Íslandi verði mörkuð ný staða í breyttum heimi

Viða­mesta úttekt sem unnin hefur verið á íslensku utan­rík­is­þjón­ust­unni hefur verið opin­beruð í skýrslu. Utan­rík­is­ráð­herra setti vinn­una af stað og segir mikið verk framundan.

Guðlaugur Þór Þórðarson er utanríkisráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son er utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í síbreyti­legum alþjóða­væddum heimi er mik­il­vægt að laga utan­rík­is­þjón­ust­una að breyt­ingum og nýjum áskor­unum. Lagt er til í nýrri skýrslu um fram­tíð utan­rík­is­þjón­ust­unnar, sem unnin var í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, að lögð verði enn meiri áhersla á efna­hags­legt stuðn­ings­hlut­verk utan­rík­is­þjón­ust­unnar, meðal ann­ars með gerð frí­versl­un­ar­samn­inga og stofnun útflutn­ings- og mark­aðs­ráðs.

Viðamikil úttekt

Þá er enn fremur gert ráð fyrir að stofnuð verði á nýjan leik sér­stök varn­ar­mála­skrif­stofa.

Í skýrsl­unni kemur fram viða­mesta út­tekt sem gerð hef­ur verið á störf­um ut­an­rík­isþjón­ust­unn­ar í um 20 ár, en síð­asta viða­mikla úttekt var unnin 1998.

Vinna við skýrsl­una hófst fyrr á þessu ári en hún var sett af stað af Guðlaugi Þór Þórðar­syni ut­an­rík­is­ráð­herra, en Sturla Sig­ur­jóns­son, nýskip­aður ráðu­neyt­is­stjóri í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, leiddi vinn­una. Aðrir í hópnum voru Andri Lúth­ers­son, Jörundur Val­týs­son, María Erla Mar­els­dóttir, Sigríður Á. Snævarr og Urður Gunn­ars­dóttir.

Nýtt áhættumat

Þegar kem­ur að ör­ygg­is- og varn­ar­mál­um er enn­frem­ur lagt til að hvatt verði til gerðar á nýju áhættu­mati fyr­ir Ísland á vett­vangi þjóðarör­ygg­is­ráðs­ins og til reglu­legra við­bragðsæf­inga ráðs­ins. Gerð verði sömu­leiðis aðgerða­á­ætl­un í ör­ygg­is- og varn­ar­mál­um. Meðal ann­ars um fram­lög og for­gangs­röðun Íslands varð­andi eig­in varn­ar­við­búnað.

Settar eru fram til­lögur í 8 liðum, þar sem lagt er að til að skerpt verði á hlut­verka­skipt­ingu inn á utan­rík­is­þjón­ust­unnar, t.d. að fasta­nefnd gagn­vart NATO fari með sam­skipti við ESB vegna öryggis- og varn­ar­mála, upp­lýs­inga­flæði milli fasta­nefnda verði bætt og að hafnar verði við­ræður við dóms­mála­ráðu­neytið um hugs­an­lega aukna þátt­töku full­trúa Land­helg­is­gæsl­unnar og Rík­is­lög­reglu­stjóra í fundum sér­fræð­inga á vegum NATO sem varða verk­svið ein­staka stofn­anna.

[adspot]

Breyttur heimur, nýjar áskoranir

Í skýrsl­unni eru lagðar fram 151 til­laga, þar sem rauði þráð­ur­inn er sá að marka stöð­una til fram­tíðar í takt við þær miklu breyt­inar eru að verða á efna­hag ein­stakra ríkja og svæða í heim­inum. Í skýrsl­unni er meðal ann­ars fjallað um hvernig fjár­hags­leg eigna­skipt­ing í heim­inum hefur breyst að und­an­förnu, og hvernig hlutur svo­nefndra nýmark­aðs­ríkja hefur vaxið gríð­ar­lega á skömmum tíma. Sem dæmi er nefnt að árið 2000 hafi fjár­hags­legar eignir verið 34 pró­sent hjá Banda­ríkj­unum, en árið 2020 er talið að hlut­fallið verði komið undir fjórð­ung af heild­inni, eða 24 pró­sent. Þetta er algjör kúvend­ing á stöðu mála, og er vöxt­ur­inn ekki síst mik­ill hjá Kína og öðrum nýmark­aðs­ríkjum.

Hlutur Vestur-Evr­ópu­ríkja mun fara úr 34 pró­sent árið 2000 niður í 22 pró­sent árið 2020, ef fram­heldur sem horfir.

Aukin sveigjanleiki, betri tengingar

Á grunni þess­ara breyt­inga er meðal ann­ars lagt til að utan­rík­is­þjón­ustan auki sveigj­an­leika, mark­aðs­starf og hag­muna­gæslu við þau svæði þar sem tæki­færi hafa skap­ast á und­an­förnum árum. „Eru þá ótalin þau fjöl­mörgu tæki­færi sem fel­ast í auknum við­skiptum og verslun við þennan heims­hluta og ein­skorð­ast fjarri því við Kína. Má þar nefna Japan og Indland sér­stak­lega, en einnig Singapúr, Tæland, Indónesíu og Víetnam. Því blasir við að utan­rík­is­þjón­ustan beini sjónum sínum í auknum mæli að mál­efnum suð­aust­an­verðrar Asíu,“ segir meðal ann­ars í skýrsl­unni.

Búast má við því að Guð­laugur Þór taki málin nú föstum tökum, og leiða fram breyt­ingar í takt við þau áherslu­mál sem fram koma í skýrsl­unni. En í til­kynn­ingu segir hann þó, að það sé langur vegur framundan, sem þurfi að feta af kost­gæfni og vanda til verka. „Með þess­ari skýrslu og til­lögu­gerð er mörkuð heild­stæð sýn á hvernig kröftum okkar verður best varið á næstu árum miðað við þau verk­efni og þau tæki­færi sem fram undan eru í alþjóð­legum efna­hags­málum, alþjóða­stjórn­málum, umhverf­is­málum, þró­un­ar­sam­vinnu og þar fram eftir göt­unum [...] Aldrei áður hefur verið ráð­ist í jafn umfangs­mikla rýni á starf­semi utan­rík­is­þjón­ust­unnar og þetta verður fyrsta skrefið á langri leið,“ segir Guð­laugur Þór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár