FME segir að birta verði nöfn allra sem eigi yfir eitt prósent í banka

Fjár­mála­eft­ir­litið mun ekki meta hvort nýir eig­endur Arion banka séu hæfir sem virkir eig­endur. Stærstu nýju eig­end­urnir eiga 9,99 pró­sent en þurfa að eiga tíu pró­sent til að eft­ir­litið fram­kvæmi mat.

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) var upp­lýst um kaup á eign­ar­hlut í Arion banka og var í aðdrag­anda þeirra í sam­skiptum við við­eig­andi aðila vegna máls­ins. Þá á Fjár­mála­eft­ir­litið von á til­kynn­ingum um virka eign­ar­hluti í Arion banka vegna mögu­legs auk­ins eign­ar­hlutar. Á grund­velli slíkra til­kynn­inga leggur Fjár­mála­eft­ir­litið mat á hæfi aðila til að fara með eign­ar­hlut­inn og aflar meðal ann­ars upp­lýs­inga um raun­veru­lega eig­endur þeirra. Þetta kemur fram í frétt á vef eft­ir­lits­ins.

[links]

Þar segir einnig: „Fjár­mála­eft­ir­litið vekur athygli á því að fjár­mála­fyr­ir­tækjum ber að til­greina nöfn og hlut­falls­legt eign­ar­hald allra þeirra sem eiga umfram eitt pró­sent hluta­fjár á heima­síðu sinni. Sé lög­að­ili eig­andi hluta­fjár umfram eitt pró­sent skal jafn­framt koma fram hvaða ein­stak­lingur eða ein­stak­lingar séu raun­veru­legir eig­endur við­kom­andi lög­að­ila.“

FME mun hins vegar ekki fara yfir hæfi þeirra vog­un­ar­sjóða sem keyptu stóran hlut í Arion banka í gær til að fara með virkan eign­ar­hlut í bank­anum. Ástæðan er sú að þeir tveir sjóðir sem tóku stærstu stöð­una, Taconic Capi­tal og Attestor Capi­tal, keyptu 9,99 pró­sent hlut hvor. Til að FME meti hæfi aðila til að fara með virkan eign­ar­hlut þurfa þeir að eiga í minnsta lagi tíu pró­sent hlut. 

[adspot]

Í frétt FME segir:„Með umræddum kaupum fjög­urra fjár­festa á tæp­lega 30 pró­sent eign­ar­hlut í Arion banka mynd­ast ekki nýr virkur eign­ar­hlutur í bank­anum þar sem ein­stakir fjár­festar fara með minna en 10% eign­ar­hlut. Kaupin hafa ekki áhrif á skil­yrði sem Fjár­mála­eft­ir­litið setti árið 2010 fyrir virkum eign­ar­hlut Kaup­þings í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið Kaupskil í bank­anum sem m.a. tak­marka veru­lega áhrif hlut­hafa Kaup­þings á stjórnun bank­ans, en umræddir fjár­festar fara beint eða óbeint með eign­ar­hlut í Kaup­þingi. Fjár­mála­eft­ir­litið hefur áskilið sér rétt til að taka upp ofan­greind skil­yrði og hefur sett fram tíma­mörk í því skyni. Umræddum eign­ar­hlutum fylgir ekki atkvæð­is­réttur að svo stöddu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár