Brynjar Níelsson segist hættur að nota Facebook

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks seg­ist ótt­ast að sam­fé­lags­miðlar séu farnir af hafa alvar­leg áhrif á geð­heilsu þjóð­ar­innar.

Brynjar Níelsson vill að fólk tali meira saman.
Brynjar Níelsson vill að fólk tali meira saman. Mynd: Anton Brink

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, seg­ist ætla að hætta að nota Facebook af heilsu­fars­á­stæðum. Brynjar hefur verið mjög áber­andi á sam­fé­lags­miðl­inum á und­an­förnum árum þar sem hann hefur sett fram skoð­anir á mönnum og mál­efnum. Ummæli hans þar og skoð­ana­skipti hafa oft á tíðum ratað í fréttir. Brynjar er með hámarks­fjölda vina á Facebook og hefur náð meiri útbreiðslu með stöðu­upp­færslum sínum en flestir aðrir stjórn­mála­menn á und­an­förnum árum.

Í stöðu­upp­færslu sem Brynjar birti fyrir skemmstu segir hann að áður en hann hóf afskipti af stjórn­málum haustið 2012 hafi hann ekki verið á sam­skipta­miðlum og lið­iði vel. „Mér var hins vegar tjáð að ekki þýddi að fara í stjórn­mál án þess að vera á fés­bók­inni, hið minnsta. Fésbókin er kjör­inn vett­vangur til að koma áleiðis skoð­unum sínum. Mér þykir vænt um alla 5000 vini mína og líka hina sem eru í mis­miklu jafn­vægi en hafa mikla þörf til að segja mér til synd­anna.

Sam­skipti á Fés­bók­inni eru vand­með­farin. Kímni­gáfa og skop­skyn fólks er mjög mis­mun­andi og sumir bera lítið skyn­bragð á kald­hæðni og þekkja bara orðið úr orða­bókum. Við­brögðin geta því verið ansi harka­leg og jafn­vel ógeð­felld. Einn góður vinur minn sagði að ég gæti lagað það að mestu með því að læra að nota alla þessa bros- og skeifukarla sem í boði eru.

Ég ótt­ast að allir þessir sam­skipta­miðlar séu farnir að hafa alvar­leg áhrif á geð­heilsu þjóð­ar­innar. Sýnist að fólk sé að mestu hætt að tala saman og einu sam­skiptin eru þegar verið er að sýna hvort öðru eitt­hvað í sím­anum. Kannski ekki skrítið að geð­heil­brigði­mál sé mesta áskorun stjórn­mál­anna í nán­ustu fram­tíð.

Nú er svo komið að ég ætla, af heilsu­fars­á­stæðum, að kveðja Fés­bók­ina ,að minnsta kosti í bili. Eig­in­konan mun gleðj­ast og kannski láta sjá sig aftur á meðal fólks og margir sam­flokks­menn mínir munu draga úr notkun róandi lyfja ef það er ekki orðið of seint. Kannski mun hin magn­aða póli­tíska hreyf­ing Pírata ná áttum. Krafta­verkin ger­ast.

Ég mun örugg­lega sakna ykkar, kæru vinir en nú bíð ég bara eftir að ein­hver kenni mér að loka þessum fjanda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár