Arion banki færir niður allan eignarhlut sinn í United Silicon

Arion banki hefur lánað átta millj­arða króna til United Silicon í Helguvík. Óvissa er um hversu mikið af þeirri upp­hæð þarf að afskrifa.

Höskuldur H. Ólafsson er bankastjóri Arion banka.
Hösk­uldur H. Ólafsson er banka­stjóri Arion banka. Mynd: Arionbanki.is

Arion banki hefur fært niður 16,3 pró­sent eign­ar­hlut sinn í United Silicon að fullu í bókum sínum. Bankinn er auk þess með átta millj­arða króna útistand­andi við félagið, þar með talið lánslof­orð og ábyrgðir. Nið­ur­færslu­þörf á þeim lánum er enn óljós og háð fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu United Silicon. Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi Arion banka sem birtur var í dag.

United Silicon rekur kís­il­málm­verk­smiðju í Helguvík. Félagið óskaði eftir greiðslu­stöðvun 14. ágúst síð­ast­lið­inn. Ástæðan eru erf­ið­leikar í rekstri kís­il­málm­verk­smiðj­unni sem hóf fram­leiðslu í nóv­em­ber 2016, og rekja má til síend­ur­tek­inna bil­ana í bún­aði sem hafa valdið félag­inu miklu tjóni. Nýfall­inn gerð­ar­dómur í deilu félags­ins við ÍAV hf. eykur enn á óvissu félags­ins. Samkvæmt honum þarf United Silicon að greiða ÍAV um einn millj­arð króna.

Á meðal hlut­hafa og lán­veit­enda þess eru Arion banki og íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Í afkomutil­kynn­ingu Arion banka segir að ljóst sé að félagið þarfn­ist auk­ins fjár­magns svo bæta megi búnað og aðstöðu svo verk­smiðjan stand­ist fram­leiðslu­mark­mið og gæða­kröfur sem sett hafa verið. Því er ljóst að núver­andi hlut­hafar United Silicon hafa að öllum lík­indum tapað eign­ar­hlut sínum í félag­inu, lán­veit­endur þess munu þurfa að gefa eftir hluta af kröfum sínum og aukið fjár­magn þarf til svo að starf­semi verk­smiðj­unnar haldi áfram.

Ítrekuð áföll

Í afkomutil­kynn­ingu Arion banka er haft eftir Höskuldi H. Ólafs­syni, banka­stjóra bank­ans, að hann hefði lagt United Silicon til veru­legt lánsfé. „Horft var til fjöl­margra þátta við ákvörð­un­ina; öll leyfi voru til staðar, eft­ir­spurn og mark­aðs­verð afurð­ar­innar var gott, tæknin var marg­reynd, stjórn­völd og sveit­ar­fé­lagið voru áfram um fram­kvæmd­ina og að verk­efn­inu komu inn­lendir og erlendir sér­fræð­ingar og fjár­festar. Jafn­framt lá fyrir að reynsla af kís­il­verum var almennt góð og að um var að ræða verk­efni sem skap­aði bæði störf þar sem þörf var fyrir hendi og gjald­eyr­is­tekjur fyrir þjóð­arbú sem bjó við gjald­eyr­is­höft. Starf­semi United Silicon hófst svo í nóv­em­ber 2016 en því miður komu ítrekuð áföll upp í starf­sem­inni. Félagið hefur óskað eftir greiðslu­stöðvun og leitar nú nauða­samn­inga við kröfu­hafa. Arion banki fylgist náið með þróun mála og leggur félag­inu lið í greiðslu­stöðvun sem helsti lán­veit­andi þess. For­gangs­verk­efni er að klára nauð­syn­legar úrbætur á verk­smiðj­unni þannig að fram­leiðsla og umhverf­is­þættir starf­sem­innar verði í lagi til fram­búðar og verk­smiðjan starfi í sátt við sam­fé­lagið.“

Þrír lífeyrissjóðir fjárfestu fyrir 2,2 milljarða

Í síð­ustu viku var greint frá því að þrír íslenskir líf­eyr­is­sjóðir hefðu fjár­fest fyrir sam­tals 2,2 millj­arða króna í verk­efn­inu. Sjóð­irnir sem um ræðir eru Festa líf­eyr­is­­­sjóð­­ur, Frjálsi líf­eyr­is­­­sjóð­­ur­­inn og Eft­ir­­­launa­­­sjóður fé­lags ís­­­lenskra at­vinn­u­flug­­­manna (EFÍA). Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur fjár­fest mest, eða fyrir 1.178 millj­ónir króna. Festa lagði félag­inu til 875 millj­ónir króna í hlutafé og skulda­bréfa­lán. Allir þrír sjóð­irnir tóku þátt í hluta­fjár­­aukn­ingu í apríl og lögðu þá 460 millj­­ónir króna til við­­bótar í United Silicon.

Arion banki rekur auk þess Frjálsa líf­eyr­is­­­sjóð­inn og hann er til húsa í höf­uð­­­stöðvum bank­ans í Borg­­­ar­­­túni. Bank­inn skipar þrjá af sjö stjórn­ar­mönnum Frjálsa líf­eyr­is­sjóðs­ins sam­kvæmt sam­þykktum hans.

EFÍA er líka rek­inn af Arion banka. Í yfir­lýs­ingu sem sjóð­ur­inn birti á heima­síðu sinni fyrir helgi kom fram að heild­ar­fjár­fest­ing hans í verk­efn­inu væri 112,9 millj­ónir króna. Líkt og með aðrar sér­hæfðar fjár­fest­ingar hafi það verið stjórn sjóðs­ins sem tók ákvörðun um hana „að und­an­geng­inni ítar­legri grein­ingu sér­fræð­inga eigna­stýr­ingu Arion Banka.“ Fram­kvæmda­stjóri sjóðs­ins er starfs­maður Arion banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár