Bjarni fer fram á tafarlausa endurskoðun launa bankastjóra

Launa­á­kvarð­anir bank­anna hafa nú þegar haft veru­leg nei­kvæð áhrif á orð­spor þeirra og þannig valdið þeim skaða, auk þess sem þær sendu óásætt­an­leg skila­boð inn í þær kjara­við­ræður sem nú standa yfir. Þetta er mat fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur sent bréf til Banka­sýslu rík­is­ins þar sem hann óskar þess að hún komi því með afdrátt­ar­lausum hætti á fram­færi við stjórnir rík­is­bank­anna Íslands­banka og Lands­bank­ans að „ráðu­neytið telji að bregð­ast eigi við þeirri stöðu sem upp er komin með taf­ar­lausri end­ur­skoðun launa­á­kvarð­ana og und­ir­bún­ingi að breyt­ingum á starfs­kjara­stefnum, sem lagðar verði fram á kom­andi aðal­fundum bank­anna.“

[links]Í bréfi Bjarna, sem var sent í dag, segir að það sé enn­fremur mat ráðu­neyt­is­ins að bank­arnir hafi með launa­á­kvörð­unum fyrir æðstu stjórn­endur ekki virt þau til­mæli sem beint var til þeirra í upp­hafi árs 2017 og sem ítrekuð voru gagn­vart nýkjörnum stjórnum síðar það sama ár, þar sem lögð var áhersla á hóf­semi og var­færni um launa­á­kvarð­anir.

Bjarni segir að af þeim svörum sem borist hafi frá banka­ráði Lands­bank­ans og stjórn Íslands­banka til Banka­sýsl­unnar í síð­ustu viku megi ráða að túlkun þeirra á við­miðum vegna launa­þró­unar sé „þröng og ein­hliða og að ákvarð­anir um launa­setn­ingu séu ekki settar í sam­hengi við og taki ekki til­lit til ann­arra mik­il­vægra þátta eig­anda­stefn­unnar frá 2017. Þannig hafa laun æðstu starfs­manna sem fjallað er um í svar­bréfum bank­anna verið ákveðin úr hófi og leið­andi.

[adspot]Við þá stöðu sem upp sé komin verði ekki unað. „Traust og trún­aður verður að geta ríkt milli þeirra sem falin er stjórn mik­il­vægra félaga og þeirra stjórn­valda er bera ábyrgð á starf­semi þeirra sem eig­andi. Launa­á­kvarð­anir bank­anna hafa nú þegar haft veru­leg nei­kvæð áhrif á orð­spor þeirra og þannig valdið þeim skaða, auk þess sem þær sendu óásætt­an­leg skila­boð inn í þær kjara­við­ræður sem nú standa yfir.“

5,3 og 3,8 milljónir króna á mánuði

Bjarni sendi bréf til stjórna beggja bank­anna 12. febr­úar síð­ast­lið­inn. Sama dag hafði Banka­sýsla rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hlut rík­is­ins í þeim, einnig sent þeim bréf og óskað skýr­inga á ákvörð­unum um laun banka­stjóra, hvernig þær sam­rýmd­ust eig­enda­stefnu og til­mælum sem beint hafði verið til rík­is­fyr­ir­tækja um að sýna hóf­semi í launa­á­kvörð­unum.

Bankaráð Lands­bank­ans svar­aði 19. febr­úar og sagði að 82 pró­senta hækkun á launum Lilju Bjarkar Ein­ars­dótt­ur, banka­stjóra bank­ans, um mitt ár 2017 væri til­komin vegna þess að að laun banka­stjóra hefðu dreg­ist „langt aftur úr þeim launum sem greidd voru fyrir sam­bæri­leg störf“ á árunum 2009 til 2017. Þetta hefði gert það að verkum að laun banka­stjór­ans hafi ekki verið sam­keppn­is­hæf og ekki í sam­ræmi við starfs­kjara­stefnu bank­ans. Þá taldi banka­ráðið sig hafa sýnt bæði hóf­semi og var­kárni þegar samið var um að hækka laun banka­stjór­ans.

Stjórn Íslands­banka svar­aði sama dag og sagð­ist telja að launa­kjör Birnu Ein­ars­dótt­ur, banka­stjóra bank­ans, væri í sam­ræmi við setta starfs­kjara­stefnu bank­ans. Stjórnin taldi einnig að Birna hafi staðið sig afar vel í starfi og að heild­ar­laun henn­ar, sem voru 5,3 millj­ónir króna á mán­uði í fyrra en 4,8 millj­ónir króna í ár, séu ekki leið­andi eftir að hafa gert sam­an­burð við gögn ann­arra banka­stjóra og for­stjóra á Íslandi sem birst hafi í gögnum úr tekju­blaði Frjálsrar versl­unar og ýmsum árs­reikn­ing­um.

Áhrif á stöðugleika á vinnumarkaði

Ljóst er að fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra er ekki ánægður með svörin sem honum bár­ust. Í bréf­inu sem hann skrif­aði Banka­sýslu rík­is­ins í dag rekur hann ákvæði eig­enda­stefnu rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum og þau til­mæli sem beint var til félaga í eigu rík­is­ins að sýna hóf­semi í launa­hækk­unum for­stjóra þegar slíkar ákvarð­anir færð­ust undan kjara­ráði um mitt ár 2017.

Í bréf­inu segir: „Í bréfi ráðu­neyt­is­ins frá 6. jan­úar 2017, sem sent var Banka­sýsl­unni og hún kynnti fyrir stjórnum beggja fyr­ir­tækja, var sér­stak­lega vakin athygli á mik­il­vægi þess að stjórnir hefðu í huga áhrif launa­á­kvarð­ana á stöðu­leika á vinnu­mark­aði og ábyrgð félag­anna í því sam­bandi. Fram kom að ráðu­neytið teldi æski­legt að launa­á­kvarð­anir væru var­kárar og forð­ast ætti að ákvarða miklar launa­breyt­ingar á stuttu tíma­bili en þess í stað gætt að því að laun væru hækkuð með reglu­bundnum hætti til sam­ræmis við almenna launa­þróun. Jafn­framt kom fram að æski­legt væri að laun og kjör væru eins ein­föld og gagnsæ og kostur væri. Ekki á að vera þörf á að útskýra sér­stak­lega hvað í þessum orðum felst og farið var fram á.“

[adspot]Bjarni segir að af svörum banka­ráðs Lands­bank­ans og stjórnar Íslands­banka til Banka­sýsl­unnar sem bár­ust í síð­ustu viku megi ráða „að túlkun á þessum við­miðum sé þröng og ein­hliða og að ákvarð­anir um launa­setn­ingu séu ekki settar í sam­hengi við og taki ekki til­lit til ann­arra mik­il­vægra þátta eig­anda­stefn­unnar frá 2017. Þannig hafa laun æðstu starfs­manna sem fjallað er um í svar­bréfum bank­anna verið ákveðin úr hófi og leið­andi.“

Virtu ekki tilmælin og eiga að lækka launin

Það sé enn­fremur mat ráðu­neyt­is­ins að bank­arnir hafi með launa­á­kvörð­unum fyrir æðstu stjórn­endur ekki virt þau til­mæli sem beint var til þeirra í upp­hafi árs 2017 og sem ítrekuð voru gagn­vart nýkjörnum stjórnum síðar það sama ár, þar sem lögð var áhersla á hóf­semi og var­færni um launa­á­kvarð­anir. „Við þá stöðu sem upp er komin verður ekki unað. Traust og trún­aður verður að geta ríkt milli þeirra sem falin er stjórn mik­il­vægra félaga og þeirra stjórn­valda er bera ábyrgð á starf­semi þeirra sem eig­andi. Launa­á­kvarð­anir bank­anna hafa nú þegar haft veru­leg nei­kvæð áhrif á orð­spor þeirra og þannig valdið þeim skaða, auk þess sem þær sendu óásætt­an­leg skila­boð inn í þær kjara­við­ræður sem nú standa yfir.“

Bjarni óskar eftir því að Banka­sýsla rík­is­ins komi ofan­greindri afstöðu ráðu­neyt­is­ins á fram­færi við við­kom­andi stjórnir „með afdrátt­ar­lausum hætti og enn­fremur því, að ráðu­neytið telji að bregð­ast eigi við þeirri stöðu sem upp er komin með taf­ar­lausri end­ur­skoðun launa­á­kvarð­ana og und­ir­bún­ingi að breyt­ingum á starfs­kjara­stefnum, sem lagðar verði fram á kom­andi aðal­fundum bank­anna.“

Hægt er að lesa bréf Bjarna í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár