Tíu staðreyndir um húsnæðismál á Íslandi

Ungt og/eða efna­lítið fólk getur ekki kom­ist inn á hús­næð­is­markað, þrátt fyrir lang­vinnt góð­æri. Flestir sem leigja vilja vera í öðrum aðstæðum. Og þeir sem eiga hús­næði græða á þessu öllu saman. Hér eru tíu stað­reyndir um þennan snúna markað.

  1. Hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað um 94 pró­sent frá því í des­em­ber árið 2010. Raunverð fast­eigna á svæð­inu hefur aldrei í sög­unni verið hærra en það er nú. Þetta hefur meðal ann­ars leitt til þess að fjöldi íbúa á hverja íbúð hér á landi hefur hækkað und­an­farin ár á meðan hann hefur almennt farið lækk­andi á hinum Norð­ur­lönd­un­um. Í dag eru um 2,5 íbúar í hverri íbúð á Íslandi en ann­ars staðar á Norð­ur­löndum eru um tveir íbúar í hverri íbúð.
  2. Leigu­verð hefur líka hækkað mikið. Alls hefur það hækkað um 78,7 pró­sent frá því i byrjun árs 2011. Á sama tíma er sífellt stærra hlut­fall Íslend­inga á leigu­mark­aði, eða 17 pró­sent. Meiri­hluti leigj­enda, alls 57 pró­sent, er á leigu­mark­aðnum af nauð­syn og 80 pró­sent leigj­enda vilja kaupa sér íbúð, en geta það ekki. Einungis 14 pró­sent leigj­enda vilja vera á leigu­mark­aði. Þriðji hver leigj­andi borgar meira en helm­ing af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu og fáir tekju­lágir leigj­endur geta safnað sér spari­fé. Þetta kom fram í nýlegri könnun Íbúða­lána­sjóðs.
  3. Um þessar mundir eru búa um 20.000 manns á aldr­inum 20 til 29 ára í for­eldra­húsum og hefur sá fjöldi farið vax­andi. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu búa meira en fjórir af hverjum tíu íbúum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á þrí­tugs­aldri ýmist enn eða á ný í for­eldra­húsum.
  4. Helsta ástæða þess að íbúða­verð hefur hækkað mikið á skömmum tíma, og erf­ið­ara hefur verið fyrir ungt eða tekju­lágt fólk að kaupa eða leigja, er að eft­ir­spurn er lang­sam­lega meiri en fram­boð. Samkvæmt grein­ingu Íbúða­lána­sjóðs, sem gerð var fyrir aðgerð­ar­hóp félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra og birt var í apríl, vant­aði nú þegar 4.600 íbúðir og byggja þyrfti níu þús­und íbúðir til loka árs 2018 til að ná jafn­vægi milli fram­boðs og eft­ir­spurnar.
  5. Annar hluti hús­næð­is­vand­ans felst í auk­inni skamm­tíma­leigu íbúða til ferða­manna. Árið 2010 voru ferða­menn sem heim­sóttu Ísland um 500 þús­und. Á þessu ári er búist við 2,3 millj­ónum slíkra. Um 1,2 pró­sent íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa verið í leigu á Air­bnb í 180 daga eða fleiri á síð­ustu 12 mán­uð­um. Staðan er öðru­vísi á mörgum öðrum land­svæðum þar sem minna er um að íbúðir séu í svo mik­illi útleigu á Air­bnb. Samkvæmt nýlegri grein­ingu Íslands­banka á íslenskum íbúða­mark­aði voru til að mynda 1.225 heim­ili í heils­ársleigu á Airbnb í Reykja­vík í ágúst 2016.
  6. Ein ástæða þess að leigu­mark­aður hefur orðið erf­ið­ari á und­an­förnum árum er inn­reið leigu­fé­laga sem rekin eru með hagn­að­ar­sjón­ar­miði. Þau rök­styðja til­veru sína með því að þau tryggi stöð­ug­leika, hús­næð­is­ör­yggi og lang­tíma­leigu sem skort hafi á leigu­mark­aði þar sem hús­næð­is­eig­andi var að leigja sína eign til leigj­enda, oft til skemmri tíma. Stærstu aðil­arnir á þessum mark­aði eru Almenna leigu­fé­lagið (stýrt af GAMMA) og Heima­vellir. Frá því að þessir tveir aðilar fóru að kaupa upp þús­undir eigna til að leigja þær út hefur leigu­verð hækkað um tugi pró­senta. Sam­keppn­is­eft­ir­litið greindi frá því í til­kynn­ingu fyrr á þessu ári að sér­hæfð leigu­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Suð­ur­nesjum ættu allt að 40 pró­sent íbúð­ar­hús­næðis í almennri útleigu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á milli 70 til 80 pró­sent á Suð­ur­nesj­um.
  7. Kjör hús­næð­is­lán­a á Íslandi hafa batnað mikið á und­an­förnum árum. Fyrr á þessu ári fóru að bjóð­ast í fyrsta sinn íbúða­lána­vextir á Íslandi sem eru undir þrjú pró­sent, verð­tryggt. Bestu kjörin eru sem stendur hjá Líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­is­ins, sem býður 2,77 pró­sent breyti­lega verð­tryggða vexti. End­ur­koma líf­eyr­is­sjóð­anna inn á hús­næð­is­lána­markað, sem hófst af alvöru síðla árs 2015, hefur því gjör­breytt vaxtaum­hverf­inu. Þeir geta boðið mun betri kjör en við­skipta­bank­arnir. Þá hafa breyt­ingar á lögum um lán­töku­gjöld gert það að verkum að þau hafa lækkað mikið og gert neyt­endum auð­veld­ara fyrir að færa sig á milli lán­veit­enda með íbúða­lán sín til að fá sem best kjör.
  8. Átta af hverjum tíu Íslend­ingum hafa sagst vera hlynntir afnámi verð­trygg­ingar. Samt taka Íslend­ingar nán­ast ein­vörð­ungu verð­tryggð lán þótt aðrir lána­kostir séu í boði. Og ásóknin í verð­tryggðu lánin er bara að aukast. Af nýjum íbúða­lánum sem líf­eyr­is­sjóðir lands­ins veittu á fyrri helm­ingi árs­ins 2017 voru 72,1 pró­sent verð­tryggð. Hlut­fallið var svipað hjá íslensku við­skipta­bönk­un­um. Þar hækkar hlut­fall verð­tryggðra íbúða­lána sífellt á kostnað óverð­tryggðra lána. Auk þess eru öll lán Íbúð­ar­lána­sjóðs verð­tryggð. Ástæðan er tví­þætt. Í fyrsta lagi hafa verð­tryggð lán ein­fald­lega verið hag­stæð­ari þar sem verð­bólga hefur hald­ist undir 2,5 pró­sent mark­miði Seðla­banka Íslands í 44 mán­uði sam­fleytt og bank­inn hefur verið að lækka meg­in­vexti sína. Það hefur leitt til þess að íbúða­lána­vextir hafa líka lækkað. Hin ástæðan er sú að greiðslu­byrðin af verð­tryggðum lánum er lægri en á óverð­tryggðum og því auð­veld­ara að láta mán­að­ar­mótin ganga upp með því að taka slík.
  9. Fyrir banka­hrun jókst skuld­setn­ing íslenskra heim­ila gríð­ar­lega mikið. Almenn­ingur tók út aukn­ingu á eigin fé í hús­næði og fjár­festi fyrir eða eyddi í neyslu. Eftir að ráð­ist var í allskyns til­tekt í skulda­stöðu íslenskra heim­ila á borð við sér­tæka skuld­að­lögun, 110 pró­sent leið­ina, leið­rétt­ing­una og auð­vitað end­ur­út­reikn­ing á ólög­mætum mynt­körfu­lánum hefur skulda­staða íslenskra heim­ila batnað mikið. Þetta, ásamt stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu og hækkun hús­næð­is­verðs, hefur stór­aukið eigið fé þjóð­ar­innar, sem er að mestu bundið í hús­næði. Alls áttu Íslend­ingar 3.343,3 millj­arða króna í eigið fé um síð­ustu ára­mót, og þar af var 77 pró­sent eigið fé í fast­eign. Íslend­ingar virð­ast hafa lært af reynsl­unni og hafa ekki tekið út þetta aukna eigið fé í þess­ari lotu. Skuldir heim­il­anna sem hlut­fall af ráð­stöf­un­ar­tekjum hafa ekki verið lægri frá alda­mótum.
  10. 10. Almennar vaxta­bætur vegna vaxta­gjalda af lánum til kaupa á íbúð­ar­hús­næði, sem ein­stak­lingar greiddu af á árinu 2016, námu 4,3 millj­örðum króna. Þær lækk­uðu um 16,8 pró­sent á milli ára. Alls fengu 26.107 þiggj­endur vaxta­bætur á síð­asta ári, eða 12,1 pró­sent færri en árið áður. Um 90 pró­sent þeirra fara til efna­meiri helm­ings þjóð­ar­innar. Vaxta­bætur hafa sam­tals lækkað um 7,7 millj­arða króna síðan árið 2010 og þeim fjöl­skyldum sem fá þær hefur fækkað um rúm­lega 30 þús­und á saman tíma. Á sama tíma og sífellt færri fá vaxta­bætur vegna íbúð­ar­hús­næðis þá hafa fast­eigna­gjöld, sem sveit­ar­fé­lög leggja á, hækkað um 50 pró­sent vegna gríð­ar­legra hækk­ana á hús­næð­is­verði.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár