Ratcliffe eignast hlut í fleiri jörðum í Vopnafirði

Jim Ratcliffe breski auð­kýf­ing­ur­inn á nú nærri 90 pró­sent hlut í veiði­fé­lag­inu Streng ehf. sem er með Selá og Hofsá í Vopna­firði á leigu. Auk þess á Strengur sex jarðir í Vopna­firði en Ratcliffe á nú þegar hlut í þrjá­tíu jörðum í Vopna­firði.

Breski auð­jöf­ur­inn Jim Ratcliffe hefur keypt eign­ar­halds­fé­lagið Græna­þing af Jóhann­esi Krist­ins­syni, fjár­festi. Með þessum kaupum á Ratcliffe 86,7 pró­sent hlut í veiði­fé­lag­inu Streng ehf. sem er með Selá og Hofsá í Vopna­firði á leigu. Strengur ehf. á sex jarðir í Vopna­firði að hluta eða öllu leyti auk nýlegs veiði­hót­els við Selá. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Á nú hlut í yfir þrjátíu jörðum í Vopnafirði

Ratcliffe er einn stærsti land­eig­and­inn á Íslandi en hann hefur fest kaup á jörðum í Vopna­firði og Þistil­firði undir því yfir­skini að hann vilji vernda villta laxa­stofna við Atl­ants­haf. Við Kaup Ratcliffes á öllum eign­ar­hlut Jóhann­esar í Græna­þingi eign­ast hann hlut í enn fleiri jörðum en hann hefur áður átt í Vopna­firði en þær voru um 30 fyrir. Græna­þing á helm­ing­inn í jörð­inni Fremri-Nýp, fimmt­ung í Hauks­stöðum og 42,86 pró­senta hlut í jörð­inni Þor­valds­stöðum.

Samkvæmt Frétta­blað­inu var til­kynnt um kaupin á fundi í veiði­fé­lag­inu í síð­ustu viku. Gísli Stef­áns­son, fram­kvæmda­stjóri Strengs, stað­festi að þetta hefði átt sér stað en vildi að öðru leyti ekki ræða þessi við­skipti.

Ríkasti maður Bretlands

[links]Jim Ratcliffe er rík­asti maður Bret­lands árið 2018 sam­kvæmt úttekt The Sunday Times. Alls eru eignir hans metnar á 21,1 millj­arð punda eða tæpa þrjú þús­und millj­arða króna. Ratcliffe hefur verið umsvifa­mik­ill á Íslandi en hann keypti til að mynda stóran eign­ar­hlut í Gríms­stöðum á fjöllum í lok árs 2016 auk þess sem hann hefur keypt upp jarðir í Vopna­firði í grennd við gjöf­ular lax­ár, meðal ann­ars Selá og Hofsá. Þegar Ratcliffe keypti Gríms­staði á sínum tíma sendi hann frá sér yfir­lýs­ingu sem í stóð að á Gríms­­stöðum væri vatna­­svið mik­il­vægra lax­veiðiáa á Norð­aust­­ur­landi og að kaupin á land­inu væru þáttur í því að venda villta laxa­­stofna við Atl­ants­haf.

Annar stór jarða­kaup­andi í Vopna­firði hefur verið fjár­festir­inn Jóhannes Krist­ins­son. Jóhannes átti einka­hluta­fé­lagið Græna­þing sem átti rúm­lega helm­ing­inn, 52,67 pró­sent, í veiði­fé­lag­inu Streng. Jóhannes selur allt hluta­féð til Rat­cliffes. Ratcliffe átti fyrir 34 pró­sent í veiði­fé­lag­inu Streng í gegnum félagið Fálka­þing. Hagnaður Strengs í fyrra nam einni milljón króna sam­kvæmt árs­reikn­ingi. Þar kemur einnig fram að eignir félags­ins séu um 955 millj­ónir króna og eigið fé um 400 millj­ónir.

Í umfjöllun Frétta­blaðs­ins kemur fram að ekki náð­ist í Jóhannes Krist­ins­son við vinnslu frétt­ar­innar og því er ekki vitað nákvæm­lega hversu margar jarðir hafi skipt um hendur milli hans og Ratcliffes. Ekki er heldur vitað hver verð­mið­inn á Græna­þingi ehf. var í þess­ari sölu.

Áhyggjur vegna jarðakaupa erlendra aðila hér á landi

Í umfjöllun Frétta­blaðs­ins kemur fram að heima­menn eystra hafa áður lýst því hvernig til­raunir breska auð­kýf­ings­ins til að kaupa jarðir á svæð­inu hafi fram­kallað deilur innan fjöl­skyldna um hvort selja eigi jarð­irnar eða ekki. Oftar en ekki hafi lög­fræði­skrif­stofur eða fast­eigna­sölur sent eig­endum jarða kauptil­boð frá ónefndum erlendum aðila.

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra í sam­tali við Morg­un­blaðið í júlí á þessu ári.að full ástæða væri til að bregð­ast við áhyggjum fólks af jarða­kaupum erlendra aðila hér á landi. „Ég veit að margir, þar á með­al­ er­lendir aðil­ar, hafa keypt jarðir í gegnum félög eða með því að kaupa hluti í félögum sem eiga jarð­ir. Lög­in heim­ila það. Það væri mögu­legt að kveða á um það í lögum að það yrð­i að liggja fyrir hvaða ein­stak­ling­ar eiga félög­in, telji menn að það skipt­i ­máli í sjálfu sér. Fyrir því eru for­dæmi eins og varð­andi eign­ar­hald á flug­fé­lög­um, en það er mjög sér­stakt ­for­dæmi,“ sagði Sig­ríður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár