118 manns hafa notað 57 milljónir í „Fyrstu fasteign“

Um fimm þús­und manns bíða eftir að umsókn þeirra um að fá að nýta sér­eign­ar­sparnað sinn í hús­næð­is­kaup undir hatti „Fyrstu fast­eignar“.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, lagði fram fyrirspurn um „Fyrstu fasteign“.
Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, lagði fram fyr­ir­spurn um „Fyrstu fast­eign“. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls hafa 105 manns nýtt sér útgreiðslur vegna hús­næð­is­kaupa undir hatti úrræð­is­ins „Fyrsta fast­eign“. Til við­bótar hafa þrettán ein­stak­lingar nýtt sér úrræðið í formi greiðslna inna á lán í hverjum mán­uði. Samtals hafa 56,9 millj­ónir króna farið inn á höf­uð­stól lána fyrstu fast­eigna­kaup­enda eða í að lækka afborg­arnir þeirra. Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra við fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, um málið.

[links]Þegar Kjarninn spurð­ist fyrir um sama mál hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu fyrir nokkrum vikum síðan feng­ust þau svör að í lok mars hefði „á annað hund­rað manns“ nýtt sér úrræðið „Fyrsta fast­eign“ frá því að það kom til fram­kvæmda um mitt ár í fyrra.

„Fyrsta fast­eign“ stendur þeim til boða sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð. Sam­kvæmt úrræð­inu geta þeir nýtt sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparnað till að safna fyrir inn­borgun á fyrstu íbúð­ar­kaup eða greitt inn á höf­uð­stól hús­næð­is­láns. Alls er heim­ilt að ráð­stafa að hámarki 500 þús­und krónum á ári í mest tíu ár með ofan­greindum hætti sam­kvæmt skil­málum „Fyrstu fast­eign­ar“.

Þegar úrræðið var kynnt í Hörpu um miðjan ágúst 2016 af þáver­andi ráða­mönnum þjóð­ar­innar kom fram í glæru­kynn­ingu að um 50 millj­arðar króna myndu rata í inn­greiðslur á hús­næð­is­lánum vegna „Fyrstu fast­eign­ar“ á tíu árum eftir að úrræðið tæki gildi. Þegar níu mán­uðir af tíma­bil­inu eru liðnir þá hefur 0,1 pró­sent af þeirri upp­hæð sem ráða­menn sögðu að myndu fara í að greiða niður hús­næð­is­lán undir hatti úrræð­is­ins farið í það.

Fimm þúsund umsóknir bíða afgreiðslu

Kjarninn greindi líka frá því í byrjun apríl að um fimm þús­und umsóknir um nýt­ingu úrræð­is­ins biðu afgreiðslu.

[adspot]Tvær ástæður eru aðal­lega gefnar fyrir þessum fjölda en sam­kvæmt svari rík­is­skatt­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarn­ans tók mun lengri tíma að útbúa tölvu­kerfi þeirra aðila sem að mál­inu koma og skap­aði það þá töf sem orðið hef­ur.[box]

Enn fremur var afgreiðsla umsókn­anna tíma­frek­ari en búist var við og ekki voru nægi­lega margir starfs­menn að sinna verk­efn­inu. Sam­kvæmt rík­is­skatt­stjóra var tekin sú ákvörðun fyrr á árinu að auka við mann­afla til að anna eft­ir­spurn.

Í svar­inu við fyr­ir­spurn Björns Leví segir að þau sjón­ar­mið komi helst til athug­unar við skoðun umsókna hvort að „um fyrstu kaup umsækj­anda sé að ræða, hvort við­kom­andi hafi aflað sér eign­ar­innar einn eða í félagi við einn annan ein­stak­ling, hvort umsækj­andi eigi 30 pró­sent eða meira í fast­eign­inni, hvort umsækj­andi hafi áður sótt um ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar vegna sömu fast­eigna­kaupa og þá hvort og hversu mikið umsækj­andi hafi áður ráð­stafað af sér­eign­ar­sparn­aði sínum og hvort aðili hafi sótt um ráð­stöfun úr sjóði sem er þátt­tak­andi í verk­efn­inu.“

Tvöfaldur ávinningur

Þeir sem nýta sér sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparnað til að greiða niður hús­næð­is­lán sitt sam­kvæmt úrræðum sem stjórn­völd hafa inn­leitt á und­an­förnum árum fá tvö­faldan ávinn­ing.

Í fyrsta lagi fæst mót­fram­lag frá vinnu­veit­enda sem er ígildi launa­hækk­un­ar. Í öðru lagi fæst skatta­af­sláttur frá rík­inu sem ein­ungis býðst þeim sem nota sér­eigna­sparnað sinn til að greiða niður hús­næð­is­lán.

Þegar frum­varpið um „Fyrstu fast­eign“ var lagt fram sagði í grein­ar­gerð þess að umfangið gæti náð til 4.300 til 15.200 laun­þega, sam­kvæmt grein­ingu Analytica, sem gætu „sparað í sér­eign árlega 1,3–5,2 millj­arða kr. eða um 13–52 millj­arða kr. á tíu ára tíma­bil­i.“ Sú tala sem Sig­urður Ingi Jóhanns­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, ákváðu að ein­blína á við kynn­ingu sína á úrræð­inu var 50 millj­arðar króna ávinn­ingur á tíu ára tíma­bili, sem er mjög nálægt efri mörkum grein­ing­ar­inn­ar.

Raun­veru­leik­inn sýnir að nýt­ingin hingað til hefur verið langt frá neðri mörkum hennar og enn lengra fá efri mörk­un­um. Í stað þess að 1,3-5,2 millj­örðum króna hafi verið ráð­stafað inn á hús­næð­is­lán með sér­eign­ar­sparn­aði fyrstu íbúða­kaup­enda þá hefur um 55 millj­ónum króna verið ráð­stafað inn á þau.

15 millj­arða skatta­af­sláttur kynntur

Í kynn­ing­unni sem haldin var í ágúst 2016 kom fram að ef 50 millj­arðar króna myndu fara í að greiða niður hús­næð­is­lán myndi íslenska ríkið gefa fyrstu fast­eigna­kaup­endum 15 millj­arða króna í skatt­afslátt á tíu ára tíma­bili, myndu þeir kjósa að nota sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparnað sinn til að kaupa hús­næði.

Sam­kvæmt kynn­ing­unni áttu um 14 þús­und manns að nýta sér úrræðið á fyrstu árum þess. Þá var lagt upp með að árlega myndu um tvö þús­und manns mæt­ast í hóp þeirra sem eiga kost á því að nýta sér úrræð­ið.

Ljóst er að hóp­ur­inn sem hefur valið að nýta sér leið­ina er mun fámenn­ari en stefnt var að og því verður skatt­afslátt­ur­inn vænt­an­legra mun minni en fram kom í kynn­ingu þáver­andi ráða­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár