Gjaldþrota verktakafyrirtæki vann meiðyrðamál gegn sérfræðingi ASÍ

Menn í vinnu fóru í mál við sér­fræð­ing ASÍ í vinnu­staða­eft­ir­liti vegna ummæla sem hún lét falla í fréttum Stöðvar 2. Tvenn ummæli voru dæmd dauð og ómerk, en ummæli um nauð­ung­ar­vinnu og þræla­hald fyr­ir­tæk­is­ins voru talin í lagi. Drífa Snædal, for­seti ASÍ, ber fullt traust til starfs­manna vinnu­staða­eft­ir­lits sam­bands­ins.

Gjaldþrota verktakafyrirtæki vann meiðyrðamál gegn sérfræðingi ASÍ

Dómur féll í dag í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur um meið­yrða­mál fyr­ir­tæk­is­ins Menn í vinnu gegn Maríu Lóu Frið­jóns­dóttur, sér­fræð­ingi Alþýðu­sam­bands Íslands í vinnu­staða­eft­ir­liti. Tilefni meið­yrða­máls­ins var ummæli sem féllu í fréttum Stöðvar 2 þann 7. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þrenn ummæli Maríu Lóu voru kærð; tvenn þeirra um greiðslur fyr­ir­tæk­is­ins til starfs­fólks síns voru dæmd dauð og ómerk.

Mátti kalla starf­sem­ina þræla­haldMaría Lóa Frið­jóns­dóttir hefur lengi starfað við vinnu­staða­eft­ir­lit stétt­ar­fé­laga, en áður en hún tók til starfa hjá ASÍ var hún verk­efna­stjóri vinnu­stað­ar­eft­ir­lits á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum. Forseti ASÍ hefur lýst fullu trausti á hana og störf hennar, þrátt fyrir dóm hér­aðs­dóms.

Hér­aðs­dómur taldi hins vegar að Maríu Lóu hafi verið frjálst að segja eft­ir­far­andi ummæli: „Að mínu mati er þetta nauð­ung­ar­vinna og þræla­hald. Þetta er mjög slæm aðstaða.“

Starfsmaður nýtur fulls trausts

ASÍ sendi til­kynn­ingu frá sér í dag um málið þar sem það sagði heild­ar­nið­ur­stöðu dóms­ins vera „umdeil­an­lega“, en fagn­aði því að starfs­maður hefði mátt lýsa raun­veru­legum aðstæðum starfs­fólks Menn í vinnu. Drífa Snædal, for­seti ASÍ, lýsir þar að auki yfir fullu trausti á Maríu Lóu og alls starfs­fólks síns sem „end­ur­óma veru­leika“ fólks á vinnu­mark­að­inum.

„Félagar í ASÍ mega vera afskap­lega stoltir af eft­ir­lits­fólki hreyf­ing­ar­innar“

„Félagar í ASÍ mega vera afskap­lega stoltir af eft­ir­lits­fólki hreyf­ing­ar­innar sem sinna erf­iðum störfum í bar­átt­unni fyrir betri vinnu­mark­aði,“ segir Drífa Snædal í frétta­til­kynn­ing­unni. „Starfs­menn í vinnu­staða­eft­ir­liti ASÍ hafa unnið þrek­virki við að gæta hags­muna vinn­andi fólks og nýtur órofa stuðn­ings og fulls trausts í sínum störfum. Alþýðu­sam­bandið leitar stöðugt leiða til að efla eft­ir­lit enda er full ástæða til að hafa sér­stakar áhyggjur af fólki af erlendum upp­runa sem kemur í gegnum starfs­manna­leigur á íslenskan vinnu­markað, nauð­ung­ar­vinna og þræla­hald verður aldrei liðið á íslenskum vinnu­mark­aði.“

Fyr­ir­tækið Menn í vinnu rataði í fréttir í febr­úar eftir að ASÍ kall­aði saman full­trúa Vinnu­eft­ir­lits­ins, Vinnu­mála­stofn­unar, Rík­is­skatt­stjóra og lög­reglu vegna aðstæðna laun­þega. Hópur af rúm­enskum rík­is­borg­urum kom til lands­ins á vegum fyr­ir­tæk­is­ins, en þeir sögðu að fyr­ir­tæki hefði boðið þeim vinnu á fölskum for­sendum þar sem van­þekk­ing þeirra á íslenskum lögum hefði verið notuð gegn þeim til að borga þeim ólög­lega lág laun og draga þar að auki leigu af þeim.

Menn í vinnu var tekið til gjald­þrota­skipta í sept­em­ber síð­ast­liðnum. ASÍ hefur ekki ákveðið hvort dómnum verði áfrýjað, en tekur fram í frétta­til­kynn­ing­unni að til standi að „efla vinnu­staða­eft­ir­lit verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar enn frekar á næstu mán­uðum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Starfsfólk launalaust fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Sternu
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár