Um 20 starfa hjá RÚV við tekjuöflun – Flestir við auglýsingasölu

Á annan tug manns eru í fullu starfi hjá RÚV til að sinna sölu á aug­lýs­ingum, hér­lendu sem og erlendu efni og leigu á dreifi­kerfi. Beinn kostn­aður RÚV vegna sam­keppn­is­rekstrar er 256 millj­ónir á ári.

Beinn kostn­aður vegna sam­keppn­is­rekstrar Rík­is­út­varps­ins var 256,5 millj­ónir árið 2017. Hann jókst lít­il­lega milli ára eða um 4,5 millj­ónir. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi RÚV sem birt­ist þann 26. mars síð­ast­lið­inn.

Í svari Rík­is­út­varps­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að sú tala sé sá beini rekst­ar­kostn­aður sem hlýst af tekju­öflun RÚV. Megnið af tekju­öflun RÚV sé vegna sölu á aug­lýs­ingum en einnig vegna leigu­tekna, sölu á efni hér­lendis og erlendis, leigu á dreifi­kerfi o.s.frv.

Enn fremur kemur fram í svar­inu að þeir starfs­menn sem sinna þessum þáttum séu um 20 í fullu starfi og síðan bæt­ist við hluti af störfum ann­arra starfs­manna sem koma að þessum málum á fjár­mála- og tækni­sviðum.

[adspot]Ef reiknað er með að þessi upp­hæð deilist niður á 20 manns þá eru með­al­mán­að­ar­laun rúm­lega ein milljón króna á mann.

Laun útvarpsstjóra hækkuðu um 16 prósent

Kjarninn fjall­aði nýverið um launa­kostnað Magnúsar Geirs Þórð­ar­sonar útvarps­stjóra en hann var með 22,9 millj­ónir króna í heild­ar­laun og þókn­anir á síð­asta ári. Greiðslur til hans hækk­uðu um 5,7 millj­ónir króna í fyrra, eða um 33 pró­sent. Heild­ar­laun og þókn­anir útvarps­stjóra voru 1,9 millj­ónir króna á mán­uði að með­al­tali árið 2017. Kom þetta fram í árs­reikn­ingi RÚV.

Kjarn­anum barst árétt­ing frá RÚV þar sem fram kemur að á árinu 2016 hafi útvarps­stjóri tekið fæð­ing­ar­or­lof sem lækk­aði heild­ar­greiðslur launa á því ár. Því gefi sam­an­burður milli launa á árunum 2016 og 2017 ekki rétta mynd af launa­þró­un. Stjórn RÚV hafi ákveðið að hækka laun útvarps­stjóra á árinu 2017 úr 1.550 þús­und krónum á mán­uði í 1.800 þús­und krón­ur, eða um 16 pró­sent.

Segir enn fremur í frétt Kjarnans að laun stjórn­ar­manna í RÚV hafi hækkað um 21 pró­sent á milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár