Formannsskipti í Viðreisn – Þorgerður Katrín tekur við

Benedikt Jóhann­es­son er ekki lengur for­maður Við­reisnar. Flokk­ur­inn mælist nú með 3,3 pró­sent fylgi og er tölu­vert frá því að ná manni inn á þing.

Benedikt Jóhannesson hefur vikið sem formaður Viðreisnar og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er tekin við.
Benedikt Jóhann­es­son hefur vikið sem for­maður Við­reisnar og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir er tekin við. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir er tekin við sem for­maður Við­reisnar. Þetta herma öruggar heim­ildir Kjarnans. Þingmenn flokks­ins funda nú á skrif­stofu hans í Ármúla og þar hefur verið ákveðið að Benedikt Jóhann­es­son, sem hefur verið for­maður Við­reisnar frá stofnun flokks­ins og er starf­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, víki sem for­maður. Ástæðan er tví­þætt sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Annars vegar sú að óánægju gætir með fram­göngu Bene­dikts að und­an­förnu, sér­stak­lega í sjón­varps­þætt­inum For­ystu­sætið á RÚV á mánu­dags­kvöld. Hins vegar er staða flokks­ins grafal­var­leg sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum, en sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans mælist fylgi flokks­ins ein­ungis 3,3 pró­sent.

Í þætt­inum For­ystu­sæt­inu lét Benedikt þau ummæli falla um upp­reist æru-­málið sem sprengdi rík­is­stjórn­ar­sam­starfið að málið „sem þótti svo stórt að það var ástæða til stjórn­ar­slita, það man varla nokkur hvað þetta er.“ Hann sagð­ist enn fremur ekki telja að málið hafi verið þannig vaxið að það hefði verið til­efni til stjórn­ar­slita og að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri búin að gefa nauð­syn­leg svör um upp­reist æru dæmdra kyn­ferð­is­brota­manna.

Sú fram­ganga hans vakti upp mikla reiði innan Við­reisnar og var hald­inn krísufundur í gær­morgun vegna hennar. Í kjöl­farið sendi Benedikt frá sér yfir­lýs­ingu á Facebook þar sem hann sagð­ist ekki hafa ætlað að gera lítið úr þeim sárs­auka sem þolendur kyn­ferð­is­brota og aðstand­enda verða fyrir með ummælum sínum. Hann bað alla aðila máls­ins inni­lega afsök­un­ar.

Þor­gerður Katrín er starf­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Hún er fyrr­ver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og odd­viti Við­reisnar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár