Stjórnarslit og kosningar: Hvað gerist í dag?

Hvaða spil hefur for­seti Íslands á sinni hendi? Formenn stjórn­mála­flokka hitta Guðna Th. Jóhann­es­son á Bessa­stöðum í dag.

Formenn stjórnmálmálaflokka ganga á fund forseta í dag.
Formenn stjórn­málm­ála­flokka ganga á fund for­seta í dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Föstu­dag­ur­inn 15. sept­em­ber var við­burða­ríkur dagur. Fjöl­miðlar keppt­ust við að fá úr því skorið hvort rík­is­stjórn­ar­sam­starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar væri raun­veru­lega lokið, sem það svo reynd­ist vera og vel það.

Útlit er fyrir að þessir flokkar geti ekki einu sinni starfað saman lengur í starfs­stjórn, enda skutu flokks­ráð og for­kólfar flokk­ana fast á sam­starfs­flokka sína í lok dags í gær.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, virt­ist síður en svo ánægður með fram­göngu Bjartar fram­tíðar í þessu máli. Hann kall­aði flokk Óttarrs Proppé „smá­flokk“ og lagði áherslu á að við stjórn þessa lands þyrftu að vera flokkar með „djúpar rætur, sem legð­ust ekki eins og strá í vindi“. Það þykir varla góður dómur um stjórn­mála­flokk.

Ráð­gjafa­ráð Við­reisnar ályktaði í gær að Bjarni Bene­dikts­son, Sigríður Andersen væri ekki stætt á ráð­herra­stóli á meðan rann­sakað væri hvernig farið hafi verið með per­sónu­upp­lýs­ingar í stjórn­ar­ráð­inu. Þau verði að víkja fram að kosn­ingum. Viðreisn þykir Brynjar Níelsson, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, einnig þurfa að segja af sér sem slíkur.

Guðni á leik

Nú er komið að Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands. Hann hygg­ist funda með öllum for­mönnum stjórn­mála­flokka sem eiga sæti á Alþingi í dag. Hann ætlar að gefa sér 45 mín­útur með hverjum og einum. Bjarni Bene­dikts­son gengur fyrstur á fund hans klukkan 11 í dag og svo koma þau koll af kolli til Bessa­staða eins og svo oft áður.

Það er ekki úr vegi að líta aðeins á þá leiki sem bjóð­ast for­set­anum í þeirri stöðu sem upp er komin.

[links]Það verður örugg­lega ekki mik­illa tíð­inda að vænta fyrr en að þessum fundum Guðna með stjórn­málafor­ingj­unum loknum. Þá mun for­set­inn hafa fengið góða mynd á það hvernig er í pott­inn búið.

Hlutverk Guðna verður í meg­in­at­riðum að tryggja að hér starfi rík­is­stjórn. Stjórn­ar­kreppur á borð við þá sem virð­ist blasa við – þegar aðstand­endur meiri­hluta­stjórnar þriggja flokka virð­ast vera svo í nöp við sam­starfs­fólk að það sýður upp úr með þeim hætti sem gerði í gær – eru fátíðar á Íslandi.

Guðni hefur nokkur spil á hendi í þeirri stöðu. Hans fyrsta útspil verður eflaust að bjóða sitj­andi rík­is­stjórn að sitja áfram fram að kosn­ingum, hvenær sem þær verða. Ef sú til­laga fær ekki und­ir­tektir mun for­set­inn reyna að setja saman rík­is­stjórn með aðkomu ann­arra flokka.

Sú stjórn gæti þess vegna brugðið sér í allra kvik­inda líki; Hún gæti verið meiri­hluta­stjórn, minni­hluta­stjórn eða þjóð­stjórn ef Guðni nær að beisla óvild­ina sem ríkir milli stjórn­mála­flokka á Alþingi.

Utanþingsstjórn er lokaúrræði

Eflaust er það aðeins loka­úr­ræði í huga for­set­ans að skipa utan­þings­stjórn. Aðeins ein slík rík­is­stjórn hefur setið á Íslandi. Sú stjórn sat í tvö ár á stríðs­ár­unum 1942 til 1944, áður en Lýð­veldið Ísland var stofnað.

Utan­þings­stjórn kann hins vegar að hljóma sem kunn­ug­legt hug­tak enda hefur slíkt stjórn­ar­fyr­ir­komu­lag borið á góma í gegnum tíð­ina þegar ein­stak­lega erf­ið­lega hefur gengið að mynda rík­is­stjórn með hefð­bundnum hætti. Stundum er talað um að for­seti geti beitt tali um utan­þings­stjórn sem svipu á flokks­for­menn til það reka þá áfram í samn­inga­um­leitan og stjórn­ar­myndun.

Dagskráin á Bessastöðum í dag

  • 11:00 – Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins
  • 13:00 – Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs
  • 13:45 – Birgitta Jóns­dóttir, for­maður þing­flokks Pírata
  • 14:30 – Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins
  • 15:15 – Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar
  • 16:00 – Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar
  • 16:45 – Logi Már Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár