Dómsmálaráðherra: Eitt verður yfir alla að ganga

Jarða­kaup fjár­festa vekja upp ýmsar spurn­ingar.

Full ástæða er til að bregð­ast við áhyggjum fólks af jarða­kaupum erlendra aðila hér á landi, að mati Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra.

Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag, þar sem rætt er við Sigríði um mál sem snúa að jarða­kaupum fjár­festa hér á landi.

Hún segir í við­tali við Morg­un­blaðið að það hafi orðið vart við áhyggjur vegna kaupa ramm­ís­lenskra aðila á jörðum í gegnum árin. „Ég veit að margir, þar á meðal erlendir aðilar, hafa keypt jarðir í gegnum félög eða með því að kaupa hluti í félögum sem eiga jarðir. Lögin heim­ila það. Það væri mögu­legt að kveða á um það í lögum að það yrði að liggja fyrir hvaða ein­stak­lingar eiga félögin, telji menn að það skipti máli í sjálfu sér. Fyrir því eru for­dæmi eins og varð­andi eign­ar­hald á flug­fé­lögum, en það er mjög sér­stakt for­dæmi,“ segir Sigríður í við­taliu við Morg­un­blaðið.

„Hafi menn áhuga á að tak­marka eign­ar­hald á jörðum með ein­hverjum hætti þá verður að gera það með lögum og fylgja því svo eftir. Það má draga í efa að það sé fram­kvæm­an­legt að fylgj­ast með því með góðu móti. Það vill líka oft gleym­ast í þessu sam­hengi að það felst í full­veld­is­rétti Íslands að lög­gjaf­inn getur alltaf sett eign­ar­haldi skorður til að ná ein­hverjum sam­fé­lags­legum mark­miðum. Menn þurfa svo að kom­ast að nið­ur­stöðu um hvert hið sam­fé­lags­lega mark­mið er. Við Íslend­ingar förum alltaf með skipu­lags­valdið. Það má ekki gleyma því. Í þessu sam­bandi skiptir ekki máli hvort jarð­eig­end­urnir eru Íslend­ingar eða útlend­ingar, eitt verður yfir alla að ganga,“ segir Sigríður í við­tali við Morg­un­blaðið.

Fjallað var ítar­legar um jarð­ar­kaup erlendra fjár­festa á Íslandi í Morg­un­blað­inu á dög­unum, og kom þar meðal ann­ars fram að Jim Ratcliffe, breskur fjár­festir, hefði í sam­vinnu við inn­lenda fjár­festa hér á landi keypt tugi jarða, einkum á Aust­ur­landi og Norð­aust­ur­landi, á und­an­förnum árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár