47,6% vilja annað hvort Vinstri græn eða Sjálfstæðisflokkinn

Nýjasta kosn­inga­spáin sýnir að Vinstri græn eru vin­sælust, Sjálf­stæð­is­flokkur næst vin­sælastur og að Sam­fylk­ingin er þriðja stærsta stjórn­mála­aflið.

Nærri því helmingur kjósenda íhugar að kjósa annað hvort Vinstri græna, flokk Katrínar Jakobsdóttur, eða Sjálfstæðisflokkinn, flokk Bjarna Benediktssonar.
Nærri því helm­ingur kjós­enda íhugar að kjósa annað hvort Vinstri græna, flokk Katrínar Jak­obs­dóttur, eða Sjálf­stæð­is­flokk­inn, flokk Bjarna Bene­dikts­sonar. Mynd: Samsett mynd / Birgir Þór

Nærri því helm­ingur kjós­enda ætlar að greiða annað hvort Vinstri grænum eða Sjálf­stæð­is­flokknum atkvæði sitt í Alþing­is­kosn­ing­unum 28. októ­ber næst­kom­andi. Nýjasta kosn­inga­spáin mælir Vinstri græn enn sem vin­sælasta fram­boðið í kosn­ing­unum með 26,2 pró­sent fylgi.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með stuðn­ing 21,4 pró­sent kjós­enda í dag, litlu minna en hann var með í kosn­inga­spánni 7. októ­ber síð­ast­lið­inn. Kosn­inga­spáin er unnin af Baldri Héð­ins­syni stærð­fræð­ingi í sam­vinnu við Kjarnann í aðdrag­anda kosn­ing­anna. Hægt er að leas nánar um kosn­inga­spána í kosn­inga­mið­stöð Kjarnans.

Þrjár kann­anir eru hafðar til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni og fá þær allar svipað vægi. Það hefur vakið athygli að könnun Frétta­blaðs­ins sem birt var í morgun sýndi allt aðra nið­ur­stöðu en könnun MMR sem birt var síð­degis. Það má eflaust að miklu leyti skýra með því að benda á mis­mun­andi aðferða­fræði við gerð kann­ana. Könnun Frétta­blaðs­ins var gerð á einum degi, og 804 svör­uðu könn­un­inni. Könnun MMR var gerð á lengri tíma, dag­ana 6. til 11. októ­ber.

[chart]

Kosn­inga­spáin vigtar nið­ur­stöður þess­ara kann­ana í takt við aðferða­fræð­ina sem býr að baki könn­un­unum og miðar við sögu­lega nákvæmni könn­un­ar­að­ila sam­an­borið við úrslit kosn­inga hverju sinni. Fylg­is­sveifl­urnar í kosn­inga­spánni eru þess vegna ekki eins dramat­ískar og í nið­ur­stöðum ein­stakra kann­ana, en gefa skýr­ari mynd af þróun fylg­is­sveifl­anna.

Stjórnarflokkarnir tapa enn

Þeir þrír flokkar sem starfað hafa með Sjálf­stæð­is­flokknum í rík­is­stjórn á und­an­förnum árum tapa mestu fylgi í kosn­inga­spánni í ár. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn starf­aði með Sjálf­stæð­is­flokknum í rík­is­stjórn á árunum 2013-2016. Flokk­ur­inn mælist nú með aðeins 5,9 pró­sent fylgi.

[adspot]

Viðreisn og Björt fram­tíð hafa svo starfað með Sjálf­stæð­is­flokknum í Stjórn­ar­ráð­inu und­an­farna mán­uði. Björt fram­tíð mælist nú með 3,4 pró­sent fylgi og Viðreisn með 3,3 pró­sent.

Á sama tíma hafa nýju stjórn­mála­öflin Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins ítrekað fengið meiri stuðn­ing í könn­unum en sam­starfs­flokkar Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mið­flokk­ur­inn hefur enn ekki gefið út stefnu­skrá en mælist samt sem áður með 9,8 pró­sent stuðn­ing. Flokkur fólks­ins mælist nú með 7,4 pró­sent.

Sam­fylk­ingin sækir enn í sig veðrið og er nú með stuðn­ing 11,1 pró­sent kjós­enda miðað við kosn­inga­spána. Píratar halda áfram að tapa fylgi og eru með 9,9 pró­sent fylgi.

[chart]

Kosn­inga­spáin var raunar gerð tvisvar í dag, fyrst var hún upp­færð í takt við nýj­ustu könnun Frétta­blaðs­ins og Stöðvar 2 sem birt var í Frétta­blað­inu í morgun. MMR birti svo könnun sína síð­degis og þá var kosn­inga­spáin gerð aftur með nýj­ustu gögn­unum.

[links]Í línu­rit­inu hér að ofan er staðan í kosn­inga­spánni í dag merkt tvisvar, en dag­setn­ing fyrri útgáf­unnar merkt 10. októ­ber til þess að gera fram­setn­ingu gagn­anna skýr­ari.

Nánar má lesa um fram­kvæmd kosn­inga­spár­innar í kosn­inga­mið­stöð Kjarnans eða á vef Baldurs Héð­ins­sonar kosn­inga­spá.is. Þar má einnig lesa í þing­sæta­spána, þar sem líkur á því hvort fram­bjóð­endur nái kjöri eða ekki eru reikn­aðar.

Þær kann­anir sem kosn­inga­spáin byggir á 11. októ­ber 2017 eru:

  • Skoð­ana­könnun MMR 26. – 28. sept­em­ber (vægi 36,3%)
  • Skoð­ana­kann­anir Frétta­blaðs­ins, Stöðvar 2 og Vísis 2-3. okt og 10. okt (vægi 34,3%)
  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 2. – 6. októ­ber (vægi 29,4%)
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár