Borgin ætlar að byggja 1.250 íbúðir á ári

Reykja­vík­ur­borg hefur upp­fært áætl­anir sínar og vill nú að 1.250 íbúðir verði byggðar á ári næstu árin. 2.500 íbúðir eru þegar í bygg­ingu og annað eins hefur verið sam­þykkt í deiliskipu­lagi.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Birgir Þór

Reykja­vík­ur­borg ætlar að ná því að byggja 1.250 íbúðir á ári næstu árin til þess að mæta þörf á hús­næði. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi og svo á borg­ar­stjórn­ar­fundi í Reykja­vík í dag. Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri kynnti drög að hús­næð­is­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar á báðum fundnum.

Áður hafði verið stefnan að byggja um 700 íbúðir á ári næstu fimm ár, en vegna fjölg­unar starfa og áhrifa íbúða­gist­ingar, Airbnb, þurfi nú að byggja 1.250 íbúðir á ári.

2.577 íbúðir eru í bygg­ingu í borg­inni, sam­kvæmt því sem fram kemur í drögum að hús­næð­is­á­ætlun. Mest er upp­bygg­ingin á Hlíð­ar­enda þar sem 600 íbúðir munu rísa, og á RÚV-lóð­inni í Efsta­leiti, þar sem 360 íbúðir munu rísa. 280 íbúðir eiga að rísa í öðrum áfanga Bryggju­hverfis og 203 í Einholti og Þver­holti.

Til við­bótar við þetta hefur verið sam­þykkt deiliskipu­lag fyrir 2.750 íbúðir, en stærsti hluti þess er í Voga­byggð, þar sem áætl­aðar eru 776 íbúðir. Auk þess eru 4.117 íbúðir á svæðum sem eru í skipu­lags­ferli og 9.355 íbúðir á þró­un­ar­svæðum sem eru í skoðun eða und­ir­bún­ingi.

[adspot]

Frá árs­byrjun þessa árs og til árs­loka 2020 er áætlað að borgin úthluti eða sam­þykki upp­bygg­ingu á um 7.600 íbúðum. Til við­bótar er áætlað að bygg­ing verði hafin á tæp­lega 4.000 íbúðum á vegum stærri bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja.

Í Reykja­vík í dag eru tæp­lega 52 þús­undir íbúða og íbúð­ar­ein­ingar. Með­al­stærð þeirra eru 110 m2 og fjöldi fer­metra á hvern íbúa er um 45 m2.

Í mati Samtaka iðn­að­ar­ins á upp­bygg­ingu íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fyrir nokkrum vikum kom fram að 1.228 íbúðir væru í bygg­ingu í Reykja­vík. SI meta íbúðir í bygg­ingu með öðrum hætti heldur en borgin, sem skýrir þann mun sem er á taln­ingum. Samkvæmt SI eru nú færri íbúðir í bygg­ingu heldur en í sept­em­ber síð­ast­liðn­um. Þá voru 1.266 íbúðir í bygg­ingu en nú í febr­úar voru þær sem fyrr segir 1.228. Langstærstur hluti þeirra íbúða sem verið er að byggja eru íbúðir í fjöl­býli, 1.181 tals­ins, á meðan verið er að byggja 34 rað- eða par­hús og 13 ein­býl­is­hús í borg­inn­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár