Þórður og Birgir kvörtuðu yfir fjölmiðlum til ÖSE

Á fundi sínum með ÖSE í aðdrag­anda kosn­inga lýstu fram­kvæmda­stjóri og for­maður þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins áhyggjum sínum af meintri hlut­drægni RÚV og fleiri miðla.

Þórður Þórarinsson og Birgir Ármannsson.
Þórður Þór­ar­ins­son og Birgir Ármanns­son. Mynd: Samsett mynd.

Birgir Ármanns­son, for­maður þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins, stað­festir í sam­tali við Kjarnann að hann og Þórður Þór­ar­ins­son, fram­kvæmda­stjóri flokks­ins, hafi í aðdrag­andi kosn­inga fundað með ÖSE og viðrað áhyggjur sínar af slag­síðu í fjöl­miðlum. Hann segir að sér­stak­lega hafi þeim fund­ist Rík­is­út­varpið ekki verið að sinna hlut­leys­is­skyldum sínum.

[links]Í skýrslu ÖSE, Öryggis- og sam­vinnu­stofn­unar Evrópu, segir að full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi kvartað yfir hlut­drægni fjöl­miðla á fundi með eft­ir­lits­mönnum stofn­un­ar­innar í aðdrag­anda Alþing­is­kosn­inga í lok októ­ber í fyrra.

Í skýrsl­unni segir að full­trú­arnir hafi kvartað undan hlut­drægni fjöl­miðla sem fjöll­uðu um „lög­bannið, þannig að það hafi ein­göngu átt við um umfjöllun um for­sæt­is­ráð­herr­ann,“ sem á þessum tíma var Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Lög­bannið sem vitnað er til, var lög­bannið sem Glitnir Holdco fékk sett á umfjöllun Stund­ar­innar og Reykja­vík Media upp úr gögnum frá Glitni. Meðal ann­ars var þar umfjöllun um við­skipta­mála­efni Bjarna, þegar hann var bæði stór þátt­tak­andi í íslensku við­skipta­lífi og þing­maður fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Funduðu tvisvar

„Ég geri ráð fyrir því að hér sé vísað til funda okkar Þórðar [Þór­ar­ins­sonar] sem við áttum með ÖSE í aðdrag­anda kosn­ing­anna,“ segir Birgir. Hann segir að þeir hafi átt tvo fundi með ÖSE. Umfjöll­un­ar­efni fyrri fund­ar­ins hafi verið almennt um kosn­ingar, enda séu slíkir fundir partur af eft­ir­liti stofn­un­ar­innar. Síðari fund­ur­inn var nokkrum dögum fyrir kosn­ingar, að sögn Birgis, og var meg­in­um­fjöll­un­ar­efnið fjöl­miðlar og fjöl­miðlaum­fjöllun.

Hann segir að árum saman hafi full­trúar flokk­anna átt sam­töl við ÖSE af þessu tagi og að ekk­ert óeðli­legt sé við það. „Ef ég man rétt þá var þetta með þeim hætti að full­trú­arnir voru að velta fyrir sér aðgangi stjórn­mála­flokka að fjöl­miðlum,“ segir Birgir. Hann hafi ekki litið á það sem vanda­mál, enda hafi allir flokkar ágætis mögu­leika á að koma mál­flutn­ingi sínum á fram­færi.

Slagsíða á RÚV

„Við ræddum það á fund­inum sem okkur þykir slag­síða í fjöl­miðlum; í frétta­vali, fram­setn­ingu og þess hátta,“ segir Birgir. Hann bætir því við að þeir hafi einnig rætt fjöl­miðla með almennum hætti. Þeir hafi bent á að eins og gengur væri það ekki óþekkt eða óeðli­legt að sumir væru þeim and­vígir og aðrir hlið­hollir. Ekkert væri undan því að kvarta.

Aftur á móti væri slag­síða á Rík­is­út­varp­inu. „Já, við nefndum það,“ segir Birgir. Sér­stak­lega hafi þeir verið með í huga frétta­flutn­ing RÚV mánu­dags­kvöldið fyrir kosn­ingar. Einnig hafi þeim fund­ist sér­kenni­legur frétta­flutn­ingur á laug­ar­dags­kvöldið en að sögn Birgis til­greindu þeir hann sér­stak­lega á fund­inum.

Þeir hafi talað um að Rík­is­út­varpið bæri ríkar hlut­leys­is­skyldur sem stofn­unin væri ekki að sinna. Birgir nefnir í því sam­hengi lög­banns­málið svo­kall­aða og seg­ist hann vera með fleiri mál í huga hvað þetta varðar. Hann nefnir þó ekki fleiri dæmi því til stuðn­ings.

Lögbannið þeim óviðkomandi

Birgir segir að þeir hafi nefnt það við ÖSE að þeim þætti ann­ars vegar ósann­gjarnt að málum væri stillt upp þannig að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bæri á ein­hvern hátt ábyrgð á lög­bann­inu. „Það var okkur algjör­lega óvið­kom­andi,“ segir hann. Hins vegar finnst honum ósann­gjörn sú umræða sem bein­ist að því að um væri að ræða lög­bann á gögn um fjár­mál Bjarna Bene­dikts­sonar. Lög­bannið hafi ekki beinst að því heldur að gögn­unum í heild sinni.

Hann segir í sam­tali við Kjarnann að rétt sé haft eftir þeim Þórði í skýrslu ÖSE en bætir því þó við að þetta sé ein­ungis brot af heild­ar­mynd­inni. Þessi sjón­ar­mið hafi komið í sam­hengi við almenna umræðu um fjöl­miðla.

Birgir segir að Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni flokks­ins, hafi ekki verið greint frá þessu enda sé ákveðin verka­skipt­ing innan flokks­ins.

Uppfært kl. 14:31:

Í svari Þórðar Þór­ar­ins­sonar, fram­kvæmda­stjóra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við fyr­ir­spurn Kjarnans stað­festir hann að hann og Birgir hafi hitt full­trúa ÖSE mánu­dag­inn 23. októ­ber 2017. „Fund­ur­inn var hald­inn að frum­kvæði ÖSE, sem hitti full­trúa stjórn­mála­flokka í tengslum við kosn­inga­eft­ir­lit vegna alþing­is­kosn­inga. Á fund­inum fór fram almennt spjall þar sem snert var á ýmsum málum tengdum kosn­ing­unum. Meðal þess sem var til umræðu var fjöl­miðlaum­fjöllun,“ segir í svar­inu.

Hann bætir því við að þeir hafi tekið það fram að þeir gerðu ekki athuga­semdir um aðgang að fjöl­miðlum, allir flokkar fengju tæki­færi til kynna sig og koma skila­boðum á fram­færi í fjöl­miðlum. Hins vegar hefði að þeirra mati komið fyrir að slag­síða væri á fréttaum­fjöllun sem væri alvar­legt er rík­is­fjöl­mið­ill ætti í hlut enda rek­inn fyrir almannafé og hefði lögum sam­kvæmt ríkar hlut­leys­is­skyldur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár