Íslendingar jákvæðastir í garð innflytjenda og fjölmenningar

Íslend­ingar mæl­ast með jákvæð­ustu við­horf til inn­flytj­enda og fjöl­menn­ingar í Evrópu, auk þess sem meiri­hluti þeirra vill að rík­is­stjórnin veiti mörgum hæl­is­leit­endum dval­ar­leyfi.

56% Íslendinga vilja að ríkisstjórnin veiti mörg dvalarleyfi til hælisleitenda sem hingað koma.
56% Íslend­inga vilja að rík­is­stjórnin veiti mörg dval­ar­leyfi til hæl­is­leit­enda sem hingað koma. Mynd: EPA

Viðhorf Íslend­inga hafa orðið jákvæð­ari í garð inn­flytj­enda og fjöl­menn­ingar, en þau eru nú þau frjáls­lynd­ustu í Evrópu. Einnig vill meiri­hluti lands­manna að rík­is­stjórnin sé rausn­ar­leg í veit­ingu dval­ar­leyfis hæl­is­leit­enda. Þetta eru nið­ur­stöður nýj­ustu útgáfu við­horfskönn­un­ar­innar European Social Survey.

Könnunin náði til 23 landa og 44.387 virkra við­mæl­enda, en 880 Íslend­ingar svör­uðu henni. Hún hefur verið fram­kvæmt í átta skipti, en til­gangur hennar er að bera saman við­horf milli Evr­ópu­landa og hvort þau breyt­ast yfir tíma. Nýjasta útgáfa könn­un­ar­innar var fram­kvæmd á Íslandi árið 2016 og er það í þriðja skiptið sem landið tekur þátt í henni. Fyrri tvö skiptin voru fram­kvæmd hér á landi árin 2004 og 2012.

Ísland, Írland og Svíþjóð efst

Meðal þess sem spurt var um í könn­un­inni var hvort við­mæl­endur teldu inn­flytj­endur hafa góð eða slæm áhrif á efna­hags­lífið, auk þess sem þeir eru spurðir hvort þeim fynd­ist inn­flytj­endur gera landið að betri eða verri stað til að búa á. Um 69% Íslend­inga töldu efna­hags­leg áhrif inn­flytj­enda góð og 78% þeirra töldu Ísland vera betra vegna komu þeirra. Bæði svar­hlut­föllin eru þau lang­hæstu af öllum Evr­ópu­lönd­unum, en Írland og Svíþjóð fylgja þar á eftir með tæp­lega 60%. [adspot]

Jákvæðir í garð fjölmenningar

Önnur spurn­ing sneri að við­horfi til fjöl­menn­ingar, eða nákvæm­lega hvort menn­ing heima­lands­ins yrði auðgað með komu inn­flytj­enda. 78% Íslend­inga svör­uðu þeirri spurn­ingu með jákvæðum hætti og var það einnig hæsta mælda hlut­fall könn­un­ar­innar. Á eftir Íslandi komu Finnland og Svíþjóð, en þar svör­uðu 77% og 72% við­mæl­enda spurn­ing­unni með jákvæðum hætti.

Þegar litið er á nið­ur­stöður Íslands í fyrri útgáfum könn­un­ar­innar árið 2004 og 2012 sést að við­horf í garð fjöl­menn­ingar hefur tekið jákvæðum breyt­ingum á und­an­förnum árum. Árið 2004 svör­uðu 68% Íslend­inga inn­flytj­endur bæta menn­ing­ar­líf lands­ins, og árið 2012 var svar­hlut­fallið einnig í 69%.

Þau lönd sem vöru fjand­sam­leg­ust erlendum menn­ing­ar­á­hrifum voru Aust­ur­ríki, Litháen, Ung­verja­land, Tékkland og Rússland, en í Rúss­landi töldu ein­ungis 17% við­mæl­enda inn­flytj­endur auðga menn­ing­ar­líf heima­lands­ins síns.

Þegar spurt var hvort rík­is­stjórn heima­lands­ins ætti að vera rausn­ar­leg í veit­ingu dval­ar­leyfis fyrir hæl­is­leit­endur voru 56% Íslend­inga því fylgj­andi, þar af voru 15% mjög fylgj­andi. Þetta hlut­fall er það þriðja hæsta í Evrópu, en 71% Portú­gala og 59% Íra svör­uðu spurn­ing­unni ját­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár