Á landamærunum

Sunna Dís Más­dóttir er á þriggja mán­aða ferða­lagi um Mexíkó, Gvatemala og Belís ásamt eig­in­manni og tveimur sonum. Eftir sex vikna róleg­heit í Oaxaca-fylki í Mexíkó liggur leiðin upp á háslétt­una og á vit ævin­týr­anna – sem bíða raunar strax á landa­mær­unum.

Á landamærunum

Hádeg­is­sólin er brenn­heit í landamæra­bænum La Mesilla. Hún steikir á okkur hnakk­ann á meðan við burð­umst með far­ang­ur­inn okkar eftir mark­aðs­göt­unni. 

Við lögðum af stað frá fjalla­borg­inni San Cristóbal de las Casas, í Chiapas, syðsta hér­aði Mexíkó, um hálf sjö að morgni. Í La Mesilla stað­næm­ist litla rútan á troðnu bíla­stæða­plani og far­þeg­arnir ryðj­ast út í hit­ann.

Gvatemölsku landamæra­verð­irnir stimpla pass­ana okkar og fara ekki fram á auka­greiðslur, eins og við höfðum lesið okkur til um að gæti vel gerst. Við fögnum því, erum ekki með mikið lausafé á okkur, hvorki pesóa né quetzali. Samkvæmt plani á enda stoppið hér í La Mesilla að vera stutt og næst liggur leiðin til Quetzaltenango, eða Xela, eins og inn­fæddir kalla borg­ina bless­un­ar­lega. Okkur er létt, við köstum mæð­inni, teygjum úr okkur og tyllum okkur á flísa­lögðu þrepin sem við vitum ekki þá að verða sama­staður okkar næstu átta tím­ana. 

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár