Óboðnir rússneskir gestir á baðherberginu

Tæknin gerir öðrum kleift að fylgj­ast með þeim sem á, eða notar, sím­ann. Hlustað á sím­töl, séð við hvern er talað og hve lengi, hverjum síma­eig­and­inn sendir smá­skila­boð, hvar síma­eig­and­inn er staddur hverju sinni o.fl.

Fæstir kæra sig um að hafa með sér á bað­her­bergið óboðna gesti, sem heyra og sjá það sem þar fer fram. Sama gildir um svefn­her­bergið. Fæstir vita þó af því ef slíkir gestir gera sig heima­komna.

Í dag er nán­ast hver ein­asti maður með far­síma í vas­anum eða tösk­unni, margir jafn­vel með fleiri en einn. Sú tíð er löngu liðin að far­sím­arnir séu ein­föld tæki, sem hægt er að hringja úr, eða í. Þeir verða sífellt full­komn­ari og eru, ásamt því að vera hinn hefð­bundni sími, tölva, stað­setn­ing­ar­tæki, mynda­vél, útvarp og jafn­vel sjón­varp. Hægt er að fylgj­ast með fréttum nán­ast hvar sem er og hvenær sem er. Þessi full­komna tækni býður semsé upp á fjöl­margt sem engan hefði dreymt um fyrir örfáum árum.

En það að sím­inn búi yfir öllum þessum eig­in­leikum hefur líka auka­verk­anir. Tæknin gerir öðrum kleift að fylgj­ast með þeim sem á, eða notar, sím­ann. Hlustað á sím­töl, séð við hvern er talað og hve lengi, hverjum síma­eig­and­inn sendir smá­skila­boð, hvar síma­eig­and­inn er staddur hverju sinni o.fl. Ekki líkar öllum jafn vel að hægt sé að fylgj­ast með þeim og reyna þá að gera ráð­staf­anir til að koma í veg fyrir slíkt. Hlaða niður smá­forritum (apps) sem eiga að úti­loka njósn­irnar. En „njósn­ar­arnir“ eru yfir­leitt skrefi á undan og finna ætíð nýjar leiðir til að kom­ast í gegnum varn­irnar.

Stirð samskipti Rússa og Dana

Und­an­farið hafa borist margar fréttir af meintum njósnum Rússa og inn­brotum þeirra í tölvu­kerfi sem valdið hafa miklu tjóni. Fyrir skömmu sagði Claus Hjort Frederik­sen varn­ar­mála­ráð­herra Dana, og hafði reyndar áður sagt, að það hefðu verið rúss­neskir tölvu­þrjótar sem brut­ust inn í tölvu­kerfi Mærsk skipa­fé­lags­ins á síð­asta ári og ollu þar gríð­ar­legu tjóni. Og í skýrslu Örygg­is­nefndar um tölvu­mál kemur fram að að það hafi verið Rússar sem brut­ust inn í tölvu­kerfi danska hers­ins og komust meðal ann­ars í tölvu­póst starfs­manna. Þessar fréttir og fleiri af svip­uðu tagi hafa vakið ugg í brjósti danskra þing­manna. Sam­skipti Rússa og margra vest­rænna ríkja hafa versnað mjög að und­an­förnu og þar eru Danir ekki und­an­skildir. Rússar hafa þrýst á Dani að heim­ila lagn­ingu gasleiðsl­unnar Nord Stream2 sem á að liggja frá Rúss­landi til Þýska­lands um Eystra­salt og á nokkrum kafla um lög­sögu Dana við Borg­und­ar­hólm. Danir hafar verið mjög hik­andi og undir þrýst­ingi frá Banda­ríkja­mönnum og fleirum um að synja beiðni Rússa. Nýverið studdu Danir loft­árásir Banda­ríkja­manna, Frakka og Breta á Sýrland og vís­uðu tveimur rúss­neskum sendi­ráðs­starf­mönnum úr landi í kjöl­far Skripal máls­ins svo­nefnda í Bret­landi.

Danskir þingmenn uggandi

Það sem hér hefur verið nefnt veldur því að danskir þing­menn eru ugg­andi og ótt­ast að þeir séu undir smá­sjá Rússa. Dag­blaðið Berl­ingske greindi fyrir nokkrum dögum frá því að danskur þing­maður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, hefði fyrir skömmu fengið sann­anir fyrir því að Rússar hefðu hlerað sím­tal hans, í far­síma, við mann úti í bæ, og jafn­framt horft á hann í gegnum lins­una á sím­anum. Þegar sím­talið fór fram var þing­mað­ur­inn á sal­ern­inu, að sinna nauð­synja­verki, eins og blaðið orð­aði það. Annar þing­maður sagð­ist hafa sann­anir fyrir því að brot­ist hefði verið inn í tölvu á skrif­stofu hans á Krist­jáns­borg. Margir danskir þing­menn hrukku illi­lega við og sögð­ust hreint ekki hafa áttað sig á því að hægt væri, með lít­illi þekk­ingu og fyr­ir­höfn að hlera síma og brjót­ast inn í tölvur. Í áður­nefndri umfjöllun Berl­ingske kom fram að margir danskir þing­menn eru mjög ugg­andi vegna fregna af fram­ferði tölvu­þrjóta, ekki síst Rússa. Þing­mað­ur­inn Ida Auken sagði blaða­manni Berl­ingske að margir tækju sím­ann með sér í svefn­her­bergið og á sal­ernið „og maður átt­aði sig ekki á því að í gegnum sím­ann væri hægt að fylgj­ast með athöfnum fólks, sím­inn liggur kannski á nátt­borð­inu og er hreint og beint að horfa á mann.“ Fleiri þing­menn hafa í við­tölum und­an­farna daga talað á sömu nótum og segj­ast setja sím­ann ofan í skúffu þegar þeir væru heima og einn þing­maður sagð­ist hafa fjar­lægt sjón­varpið úr svefn­her­berg­inu „hver veit nema ein­hvers­staðar sitji ein­hver og fylgist með manni“.

Plástur yfir linsuna og gamall Nokia í Rússlandsferðum

Sumir úr hópi danskra þing­manna segj­ast hafa límt plástur eða lím­merki yfir lins­una á sím­anum, og tölv­unni, í örygg­is­skyni. Í nokkrum nefndum danska þings­ins er bannað að hafa sím­ana með sér á fundi og í fyrra var greint frá því að þegar þing­menn fara til Rúss­lands eða Tyrk­lands hefðu þeir með­ferðis „gam­al­dags“ Nokia síma sem erfitt væri að hlera og ekki eru með mynda­vél.

Handskrifuð minnisblöð

Peter Kofod Poulsen þing­maður Danska Þjóð­ar­flokks­ins er með límt yfir mynda­vélar­augað á sím­anum og tölv­unni og hann seg­ist auk þess not­ast mikið við hand­skrifuð minn­is­blöð. Hann seg­ist líka fara síma­laus í göngutúr með sam­starfs­mönnum sínum í þing­inu ef ræða þurfi við­kvæm mál „og þá bið ég sam­starfs­mann­inn að skilja sím­ann eftir á skrif­stof­unni.“

Lone Juul Drans­feldt Christensen sér­fræð­ingur í örygg­is­málum segir það gott að þing­menn geri sjálfir ráð­staf­anir til að verj­ast eft­ir­liti „það er nefni­lega ótrú­lega auð­velt fyrir erlend ríki að hlera stjórn­mála­menn í öðrum löndum.“

Þingið gerir ráðstafanir

Pia Kjærs­gaard for­seti danska þings­ins sagði í við­tali við Berl­ingske að margir þing­menn hefðu snúið sér til hennar og lýst áhyggjum vegna hugs­an­legra hler­ana og tölvu­inn­brota „Og þær áhyggjur eru ekki ástæðu­lausar,“ sagði þing­for­set­inn. Pia Kjærs­gaard sagði að þingið hefði þegar gert ýmsar ráð­staf­anir til að verj­ast hler­unum og tölvu­inn­brotum og unnið væri að frek­ari ráð­stöf­unum. Hún vildi hins­vegar ekki upp­lýsa nánar um örygg­is­mál þings­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár