Stendur enn til að skrá Arion banka á markað í haust

Fjár­fest­arnir sem keyptu 29,18 pró­sent í Arion banka í gær munu nýta sér kaup­rétt til að verða meiri­hluta­eig­endur í bank­anum áður en almennt útboð og skrán­ing hans á markað fer fram.

Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka.
Hösk­uldur Ólafsson, banka­stjóri Arion banka.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans stendur enn til að skrá Arion banka á markað á Íslandi og Svíþjóð, þrátt fyrir að fjórir erlendir aðilar hafi keypt 29,18 pró­sent hlut í bank­anum í gær. Stefnt er að því að skrán­ingin eigi sér stað í haust.

Áður en af henni verður mun hóp­ur­inn sem keypti stóran hlut í bank­anum í gær nýta for­kaups­rétt sinn á 21,9 pró­sent hlut til við­bótar og þar með eiga 51,08 pró­sent hlut í Arion banka. Verðið sem greitt verður fyrir síð­ari kaupin er yfir því kaup­verði sem greitt var í lok­aða útboð­inu sem lauk um helg­ina. Ekki fást hins vegar upp­lýs­ingar hjá Kaup­þingi um hvert verðið sem greitt verður fyrir 21,9 pró­sent hlut­inn á að vera.

[links]

Eftir mun standa 35,92 pró­sent hlutur sem seldur verður í aðdrag­anda skrán­ingar á markað. Til greina kemur, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans, að selja hluta þess hluta­fjár til fag­fjár­festa í stærri við­skiptum fyrir skrán­ingu og afgang­inn síðan í almennu útboði. Ljóst er að um verður að ræða stærstu skrán­ingu eft­ir­hrunsár­anna, en eigið fé Arion banka var 211 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót.

Leynd yfir því hverjir eru endanlegir eigendur

Í gær var til­kynnt að vog­un­ar­sjóð­irnir Taconic Capital, Och-Ziff Capital og Attestor Capital hefðu ásamt fjár­fest­inga­bank­anum Goldman Sachs keypt 29,18 pró­sent hlut í Arion banka á 48,8 millj­arða króna í lok­uðu útboði. Fjár­fest­arnir fá einnig kaup­rétt á 21,9 pró­sent hlut til við­bótar á verði sem hefur ekki verið upp­gef­ið, en er sagt hærra en það sem þeir greiddu í þess­ari lotu.

[adspot]

Allir kaup­end­urnir eru á meðal eig­enda Kaup­þings, félags­ins sem seldi hlut­ina.

Þótt gefin hafi verið upp nöfn þeirra vog­un­ar­sjóða sem voru að kaupa hlut í íslenskum við­skipta­banka, og nafn fjár­fest­inga­bank­ans Goldman Sachs, þá liggur ekk­ert fyrir um hverjir það eru sem voru að kaupa Arion banka. Þ.e. hverjir séu end­an­legir eig­endur þess fjár­magns sem verið er að nota. Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) mun auk þess ekki fara yfir æfi þeirra vog­un­ar­sjóða sem keyptu stóran hlut í Arion banka í gær til að fara með virkan eign­ar­hlut í bank­an­um. Ástæðan er sú að þeir tveir sjóðir sem tóku stærstu stöð­una, Taconic Capital og Attestor Capital, keyptu 9,99 pró­sent hlut hvor. Til að FME meti hæfi aðila til að fara með virkan eign­ar­hlut þurfa þeir að eiga í minnsta lagi tíu pró­sent hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár