Plastátak á Íslandi

Ný aðgerð­ar­á­ætlun gegn plast­noktun á Íslandi var færð umhverfis- og auð­linda­ráð­herra í dag. Í áætl­un­inni má finna 18 aðgerðir um hvernig megi draga úr notkun plasts, bæta end­ur­vinnslu og takast á við plast­mengun í hafi.

Á næstu árum munu íslensk stjórn­völd leggj­ast í stór­tækar aðgerðir gegn plast­notkun á Íslandi ef ný til­laga að aðgerð­ar­á­ætlun í plast­mál­efnum, sem starfs­hópur skil­aði umhverfis- og auð­linda­ráð­herra í dag, gengur eftir. Í aðgerð­ar­á­ætl­un­inni má finna átján aðgerðir um hvernig megi draga úr notkun plasts, bæta end­ur­vinnslu og takast á við plast­mengun í hafi. Meðal ann­ars er lagt til að stjórn­völd ráð­ist í mark­vissa vit­und­ar­vakn­ingu almenn­ings um ofnotkun á plast­vörum, ásamt því er lagt til að plast burð­ar­pokar verði bann­aðar í versl­unum árið 2021 og að flokkun úrgangs verði sam­ræmd á lands­vísu.

„Til­lög­urnar sem ég fékk í dag eru blanda af hag­rænum hvötum, banni, fræðslu og nýsköpun. Plast­fjöllin okkar hækka stöðugt og ef fram heldur sem horfir verður árið 2050 meira plast í haf­inu en fiskar. Við verðum að breyta þessu og þora að taka stór skref. Hér í dag hafa einmitt mik­il­væg fyrstu skref verið stigin.“ segir Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra.

Plastmengun á Íslandi

Hefð­bundið plast brotnar ekki niður með líf­rænum hætti, heldur molnar niður í smærri ein­ingar á hund­ruðum eða þús­undum ára. Allir burð­ar­plast­pokar sem jarð­ar­búi hefur notað á ævinni eru því enn þá til á ein­hverju formi. Örplast af þessu tagi í haf­inu er orðið að eitt af stærstu vanda­málum heims­ins.

Notkun plast­um­búða á Íslandi jókst á árunum 2014 til 2016 úr 13.660 tonnum í 15.029 tonn, eða um 10 pró­sent. Plast­um­búðir sem skil­uðu sér til end­ur­vinnslu voru 4.478 tonn árið 2014 og 6.411 tonn tveimur árum síð­ar. Plast­um­búðir sem skil­uðu sér til brennslu með orku­nýt­ingu voru 423 tonn árið 2014 og 666 tonn árið 2016. Plast­úr­gang­ur, þ.e. annar en plast­um­búð­ir, sem skil­aði sér til end­ur­vinnslu voru 193 tonn árið 2014 og 666 tonn tveimur árum síð­ar. Þetta kom fram í svari Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Olgu Mar­gréti Cilia um mengun af völdum plast­notk­unar í febr­úar síð­ast­liðnum.

Í sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar er kveðið á um átak gegn plasti og að hreinsa plast úr umhverf­inu og skipan starfs­hóps aðgerð­ar­á­ætl­un­innar var liður í að fylgja því eftir. Þá hefur mhverf­is­ráð­herra lagt ítrekað lagt áherslu á að plast­mál séu eitt af hans for­gangs­málum. [adspot]

Aðgerðaráætlun gegn plastnotkun

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, skipaði starfshóp með 13 sætum í júlí síðastliðnum með það að markmiði að búa til tillögu að aðgerðaáætlun í plastmálefnum. Í starfshópnum voru fullrúar frá atvinnulífinu, sveitarfélaga, umhverfisverndarsamtaka, félagasamtaka, opinberra stofnana, Alþingis, ráðuneyta og fleiri.

Meðal þeirra var Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri Grænna, fyrir hönd stjórnarflokkana og Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkarinnar, fyrir hönd stjórnarandstöðu flokkana. Hópnum var falið af ráðherra að taka til skoðunar hvaða rannsóknir og vöktun varðandi plast þurfi að ráðast í, koma með tillögur um þær stjórnvaldsaðgerðir sem æskilegt væri að koma í framkvæmd og koma með tillögur um hvernig best verði stuðlað að nýsköpun í vörum sem koma í stað plastnotkunar.

Tillagan að aðgerðaráætluninni snýr að aðgerðum um hvernig draga megi úr notkun plasts, bæta endurvinnslu þess og takast á plastmengun í hafi. Í aðgerðaráætlunni eru 18 aðgerðir en aðgerðunum er skipt í þrennt, fyrsti flokkurinn er „Dregið úr notkun plasts“ sem inniheldur átta aðgerðir, „Bætt endurvinnsla“ þar sem fjórar aðgerðir eru tilgreindar og síðan „Plast í hafi“ með sex aðgerðum. Starfshópurinn leggur áherslu á að um tillögur sé að ræða en nánari útfærsla þeirra krefjist vandaðs undirbúnings og gott samráðsferli sé hluti þess. Ekki er búið að kostnaðarmeta meirihluta aðgerðanna en mismunandi er hver ber kostnaðinn af aðgerðunum Tillögurnar fara nú í opið samráð og geta öll þau sem vilja gert athugasemdir við þær.

Burðarpokar bannaðar 2021

[links]Meðal aðgerðanna er að þriggja þrepa áætlun um burðarpoka úr plasti sem endar með því að 1. janúar 2021 verði óheimilt að selja eða afhenda plastpoka í verslunum. Mikil vitundarvakning hefur verið um óþarfi og skaðsemi plastpoka undanfarin ár, skorað hefur verið á stjórnvöld að banna plastpoka í gegnum undirskriftasafnanir og fleira. Nýlega kannaði MMR viðhorf Íslendinga gagnvart banni á plastpokum en mikill meirihluti var hlynntur banns á plastpokum.

Önnur aðgerð leggur til að hafist verði handa við að innleiða tilskipun ESB um að draga úr umhverfisáhrifum plasts sem fyrst eftir að slík tilskipun hefur verið samþykkt í Evrópu en áætlað er að það verði á næsta ári. Lagt er til að banni við plastdiskum, plasthnífapörum, plaströrum og öðru einnota plasti, sem kveðið er á um í drögum að tilskipuninni, verði flýtt og það innleitt hér á landi frá og með 1. janúar 2020.

Skylda sveitarfélög og rekstraraðila að flokka úrgang

Í skýrsl­unni er ábyrgð stjórn­valda við­ur­kennd með ýmsum aðgerðum sem snýr að stjórn­völdum. Ein aðgerðin snýr að því að stjórn­völd myndu sjálf ganga fram góðu for­dæmi og stuðli að auk­inni sjálfi sjálf­bærni í rekstri og bættri umhverf­is­vit­und. Í dag taka 62 stofn­anir þátt í verk­efn­inu Grænum skrefum í rík­is­rekstri en í áætl­un­inni er lagt til að allar stofn­anir verði skyldugar til að taka þátt. Í Grænum skrefum er mikil áhersla lögð á að draga úr sóun og auka flokkun úrgangs. Meðal aðgerða sem stofn­anir þurfa að inn­leiða er að kaupa ekki inn einnota umbúðir s.s. drykkj­arglös og borð­búnað, að stofn­anir verði plast­poka­lausar og að ekki séu einnota umbúðir á við­burðum og fundum. Kostn­að­ur­inn við þessa aðgerð er talin 12,5 millj­ónir


Önnur aðgerðartillaga snýr að því að lagt er til að umhverfis- og auðlindaráðherra leggi fram lagafrumvarp ekki seinna en september 2019 til þess að skylda sveitarfélög og rekstraraðila til að flokka úrgang, a.m.k. lífrænan úrgang, pappír, plast, málma og gler og koma til endurnýtingar. Ósamræmi í flokkun úrgangs milli sveitarfélaga gerir almenningi erfiðara fyrir við að flokka rusl. Ekki liggur þó fyrir hvaða fjárhagsleg áhrif þessi aðgerð mun hafa á sveitarfélög.

Auglýsingaherferð gegn ofnotkun plasts

Samkvæmt aðgerðaáætluninni þá eru breytingar á neyslu og hegðun almennings lykilatriði við að ná árangri í ofnotkun á einnota plast­i. Ein aðgerðin er því víðtæk auglýsingaherferð um ofnotkun almennings á plastvörum. Samkvæmt áætluninni er markmiðið að auka vitund fólks um ofnotkun á einnota plastvörum með menntun og fræðslu. Hvetja fólk til að minnka notkun á plasti, flokka og fleira. Herferðin væri birt í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum bæði á ensku og íslensku. Samhliða þessu er gert ráð fyrir að útbúið verði kennsluefni fyrir öll skólastig um plast og áhrif þess. Kostnaður við slíka herferð er tólf milljónir króna árlega.

Meðal aðgerðanna var einnig innleiðing tillögu Evrópusambandsins um bann við plasthnífapörum, plastdiskum, plaströrum og öðru einnota plasti. Í aðgerðaráætlunin er lagt til að bann við eyrnapinnum, hnífapörum, diskum, rörum, hrærum og blöðruprikum úr plast verði flýtt og innleitt hér á landi frá og með 1. janúar 2020. Önnur aðgerð snýr að því að lagt er til að settur verði á fót sérstakur rannsókna- og þróunarsjóður til að styðja við styðja við nýjar lausnir sem komið geta í stað plasts og að efla hagnýtar rannsóknir um endurvinnslu á plasti.

Banna örplast 2020

Af öðrum til­lögum hóps­ins var til dæmis lagt til að úrvinnslu­gjalds verði lagt á allt plast en ekki ein­ungis umbúða­plast, önnur til­laga sneri að hreinsun frá­rennslis verði bætt til að minnka losun örplasts í hafið enda sé skólp hvergi hreinsað á Íslandi með til­liti til örplasts.

Einnig er meðal aðgerða að banna hrein­læt­is­vörur sem inni­halda örplast frá árinu 2020 með sama hætti og gert var í Bret­landi fyrr á þessu ári. Örplast (e. micro beads) er óupp­leys­an­legt, innan við 5 mma ð stærð og brotnar ekki niður í umhverf­inu eða líf­verum. Það er að finna í ýmsum vörum eins og sápu, sturtu­sápu, and­lits- og lík­ams­skrúbbum og tann­kremi, og endar því iðu­lega í nið­ur­föllum, vöskum og sturtu­botnum þaðan sem þær eiga greiða leið út í haf.

Fjöldi ann­ara aðgerða var í áætl­un­inni þar á meðal aðgerð til að hreinsa strendur lands­ins, önnur um að rekstr­ar­að­ilar verði með mið­lægri upp­lýs­inga­gjöf sem gerir þeim auð­veld­ara fyrir við að velja grænni lausnir fyrir rekstur sinn, til dæmis umhverf­is­vænni umbúðir undir til­búna mat­vöru. Aðrar aðgerðir sneru m.a. að styrkjum og við­ur­kenn­ingum fyrir frum­legar plast­lausnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftlagsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár