AGS: Gæði bankaeigenda mikilvægari en hraði og verð

Sendi­nefnd Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins segir að hvorki hraði né verð eigi að ráða banka­sölu, heldur gæði nýrra eig­enda. Hún telur að hægt sé að lækka vexti og að mögu­lega eigi að banna eigi líf­eyr­is­sjóðum að lána til hús­næð­is­kaupa.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir að það skipti meira máli hverjir fái að handsala kaup á íslenskum bönkum en hversu hratt það gerist og hvaða verð fæst fyrir þá.
Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn segir að það skipti meira máli hverjir fái að hand­sala kaup á íslenskum bönkum en hversu hratt það ger­ist og hvaða verð fæst fyrir þá. Mynd: Copyright: <a href='https://www.123rf.com/profile_violetkaipa'>violetkaipa / 123RF Stock Photo</a>

Sendi­nefnd Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS) telur mjög mik­il­vægt að gæði nýrra eig­enda að bönkum lands­ins verði for­gangs­mál þegar þeir verða seldir, ekki hversu hratt sé hægt að selja þá eða hvaða verð fæst fyrir. Hún leggur áherslu á fyr­ir­huguð einka­væð­ing rík­is­bank­anna tveggja, Lands­bank­ans og Íslands­banka, verði þol­in­mótt ferli þar sem áhersla verði lögð á að finna stra­tegíska eig­endur sem ætli sér að fjár­festa í bönk­unum til lengri tíma og séu íhalds­samir í nálgun sinni. Þá feli kaup þriggja vog­un­ar­sjóða og Goldman Sachs á stórum hlut í Arion banka í sér áskor­anir fyrir Fjár­mála­eft­ir­litið. Mats­ferli þess á hæfi aðil­anna til að eiga íslenskan við­skipta­banka þurfi að vera nákvæmt, ósveigj­an­legt og óhlut­drægt.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem hún hefur sent frá sér eftir tveggja vikna úttekt á stöðu mála á Íslandi. Á meðan að á vinnu nefnd­ar­innar, sem var stýrt af Ashok Bhatia, stóð áttu hún fundi með full­trúum stjórn­valda, Seðla­banka Íslands, aðilum vinnu­mark­að­ar­ins og full­trúum einka­geirans.

Breytist úr svefnmarkaði í samkeppnismarkað

Nefndin eyðir umtals­verðu púðri í að fjalla um fram­tíð íslenska banka­kerf­is­ins í yfir­lýs­ingu sinni. Þar minn­ist hún sér­stak­lega á nýlega sölu á 29,18 pró­sent hlut í Arion banka til þriggja vog­un­ar­sjóða og Goldman Sachs, sem síðan eiga kaup­rétt á 21,9 pró­sent hlut til við­bótar í bank­anum. AGS segir að þetta séu eig­endur sem séu lík­legir til að sækj­ast eftir háum arð­greiðslum, sölu á eignum út úr bank­anum og ýmiss konar end­ur­skipu­lagn­ingu til hag­ræð­ingar. Það séu allt kraftar sem muni auka sam­keppni á banka­mark­aði. Í raun muni hann umbreyt­ast úr svefn­mark­aði yfir í markað sem verði með mikla sam­keppni. Slík gæti leitt af sér kerf­is­læga áhættu og ógnað fjár­mála­legum stöð­ug­leika.

Styrkja þurfi alla laga- og reglu­um­gjörð í kringum fjár­mála­kerfið og auka eft­ir­lit með því. Auk þess þurfi að tryggja sjálf­stæði þess eft­ir­lits með skýr­ari hætti. Ein leið til þess væri sú að sam­eina allt eft­ir­lit með bönkum hjá Seðla­banka Íslands en láta Fjár­mála­eft­ir­lit­inu eftir eft­ir­lit með annarri fjár­mála­starf­semi. Leggja þurfi áherslu á að fá hágæða­eig­endur að íslenskum bönkum.

Ferðamenn eru ekki síld

AGS bendir á þá aug­ljósu breyt­ingu að ferða­þjón­usta hafi umbylt íslenska raun­hag­kerf­inu. Það sé jákvæð þróun og vís­bend­ingar ann­ars staðar frá bendi ekki til þess að ferða­mönnum muni fækka skyndi­lega. Ferða­menn eru ekki síld, segir sendi­nefndin og vísar þar til þess þegar síldin hvarf frá Íslands­ströndum með gríð­ar­legum efna­hags­legum afleið­ingum fyrir land og þjóð.

Nefndin segir þó að jafn­væg­is­raun­gengi íslensku krón­unnar þurfi að hækka ef styrkur ferða­þjón­ustu reyn­ist var­an­legur. „Geng­is­hækkun hefur demp­andi áhrif og beinir hag­kerf­inu í átt að sjálf­bærum vaxt­ar­ferli. Sann­ar­lega felur þetta í sér áskorun fyrir sumar útflutn­ings­greinar, þ.á.m. nýsköpun. Í sjáv­ar­út­vegi getur orðið sam­þjöppun og áfram­hald­andi vel­gengni veltur á inn­leið­ingu full­komn­ustu tækni­lausna. Tafin áhrif styrk­ingar krón­unnar og rýrn­andi við­skipta­kjör munu smám saman draga úr afgangi á vöru- og þjón­ustu­við­skiptum.“

Vilja mögulega banna lánveitingar lífeyrissjóða

Þá er fjallað um mál mál­anna á Íslandi í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar, nefni­lega hús­næð­is­mál. Þar segir að þrýst­ingur á hús­næð­is­mark­aði geti leitt til ofhitn­unar. Vöxtur íbúða­lána sé enn hóf­legur en sé að aukast og það kalli á aðgætni. „Þjóð­hags­var­úð­ar­tækjum skal beita eftir þörfum, þ.á.m. nýjum tækjum er tak­marka lán­veit­ingar í erlendri mynt til óvar­inna aðila og mögu­lega banna lán­veit­ingar líf­eyr­is­sjóða. Eft­ir­spurn á íbúða­mark­aði gæti áfram auk­ist umfram nýbygg­ingar og þrýst hús­næð­is­verði upp á við. Ef hækk­andi fram­færslu­kostn­aður fælir erlent vinnu­afl frá gæti vinnu­mark­að­ur­inn ofhitnað. Frekari háar launa­hækk­anir gætu aukið enn á inn­lendan eft­ir­spurn­ar­þrýst­ing.“

Sjóð­ur­inn kemst að þeirri niðu­stöðu að frek­ari vaxta­lækk­anir séu ekki endi­lega í and­stöðu við þá stefnu að halda verð­bólgu undir 2,5 pró­sent mark­miði, en hún hefur verið þar í rúm þrjú ár. Verð­bólgu­mark­miðið hafi skilað góðum árangir og eftir því sem styrk­ing krón­unnar bætir verð­bólgu­horfur gæti mynd­ast svig­rúm til vaxta­lækk­unar. „ Fjár­magns­út­flæði gæti vita­skuld átt sér stað, sér í lagi ef óábyrg stefna eða yfir­lýs­ingar grafa undan trausti. Við slík skil­yrði yrði vaxta­hækkun nauð­syn­leg.“

Vilja SALEK-ferlið áfram

AGS segir að það sé ákveð­inn sigur að lög um opin­ber fjár­mál hafi mótað umræð­una um fjár­mála­stefnu hins opin­bera og að þau hafi lifað af síð­ustu kosn­ingar. Fjárlög árs­ins 2017 boði hins vegar of mikil útgjöld þegar jafn vel árar og búist sé við áfram­hald­andi kröft­ugum hag­vexti. „Fjár­magna verður útgjöld af skyn­semi og stjórn­völd verða að vera reiðu­búin til að herða á rík­is­fjár­málum ef alvar­leg áhætta á ofhitnun raun­ger­ist. Stjórn­völd ættu að íhuga skatta­úr­bætur, með áherslu á óbeina skatta. Seinna meir gæti mynd­ast svig­rúm til veru­legra auk­inna útgjalda á sviði inn­viða, heilsu­þjón­ustu og mennt­unar, að und­an­geng­inni gagn­gerri end­ur­skoðun útgjalda.“

Þá leggur nefndin áherslu á að vinna við úrbætur á kjara­samn­ings­ferl­inu, á grund­velli SALEK-sam­komu­lags­ins, haldi áfram. „Aðilar vinnu­mark­að­ar­ins hafa gert drög að nýju lík­ani sem bygg­ist á sam­keppn­is­stöðu og ætti að leggja áherslu á inn­leið­ingu þess fyrir samn­inga­lot­una árið 2018. Sömu­leiðis er aðkallandi að þróa heild­stæða ferða­þjón­ustu­stefnu. Vöxtur grein­ar­innar hefur reynt veru­lega á inn­viði og opin­bera þjón­ustu. Gagnlegt gæti verið að stofna nefnd helstu aðila sem hefur það hlut­verk að tryggja nægj­an­lega fjár­mögnun og virka sam­þætt­ingu leyf­is­veit­ing­ar­reglna, upp­bygg­ingar inn­viða og umhverf­is­verndar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár