skulda á móti EBITDA-rekstr­ar­hagn­aði er nú komið niður í 4,8 og hefur skuld­setn­ing á þennan mæli­kvarða aldrei verið minni í sögu fyr­ir­tæk­is­ins. Nú hafa skap­ast skil­yrði til að auka arð­greiðslur Lands­virkj­unar í skrefum til eig­anda síns, en síð­ast­lið­inn ára­tug hefur fyr­ir­tækið fjár­fest fyrir um einn millj­arð doll­ara í nýjum orku­mann­virkjum og á sama tíma greitt niður skuldir fyrir einn millj­arð doll­ara.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár