Ásmundur endurgreiddi þinginu 178 þúsund krónur vegna ferða með tökufólki ÍNN

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks end­ur­greiddi kostnað sem hann hafði fengið end­ur­greiddan vegna ferða sem hann fór um kjör­dæmi sitt með töku­fólki frá sjón­varps­stöð­inni ÍNN, sem gerðu sjón­varps­þátt um ferð­irnar.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, end­ur­greiddi skrif­stofu Alþingis 178 þús­und krónur vegna ferða sem honum hafði verið end­ur­greiddar á síð­asta ári. Þetta gerði hann vegna þess að honum hafi orðið það ljóst „að það gæti orkað tví­mælis að blanda saman ferðum mínum um kjör­dæmið og ferðum á sama tíma með töku­fólki ÍNN“.

[links]Ásmundur segir að hann hafi gert þetta að eigin frum­kvæði „til þess að eng­inn vafi léki á því að rétt væri að staðið, enda vil ég alltaf koma rétt og heið­ar­lega fram“.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í bréfi Ásmundar til for­sætis­nefndar sem sent var 23. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Kjarninn greindi frá því fyrr í dag að for­sætis­nefnd Alþingis telur ekki skil­yrði til staðar fyrir því að fram fari almenn rann­sókn á end­ur­greiddum akst­urs­kostn­aði þing­manna. Þá hefur for­sætis­nefnd kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að sú athugum þegar hefur farið fram á end­ur­greiddum akst­urs­kostn­aði Ásmundar ásamt skýr­ingum Ásmundar á akstr­inum, „leiði til þess að ekk­ert hafi komi fram sem gefi til kynna að hátt­erni hans hafi verið and­stætt siða­reglum fyrir alþing­is­menn“.

[adspot]Nefndin telur einnig að ekki hafi komið fram neinar upp­lýs­ingar eða gögn sem sýni að til staðar sé grunur um að refsi­verð hátt­semi hafi átt sér stað við fram settar kröfur um end­ur­greiðslur vegna akst­urs­kostn­aðar sem kæra beri sem meint brot til lög­reglu. Þetta kemur fram í svari for­sætis­nefndar við erindi Björns Levís Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata. Undir það skrifar Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis.

Taldi sig vera að slá tvær flugur í einu höggi

Í byrjun febr­úar 2018 svar­aði for­seti Alþingis fyr­ir­­spurn Björns Leví Gunn­­ar­s­­sonar, þing­­manns Pírat­­ar, um akst­­ur­s­­kostn­að. Í svari for­­seta var greint frá því hversu háar greiðslur þeir tíu þing­­menn sem fengu hæstu skatt­lausu end­­ur­greiðsl­­urnar þáðu á síð­­­ustu fimm árum. Ekki var hins vegar greint frá nafni þeirra. Í töl­unum mátti þó sjá að fjórir þing­menn sem þáðu hæstu end­ur­greiðsl­urnar fengu sam­tals 14 millj­ónir króna, eða tæp­lega helm­ing allra end­ur­greiðslna vegna akst­urs.

Skömmu síðar opin­ber­aði Ásmundur í við­tali að hann væri sá sem hefði þegið hæstu greiðsl­urn­ar. Upp­gef­inn akstur hans var 47.644 kíló­metrar á einu ári. Hann fékk alls 4,6 millj­ónir króna end­ur­greiddar, eða 385 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði, vegna keyrslu sinnar. Á meðal þess sem kom í ljós var að Ásmundur hafði fengið end­ur­greiðslur vegna ferða sem hann fór með töku­fólki af sjón­varps­stöð­inni ÍNN, sem var að taka upp sjón­varps­þætti um ferðir hans.

[adspot]Í bréfi Ásmundar segir að hann vilji upp­lýsa að eftir Kast­ljós­þátt á RÚV þann 14. febr­úar 2018 hafi honum orðið ljóst að það gæti orkað tví­mælis að blanda saman ferðum sínum um kjör­dæmið og ferðum á sama tíma með töku­fólki ÍNN. „Það er rétt að benda á að ég sem þing­maður þáði ekki laun sem þátta­stjórn­andi hjá ÍNN. Var ég þar í sömu stöðu og þing­menn allra flokka sem tóku að sér þátta­gerð hjá ÍNN á þessum tíma og þáðu ekki laun fyrir. Ákveðið var að þættir mínir væru teknir víða í kjör­dæmi mínu og ræddi ég við áhuga­verða við­mæl­endur, kynnti þá og kjör­dæmið í leið­inni. Ég leit þanngi á að ég væri að slá tvær flugur í einu höggi; nýta ferð í þágu þing­starfa til að vinna að þátta­gerð­inni sam­hliða.

Slíkt orkar tví­mælis. Vegna þess og að eigin frum­kvæði, greiddi ég því skrif­stofu Alþingis til baka þann 19. febr­úar sl. 178.000 kr. vegna ferða sem mér höfðu verið end­ur­greiddar til þess að eng­inn vafi léki á því að rétt væri að staðið, enda vil ég alltaf koma rétt og heið­ar­lega fram.“

Í nið­ur­lagi bréfs­ins segir Ásmundur að það sé rangt að halda því fram að hann fylgi ekki eða hafi ekki fylgt settum reglum þegar kæmi að ferða­kostn­aði vegna þing­starfa. „Það er sárt að sitja undir inni­halds­lausum ásök­unum um óheið­ar­leika. Síend­ur­teknar dylgjur af þv´itagi munu ekki koma í veg fyrir að ég haldi áfram að sinna starfi mínu sem þing­maður og halda trúnað við íbúa Suð­ur­kjör­dæmis, eins og lands­ins alls.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár