Breskur auðjöfur kaupir stóran hluta Grímsstaða

Í yfir­lýs­ingu sem vitnað er til í frétt RÚV kemur fram að hugs­unin að baki kaup­unum sé sú, að vernda villtan laxa­stofn.

Breski millj­arða­mær­ing­ur­inn Jim Ratcliffe, sem er númer 230 á lista Forbes yfir rík­asta fólk í heim­inum, hefur keypt stóran eign­ar­hlut í Gríms­stöðum á fjöllum. Fram kemur í til­kynn­ingu frá honum að hann kaupi jörð­ina til að vernda lax­veiðiár á Norð­aust­ur­landi, að því er segir í frétt RÚV.

Eignir Ratcliffe eru metnað á 6,8 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur tæp­lega 800 millj­örðum króna. Eignir hans eru að miklu leyti bundnar í meiri­hluta­eign í efna­fram­leiðslu­stór­veld­inu Ineos Group.

Eins og komið hefur fram í fréttum, meðal ann­ars fréttum Aust­ur­frétta, hefur Ratcliffe keypt þrjár jarðir í Vopna­firði en þar eru grennd­inni gjöf­ular lax­veiðiár, Selá og Hofsá þar á meðal.

„Fram kemur í til­kynn­ing­unni frá Ratcliffe að á Gríms­stöðum sé vatna­svið mik­il­vægra lax­veiðáa á Norð­aust­ur­landi og að kaupin á land­inu sé þáttur í því að venda villta laxa­stofna við Atl­ants­haf. Íslenska ríkið á enn hluti í jörð­inni og einnig nokkrir aðrir land­eig­endur,“ segir frétt RÚV.

Kín­verj­inn Huang Nubo áform­aði að kaupa Gríms­staði fyrir rúman millj­arð, byggja þar upp ferða­þjón­ustu en ekk­ert varð úr því. Miklar póli­tískar deilur urðu um áform Nubo og skók málið rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, þar sem Ögmundur Jónasson, fyrr­ver­andi þing­maður og ráð­herra Vinstri grænna, var kaup­unum mjög mót­fallin ásamt mörgum fleirum, þvert á flokka.

Gríms­staðir voru aug­lýstir til sölu í októ­ber og var ásett verð 780 millj­ónir, en á und­an­förnum árum hafa Gríms­staðir oft verið aug­lýstir til sölu.

Skýrt er tekið fram í til­kynn­ing­unni frá Ratcliffe að vendun umhverfis sé eini til­gang­ur­inn með landa­kaupum hans á Norð­aust­ur­landi og að hann vilja vinna með bændum að því að vernda árnar og tryggja áfram­hald­andi land­búnað á sama tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár