Auka við mannafla til að sinna „Fyrstu fasteign“

5000 umsóknir til að nýta úrræðið „Fyrsta fast­eign“ bíða nú afgreiðslu hjá rík­is­skatt­stjóra. Nokkrar ástæður eru gefnar fyrir þessum fjölda, meðal ann­ars mann­ekla og töf á smíði tölvu­kerfis.

Fimm þús­und umsóknir bíða afgreiðslu hjá rík­is­skatt­stjóra um úrræðið „Fyrsta fast­eign“. Tvær ástæður eru aðal­lega gefnar fyrir þessum fjölda en sam­kvæmt svari rík­is­skatt­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans tók mun lengri tíma að útbúa tölvu­kerfi þeirra aðila sem að mál­inu koma og skap­aði það þá töf sem orðið hefur.

[links]Enn fremur var afgreiðsla umsókn­anna tíma­frek­ari en búist var við og ekki voru nægi­lega margir starfs­menn að sinna verk­efn­inu. Samkvæmt rík­is­skatt­stjóra var tekin sú ákvörðun fyrr á árinu að auka við mann­afla til að anna eft­ir­spurn.

„Fyrsta fast­eign“ stendur þeim til boða sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð. Sam­kvæmt úrræð­inu geta þeir nýtt sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparnað til að safna fyrir inn­borgun á fyrstu íbúð­ar­kaup eða greitt inn á höf­uð­stól hús­næð­is­láns. Alls er heim­ilt að ráð­stafa að hámarki 500 þús­und krónum á ári í mest tíu ár með ofan­greindum hætti sam­kvæmt skil­málum „Fyrstu fast­eign­ar“.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið hafði stjórn á und­ir­bún­ingi verk­efn­is­ins og skip­aði tvo starfs­hópa til að und­ir­búa fram­kvæmd­ina meðal ann­ars að hlut­ast til um að sett væri upp við­eig­andi tölvu­kerfi og greina með hvaða hætti sam­starf yrði við líf­eyr­is­sjóði, fjár­mála­fyr­ir­tæki, þjóð­skrá og aðra aðila sem afhenda þurfa upp­lýs­ingar til að unnt verði að afgreiða umsóknir. Rík­is­skatt­stjóri hefur það hlut­verk að taka við umsóknum og afgreiða þær í sam­ræmi við gild­andi laga­á­kvæði.

Afgreiðsla hverrar umsóknar tekur langan tíma

Í svari rík­is­skatt­stjóra kemur fram að tafir á smíði tölvu­kerf­is­ins hafi haft í för með sér að mun tíma­frekara var að afla nauð­syn­legra upp­lýs­inga til að unnt væri að ákvarða hvort umsókn upp­fyllti þau laga­legu skil­yrði sem lög setja við ákvörðun á því hvort unnt væri að fall­ast á umsókn. Eru það til að mynda upp­lýs­ingar um hvort um fyrstu kaup umsækj­anda er að ræða, hvort lán sem óskað er greiðslu inn á upp­fylli skil­yrði lag­anna, hvort umsækj­andi upp­fylli skil­yrði lag­anna að öðru leyti o.s.frv. Afgreiðsla hverrar umsóknar tók með öðrum orðum langan tíma, sam­kvæmt rík­is­skatt­stjóra.

Segir jafn­framt í svar­inu að sér­stök ein­ing hafi verið sett upp sem einnig hafði með höndum afgreiðslu á umsóknum um sér­eign­ar­sparnað. Í fyrstu eftir að lögin tóku gildi hafi mik­ill fjöldi fyr­ir­spurna borist og hafi starfs­menn rík­is­skatt­stjóra verið bundnir í þeim þætti. Þá hafi á síð­ustu dögum árs­ins 2017 komið mik­ill fjöldi nýrra umsókna vegna fyrstu kaupa en einnig vegna eldra sér­eign­ar­sparn­að­ar­úr­ræð­is­ins sem hófst árið 2014.

Starfsmenn færðir um set

„Á sama tíma jókst þjón­usta við við­skipta­vini mikið bæði í síma og tölvu­pósti sem og fjölg­aði heim­sóknum á starfs­stöðvar emb­ætt­is­ins vegna þess­ara verk­efna. Allt gerði þetta að verkum að mikið hægð­ist á afgreiðslu­hrað­anum og fjöldi óaf­greiddra umsókna jókst. Í fram­haldi af þessu var tekin ákvörðun á fyrri hluta árs­ins 2018 um að auka við mann­afla sem sinnti þessu verk­efni. Þá er unnið að því að færa starfs­menn úr öðrum ein­ingum í þetta verk­efni en engin fjár­veit­ing fylgdi þessu verk­efni,“ segir í svar­inu.

Rík­is­skatt­stjóri segir að nú sé staðan sú að nauð­syn­leg tölvu­kerfi eru loks­ins komin í fullan rekstur. Með auknum mann­afla og að upp­lýs­ingar ber­ast nú greiðar en áður, stefni í að á næstu vikum verði unnt að ná afgreiðslu­tíma umsókna um fyrstu íbúð í við­un­andi horf með afgreiðslu þeirra umsókna sem þegar hafa borist.

Kjarninn fjall­aði um úrræðið „Fyrsta fast­eign“ en á annað hund­rað manns hafa nýtt sér það frá því að það kom til fram­kvæmda um mitt ár í fyrra. Sá hópur hefur ráð­stafað um 55 millj­ónum króna til íbúðar­kaupa á tíma­bil­inu.

Þegar úrræðið var kynnt í Hörpu um miðjan ágúst 2016 af þáver­andi ráða­mönnum þjóð­ar­innar kom fram í glæru­kynn­ingu að um 50 millj­arðar króna myndu rata í inn­greiðslur á hús­næð­is­lánum vegna „Fyrstu fast­eign­ar“ á tíu árum eftir að úrræðið tæki gildi. Þegar níu mán­uðir af tíma­bil­inu eru liðnir þá hefur 0,1 pró­sent af þeirri upp­hæð sem ráða­menn sögðu að myndu fara í að greiða niður hús­næð­is­lán undir hatti úrræð­is­ins farið í það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár