Helga Vala og Ágúst Ólafur leiða lista Samfylkingar í Reykjavík

Fyrr­ver­andi þing­maður Bjartrar fram­tíðar verður í einu af efstu sæt­unum á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík. Dagur B. Egg­erts­son og Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir eru á listum flokks­ins.

Þau fjögur sem skipa tvö efstu sætin á sitthvorum lista Samfylkingarinnar í Reykjavík í komandi kosningum.
Þau fjögur sem skipa tvö efstu sætin á sitt­hvorum lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík í kom­andi kosn­ingum. Mynd: Samfylkingin

Sam­fylk­ingin býður upp á nýja fram­bjóð­endur í efstu sætum lista sinna í báðum Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum. Helga Vala Helga­dóttir lög­maður verður í fyrsta sæti á fram­boðs­lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður og Páll Valur Björns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Bjartrar fram­tíðar, verður í öðru sæti list­ans í því kjör­dæmi. Eva H. Bald­urs­dóttir verður svo í þriðja sæti.

Ágúst Ólafur Ágústs­son, fyrr­ver­andi vara­for­maður flokks­ins sem hætti í stjórn­málum árið 2009, snýr aftur og leiðir flokk­inn í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður. Í öðru sæti verður Jóhanna Vigdís Guð­munds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri hjá Háskól­anum í Reykja­vík, en hún var í þriðja sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í því kjör­dæmi í kosn­ing­unum í fyrra. Í þriðja sæti lista þessa árs verður Einar Kárason rit­höf­undur. Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, eru 22. sæti, svoköll­uðu heið­urs­sæti, í sitt hvoru kjör­dæm­inu.

Sam­fylk­ingin er sem stendur ekki með neinn þing­mann í Reykja­vík en flokk­ur­inn beið sögu­legt afhroð í kosn­ing­unum í fyrra­haust. Þá fékk hann ein­ungis 5,7 pró­sent atkvæða og þrjá þing­menn, alla af lands­byggð­inni. Fyrir ári voru þau Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir og Helgi Hjörvar í efstu sæt­unum á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður en Össur Skarp­héð­ins­son leiddi í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður og Eva H. Bald­urs­dóttir var í öðru sæti. Hún fær­ist því niður um eitt sæti á list­anum í ár. Því liggur fyrir að engin þeirra þing­manna sem Sam­fylk­ingin hafði fram á síð­asta haust í Reykja­vík ætlar að reyna að kom­ast aftur á þing. Sigríður Ingi­björg er reyndar á lista, en situr í 21. sæti í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. Auk þeirra þriggja sem greint er frá hér að ofan mun Val­gerður Bjarna­dóttir heldur ekki sækj­ast eftir end­ur­komu.

Ágúst Ólafur Ágústs­son á 5,69 pró­sent hlut í móð­ur­fé­lagi Kjarnans sem hann eign­að­ist árið 2014. Hann hefur setið í stjórn mið­ils­ins. Í ljósi þess að Ágúst Ólafur hyggur á ný á stjórn­mála­þátt­töku hefur hann vikið úr stjórn og verður með öllu óvirkur eig­andi í félag­inu.

Reykjavík suður

  1. Ágúst Ólafur Ágústs­son, háskóla­kenn­ari
  2. Jóhanna Vigdís Guð­munds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri
  3. Einar Kárason, rit­höf­undur
  4. Ellert B. Schram, for­maður Félags eldri borg­ara í Reykja­vík og fyrrv. þing­maður
  5. Vilborg Odds­dóttir, félags­ráð­gjafi hjá Hjálp­ar­starfi Kirkj­unnar
  6. Þórarinn Eyfjörð, fram­kvæmda­stjóri SFR – stétt­ar­fé­lags og leik­stjóri
  7. Inga Auðbjörg Krist­jáns­dóttir Straum­land, vef­smiður, KaosPilot og athafna­stjóri
  8. Guð­mundur Gunn­ars­son, fyrrv. for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands
  9. Margrét M. Norðdahl, mynd­list­ar­kona
  10. Reynir Sig­ur­björns­son, raf­virki
  11. Sigríður Arndís Jóhanns­dóttir, verk­efna­stjóri á þjón­ustu­mið­stöð Mið­borgar og Hlíða
  12. Tómas Guð­jóns­son, stjórn­mála­fræði­nemi
  13. Kolbrún Birna Hall­gríms­dóttir, laga­nemi
  14. Hlal Jarah, veit­inga­maður á Mandi
  15. Ragn­heiður Sig­ur­jóns­dóttir, fjöl­skyldu­ráð­gjafi
  16. Reynir Vil­hjálms­son, eðl­is­fræð­ingur og fram­halds­skóla­kenn­ari
  17. Halla B. Thor­kels­son, fyrrv. for­maður Heyrn­ar­hjálpar
  18. Ída Finn­boga­dóttir, mann­fræð­ingur og vara­for­maður Ungra jafn­að­ar­manna í Reykja­vík
  19. Sigurður Svav­ars­son, bóka­út­gef­andi
  20. Signý Sig­urð­ar­dóttir, við­skipta­fræð­ingur
  21. Björgvin Guð­munds­son, við­skipta­fræð­ingur
  22. Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrrv. for­sæt­is­ráð­herra

Reykjavík norður

  1. Helga Vala Helga­dóttir, lög­maður
  2. Páll Valur Björns­son, grunn­skóla­kenn­ari
  3. Eva Bald­urs­dóttir, lög­fræð­ingur
  4. Þórarinn Snorri Sig­ur­geirs­son, for­maður Ungra jafn­að­ar­manna og stjórn­mála­fræð­ingur
  5. Nikólína Hildur Sveins­dóttir, mann­fræði­nemi
  6. Þröstur Ólafsson, hag­fræð­ingur
  7. Sigríður Ásta Eyþórs­dóttir (Sassa), iðju­þjálfi í Haga­skóla
  8. Hall­grímur Helgason, rit­höf­undur og mynd­list­ar­maður
  9. Anna Margrét Ólafs­dóttir, leik­skóla­stjóri
  10. Óli Jón Jónsson, kynn­ingar- og fræðslu­full­trúi BHM
  11. Edda Björg­vins­dóttir, leik­kona og menn­ing­ar­stjórn­andi
  12. Birgir Þór­ar­ins­son (Biggi veira), tón­list­ar­maður í GusGus og DJ
  13. Jana Thuy Helga­dóttir, túlkur
  14. Leifur Björns­son, rútu­bíl­stjóri og leið­sögu­maður
  15. Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, upp­eldis- og mennt­un­ar­fræð­ingur
  16. Hervar Gunn­ars­son, vél­stjóri
  17. Áshildur Har­alds­dóttir, flautuleik­ari
  18. Þorkell Heið­ars­son, líf­fræð­ingur og tón­list­ar­maður
  19. Ingi­björg Guð­munds­dóttir, hjúkr­un­ar­fræð­ingur
  20. Gunnar Lárus Hjálm­ars­son (Dr. Gunni), tón­list­ar­maður
  21. Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir, hag­fræð­ingur og fyrrv. þing­kona
  22. Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár