Þinglýst eignarhald skilyrði skráningar heimagistingar

Til stendur að breyta lögum um heimagist­ingu en breyt­ing­arnar miða að því að bæta ferlið við skrán­ingu og eft­ir­lit og að sam­ræma betur máls­með­ferð og ákvörðun sekta milli leyf­is­skyldrar gisti­starf­semi og skrán­ing­ar­skyldrar heimagist­ingar.

Samkvæmt nýju frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um veit­inga­staði, gisti­staði og skemmt­ana­hald verður þing­lýst eign­ar­hald skil­yrði skrán­ingar heimagist­ingar. Ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra setur frum­varpið fram en það er komið í sam­ráðs­gátt stjórn­valda og er umsagn­ar­frestur til 24. októ­ber næst­kom­andi.

[links]Þar eru lagðar til þrenns konar breyt­ingar, sem allar varða starfs­svið leyf­is­veit­anda, það er Sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í fyrsta lagi varð­andi skrán­ingu heimagist­ingar og í öðru lagi varð­andi sam­ræm­ingu á máls­með­ferð og ákvörðun sekta milli skrán­ing­ar­skyldra og rekstr­ar­leyf­is­skyldra aðila vegna leyf­is­skyldrar gisti­starf­semi ann­ars vegar og skrán­ing­ar­skyldrar heimagist­ingar hins vegar. Í þriðja lagi er lögð til breyt­ing varð­andi eft­ir­lit með skilum á nýt­ing­ar­yf­ir­litum ein­stak­linga sem leigja út hús­næði sitt og skrá undir heimagist­ingu.

Í frum­vap­inu kemur fram að frá árinu 2017 hafi sýslu­maður orðið þess var að ein­stak­lingar skrái lög­heim­ili til mála­mynda í þeim til­gangi að geta skráð eign­ina til heimagist­ingar. Í frum­varp­inu er jafn­framt tekið dæmi: Rekstr­ar­að­il­inn A er þing­lýstur eig­andi fast­eign­ar­innar B. Eigandi A sækir um að færa lög­heim­ili sitt á fast­eign­ina B. Degi síðar skilar eig­andi A inn umsókn til sýslu­manns um skrán­ingu heimagist­ingar á fast­eign­ina B.

Mark­miðið með að binda skrán­ingu heimagist­ingar við þing­lýst eign­ar­hald, auk lög­heim­ilis, er að koma í veg fyrir slíkar lög­heim­il­is­skrán­ingar til mála­mynda, sam­kvæmt því er kemur fram í frum­varp­inu. 

[adspot]

Breyt­ingar á lögum um veit­inga­staði, gisti­staði og skemmt­ana­hald tóku gildi þann 1. jan­úar á síð­asta ári. Lög­gjöfin fól í sér tölu­verðar breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi leyf­is­veit­inga fyrir veit­inga- og gisti­staði, svo sem með til­komu skrán­ing­ar­skyldu vegna heimagist­ingar, ótíma­bind­ingu rekstr­ar­leyfa og afnámi leyf­is­skyldu fyrir til­tek­inn flokk veit­inga­staða.

Heimild til útleigu fast­eignar í skráðri heimagist­ingu í allt að 90 daga á ári hefur verið virk frá 1. jan­úar 2017. Þann 1. júní 2017 felldi umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið niður kröfu um starfs­leyfi heil­brigð­is­nefndar fyrir heimagist­ingu. Í kjöl­farið varð tölu­verð aukn­ing í nýt­ingu heim­ildar til heimagist­ingar og árið 2017 sam­þykkti Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 1059 skrán­ingar á heimagist­ingu. Eft­ir­liti með heimagist­ingu er ein­göngu sinnt af Sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

54 mál send til ákærusviðs lögreglu árið 2017

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá sýslu­manni mót­tók emb­ættið 339 ábend­ingar um óskráða eða leyf­is­skylda gisti­starf­semi árið 2017 og 120 áskor­anir hafa verið sendar með stefnu­vottum til ein­stak­linga og lög­að­ila vegna óskráðrar leyf­is­skyldrar starf­semi. Þá voru 54 mál send til ákæru­sviðs lög­reglu árið 2017 þar sem um er að ræða rekstr­ar­leyf­is­skylda starf­semi lög­að­ila sem ekki eru hand­hafar leyfis.

Athuga­semdir hafa verið gerðar vegna skorts á nægj­an­legu eft­ir­liti með heimagist­ingu ein­stak­linga. Þeim athuga­semdum var mætt með auknu fjár­magni til að efla svo­kall­aða heimagist­ing­ar­vakt sem starf­rækt er á vegum Sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Einnig hafa verið gerðar athuga­semdir vegna tak­mark­aðs eft­ir­lits með leyf­is­skyldum rekstr­ar­að­ilum, auk þess sem óhag­ræði og auk­inn kostn­aður sé tal­inn fel­ast í því að ólög­leg rekstr­ar­leyf­is­skyld gisti­starf­semi í atvinnu­skyni heyri undir átta emb­ætti lög­reglu­stjóra.

Þær efn­is­legu breyt­ingar sem lagðar eru til í þessu frum­varpi eru, eins og greint er frá hér að ofan, þrenns konar og eru allar til komnar vegna áskor­ana tengdum heim­ild til starf­rækslu heimagist­ingar sem tók gildi þann 1. jan­úar á síð­asta ári. Sem fyrr segir varða breyt­ing­arnar allar starfs­svið Sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og miða ann­ars vegar að því að bæta ferlið við skrán­ingu og eft­ir­lit með heimagist­ingu og hins vegar að sam­ræma betur máls­með­ferð og ákvörðun sekta milli leyf­is­skyldrar gisti­starf­semi og skrán­ing­ar­skyldrar heimagist­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár