Mikill munur á greiðslum til þeirra sem vinna að hvítbók um fjármálakerfið

Von er á hvít­bók um fram­tíð­ar­sýn og stefnu fyrir fjár­mála­kerfið á Íslandi en stefnt er að því að hún verði birt í lok nóv­em­ber.

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Útgáfa hvít­bókar um fram­tíð­ar­sýn og stefnu fyrir fjár­mála­kerfið á Íslandi hefur dreg­ist en stefnt er að því að hvít­bókin verði birt í lok þessa mán­aðar. Í svari Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni um ráð­gjöf og störf við tíma­bundin eða afmörkuð verk­efni kemur fram að sund­ur­liðun varð­andi greiðslur til með­lima í starfs­hópnum sem vinna að hvít­bók­inni séu mjög mis­jafnar.

[links]Ólíkar greiðslur milli þeirra sem vinna að hvít­bók­inni skýr­ast af mis­mun­andi vinnu­fram­lagi. Þetta kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn Kjarnans. Jafn­framt kemur fram að frá því hóp­ur­inn var skip­aður hafi Sylvía Kristín Ólafs­dóttir hætt þátt­töku í honum en ekki hafi verið skipað í hóp­inn í hennar stað. Arnór Sig­hvats­son, hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri, hafi aftur á móti verið feng­inn til þess að lið­sinna hópnum.

Í sam­tali við Kjarnann segir Sylvía að engin stór ástæða sé fyrir því að hún hafi hætt í nefnd­inni. „Ég var búin að taka margt annað að mér og hafði mörgu að sinna,“ segir hún.

Lárus L. Blön­dal hæsta­rétt­ar­lög­maður og stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins er for­maður starfs­hóps­ins en með honum eru þau Guð­rún Ögmunds­dótt­ir, for­stöðu­maður lausa­fjár­á­hættu og fjár­mála­fyr­ir­tækja hjá Seðla­banka Íslands, Guð­jón Rún­ars­son, lög­maður og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja og Kristrún Tinna Gunn­ars­dótt­ir, hag­fræð­ingur hjá Oli­ver Wyman í Sví­þjóð.

Samkvæmt ráðu­neyt­inu hefur Kristrún hefur fengið tæpar 9,2 millj­ónir og Lárus tæp­lega 7,5 millj­ónir. Guðjón hefur fengið greiddar 2,8 millj­ónir og þær Guðrún og Sylvía 1,3 millj­ónir hvor. Þá hefur fyr­ir­tækið STC fengið þrjár millj­ónir fyrir efn­is­vinnu við gerð hvít­bók­ar­innar og Arnaldur Hjart­ar­son, sem skip­aður var hér­aðs­dóm­ari í febr­úar, hefur fengið greidda eina milljón króna.

Útgáfan frestaðist

Í yfir­lýs­ingu frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu sem send var út í febr­úar síð­ast­liðnum kemur fram að mark­miðið sé að skapa traustan grund­völl fyrir umræðu, stefnu­mörkun og ákvarð­ana­töku um mál­efni er varða fjár­mála­kerf­ið, fram­tíð­ar­gerð þess og þró­un.

Kveðið var á um stofnun hóps­ins í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar þar sem lögð var áhersla á að stefnu­mark­andi ákvarð­anir um fjár­mála­kerfið verði teknar eftir umfjöllun Alþingis um fram­tíð­ar­sýn fjár­mála­kerf­is­ins á Íslandi sem byggi á þess­ari hvít­bók um efn­ið. Hvít­bókin hafi að leið­ar­ljósi aukið traust á íslenskum fjár­mála­mark­aði, aukið gagn­sæi og fjár­mála­stöð­ug­leika. Í sátt­mál­anum segir einnig að rík­is­stjórnin vilji vinna að frek­ari skil­virkni í fjár­mála­kerf­inu, að dregið verði úr áhættu vegna óskyldra þátta í starf­semi fjár­mála­fyr­ir­tækja og að sér­stak­lega verði litið til ann­arra lít­illa opinna hag­kerfa og reynslu ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum við mótun fram­tíð­ar­sýn­ar­inn­ar.

Í frétt Kjarnans frá því í sept­em­ber síð­ast­liðnum kom fram að skipun nefnd­ar­innar hefði taf­ist tölu­vert miðað við það sem ætl­unin var þegar dag­setn­ingin 15. maí var ákveð­in. „Nefndin hóf ekki störf fyrr en í febr­úar og því ljóst að þau tíma­mörk voru ekki raun­hæf,“ sagði Lárus, for­mað­ur nefnd­ar­innar. Nefndin óskaði eftir umsögnum margra aðila og bár­ust þær síð­ustu í júlí síð­ast­liðnum. For­sæt­is­ráð­herra kynnti í vor á þingi á stefnt væri að því að nefndin lyki störfum í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár