„Nýi Silkivegurinn“ tekur á sig mynd

Fyrsta vöru­flutn­inga­lestin sem sem flytur vörur eftir „Nýja Silki­veg­inum“ hefur hafi för sína. Hún fer frá London til hafn­ar­borgar á aust­ur­strönd Kína. Tilurð leið­ar­innar, sem tekur 18 daga, er liður í því að styrkja stöðu Kína enn frekar.

Xi JInping, forseti Kína.
Xi JInping, for­seti Kína. Mynd: EPA

Í vik­unni lagði fyrsta vöru­flutn­inga­lestin af stað frá London til hafn­ar­borg­ar­innar Yiwu á aust­ur­strönd Kína og mun hið tólf þús­und kíló­metra langa ferða­lag taka 18 daga. Lestin fer með fram hluta af hinum Nýja Silki­vegi; gríð­ar­stóru sam­göngu- og inn­viða­neti sem tengir Kína við gjörvalla Evrasíu.

Leið lest­ar­innar liggur í gegnum Vestur-Evrópu, Pólland, Hvíta-Rússland, Rússland og Kasakstan og er ætlað að koma til Yiwu þann 27. apríl. Ferða­lagið tekur mun styttri tíma en hinar hefð­bundnu versl­un­ar­sjó­leiðir sem taka um einn mánuð og er enn einn áfang­inn í „One Belt, One Road“ (OBOR)-inn­viða­á­ætlun Kína sem ætlað er að bæta til muna versl­un­ar­netið sem tengir Kína við Evrópu, Mið-Asíu og Mið­aust­ur­lönd.

Samkvæmt kín­verskum stjórn­völdum mun landið fjár­festa um fjórar billjónir banda­ríkja­dala í þeim sex­tíu löndum eða svo sem eiga aðild að OBOR-sam­starf­inu. Þó hún sé ekki að öllu leyti sam­bæri­leg má geta þess að Marshall-áætlun Banda­ríkj­anna sem beindi inn­viða­fjár­fest­ingu til banda­manna þeirra í Evrópu eftir seinni heims­styrj­öld nam um 130 millj­arða Banda­ríkja­dali. OBOR-áætl­unin er horn­steinn í utan­ríkis- og versl­un­ar­stefnu Xi Jinping, for­seta Kína, og hefur hún tök á því að breyta alþjóða­við­skipta­lands­lagi heims­ins; í dag eru tvö meg­in­versl­un­ar­svæði í heim­inum sem tengja Banda­ríkin við Evrópu ann­ars vegar yfir Atl­ants­hafið og Asíu hins vegar yfir Kyrra­hafið en OBOR-áætl­unin mun hafa Kína sem mið­depil.

Yfir sjó og land

Umfang OBOR-áætl­un­ar­innar er gríð­ar­stórt og sam­anstendur af versl­un­ar­neti, sam­göngu- og inn­viða­upp­bygg­ingu og auð­linda- og fram­leiðslu­verk­efnum. Olíu- og gasleiðslur á milli Kína og fjöl­margra Mið-Asíu­ríkja á borð við Kasakstan og Túrk­menistan, ásamt stækkun leiðslna á milli Kína og Rúss­lands er ætlað að stór­auka aðgengi Kína að orku­auð­lindum og gera sam­tímis Mið-Asíuríki ekki jafn háð Rúss­landi til útflutn­ings. Fjár­fest­ingar í lest­ar­sam­göngum á þvers og kruss um Evrasíu ásamt upp­bygg­ingu af vöru­flutn­inga­mið­stöðvum á borð við Khorgos á landa­mærum Kína og Kasakstan er ætlað að gera land­flutn­ingar að raun­hæfum val­kosti við flug- og sjó­flutn­inga og sam­tímis stuðla að iðn­að­ar­upp­bygg­ingu með fram versl­un­ar­leið­unum í löndum sem hafa orðið fyrir barð­inu á lágu olíu­verði und­an­farin ár.

Þá hafa OBOR-fjár­fest­ingar einnig átt sér stað víðar. Fjár­fest­ingar hafa átt sér stað í innviðum í hafn­ar­borg­inni Piraeus í Grikk­landi og bygg­ing háhraðalest­ar­leiða þaðan til Ung­verja­lands og Þýska­lands eru í bígerð. Þá hafa kín­verskar fjár­fest­ingar flætt til inn­viða­upp­bygg­ingar í Pakístan í gegnum China-Pakistan Economic Corridor (CPEC)-áætl­un­ina svoköll­uðu til að auð­velda vöru­flutn­inga til hafnar og þannig draga úr vægi sjó­flutn­inga um Malakka­sund. Meðal ann­arra borga sem nefndar eru sem hluti af OBOR-áætl­un­inni eru Istanbúl, Duisburg, Rott­er­dam, Feneyjar, Naíróbí, Kólombó og Kúala Lúmpúr. Að svo stöddu er áætl­unin til­tölu­lega óskýr hvað varðar upp­hæðir og tímara­mma enda eru umsvif hennar gríð­ar­leg.

Hvað liggur að baki?

Ástæður OBOR-áætl­un­ar­innar eru margar og eru bæði af efna­hags­legum og póli­tískum toga. Kín­verjar eru aldr­andi þjóð þar sem með­al­aldur hefur auk­ist hratt vegna fjöl­skyldu­skipu­lags­stefnu stjórn­valda. Þessi lýð­fræði­lega þróun sam­hliða miklum hag­vexti setur þrýst­ing á stjórn­völd til að reyna að auka meðal fram­leiðslu á íbúa. Ein hugs­unin á bak­við OBOR-áætl­un­ina er að færa lág­kostn­að­ar­fram­leiðslu, sem var und­ir­staða hag­vaxtar í Kína í ára­tugi, til landa þar sem launa­kostn­aður er lægri og ein­beta sér að vand­aðri fram­leiðslu inn­an­lands. Einnig hvetja kín­versk stjórn­völd fyr­ir­tæki til að fjár­festa erlendis til þess að geta flutt út hluta af yfir­fram­leiðslu lands­ins á iðn­að­ar­vörum á borð við stál og þung­iðn­að­ar­búnað og minnka vægi inn­viða­fjár­fest­inga inn­an­lands sem hluta af efna­hag lands­ins með því að flytja út fjár­magn til slíkra fjár­fest­inga.

Þá líta kín­versk stjórn­völd á OBOR sem leið til að auka við­skipta­völd sín og ítök sem hluta af utan­rík­is­stefnu lands­ins. Kína hefur sett á lagg­irnar fjöl­margar stofn­anir til að halda utan um fjár­veit­ingar til inn­viða­verk­efna og má þá helst nefna Inn­viða­fjár­fest­inga­banka Asíu (AIIB) – sem Ísland er stofn­að­ili að – sem settur var á lagg­irnar í fyrra með eitt hund­rað millj­arða Banda­ríkja­dali í stofnfé og Silk Road Fund, sem í eru um fjöru­tíu millj­arðar Banda­ríkja­dalir. Xi Jinping von­ast til að auka and­virði versl­unar við OBOR-ríkin um tvær og hálfa billjón á næstu tíu árum og vanda betur kín­verskar fjár­fest­ingar erlendis. Þar er verið að miða við inn­viða­fjár­fest­ingar á fyrsta ára­tug þess­arar aldar, sem voru að miklu leyti í Afríku og Suður-Ameríku, og skil­uðu oft á tíðum tak­mörk­uðum efna­hags­legum og póli­tískum ávinn­ingi.

Metn­að­ur­inn á bak við OBOR-áætl­un­ina og Nýja Silki­veg­inn er mik­ill og gefur Kína færi á að styrkja stöðu sína enn frekar sem drif­krafts alþjóða­við­skipta og hnatt­væð­ingar, sér­stak­lega í kjöl­far þess að TPP-frí­versl­un­ar­við­ræð­urnar sem Banda­ríkin áttu við fjöl­mörg lönd í kringum Kyrra­hafið, en þó ekki með Kína, runnu út í sand­inn. Fjármagn, inn­viða­kunn­átta, efna­hags­leg þróun innan Kína, og gíf­ur­leg þörf á inn­viða­fjár­fest­ingum í Asíu og Afríku gera það að verkum að OBOR-áætl­unin gæti verið lyk­ildrif­kraftur í heims­hag­kerf­inu næstu ár og ára­tugi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár