Benedikt verði forsætisráðherra í breiðri stjórn

Formenn hins nýlega mynd­aða miðju­banda­lags frjáslyndu flokk­anna Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar fund­uðu með Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manni Vinstri grænna, á mið­viku­dag og þá var viðruð sú hug­mynd að allir flokk­arnir þrír myndu mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki. For­sæt­is­ráð­herra í þeirri rík­is­stjórn yrði Benedikt Jóhann­es­son. Þessi fundur fór fram sama dag og Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, var afhent stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð af for­seta Íslands. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Þar segir einnig að Benedikt hafi fal­ast eftir stuðn­ingi Pírata til að fá stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð áður en það var afhent Bjarna. Þeir urðu ekki við þeirri beiðni. Einungis tveir for­menn töldu að Benedikt ætti að fá það, Viðreisn og Björt fram­tíð. Ákvörðun Óttarrs Proppé að mæla með Benedikt, og ganga síðar í sam­starf við Viðreisn við myndun rík­is­stjórnar, hefur ekki mælst vel fyrir hjá hinum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum. Björt fram­tíð hafði myndað óform­legt banda­lag með þeim fyrir kosn­ingar og búist hafði verið við að það myndi halda og að reynt yrði að mynda stjórn frá miðju til vinstri. Svo er ekki og nú standa yfir við­ræður milli Sjálf­stæð­is­flokks ann­ars vegar og Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar hins vegar um að mynda nýja stjórn. Helst er vilji til þess að slík stjórn verði styrkt með einum flokki til við­bótar og hafa Sjálf­stæð­is­menn þrýst á að Framsókn verði hleypt að. Það hafa við­semj­endur flokks­ins úti­lokað. Báðir aðilar gætu sætt sig við Vinstri græna ef saman næð­ist um mál­efni en ljóst er að innan her­búða þess flokks er lít­ill sem eng­inn vilji til að vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum í rík­is­stjórn, að minnsta kosti ekki fyrr en reynt hefur verið á myndun ann­ars konar rík­is­stjórnar.

DV greinir frá því í dag að í könnun sem Gallup gerði rétt fyrir kosn­ingar hafi komið í ljós að tæp 40 pró­sent stuðn­ings­manna Bjartrar fram­tíðar hafi viljað að Katrín Jak­obs­dóttir yrði næsti for­sæt­is­ráð­herra. Það er nán­ast sama hlut­fall þeirra og vildi að for­maður flokks­ins, Óttarr Proppé, sæti á þeim stóli. Stuðn­ings­menn Bjartrar fram­tíðar höfðu lít­inn sem engan áhuga á að Benedikt Jóhann­es­son yrði for­sæt­is­ráð­herra og enn minni á því að Bjarni Bene­dikts­son tæki við emb­ætt­inu. Í umræddri könnun kom fram að 40 pró­sent allra aðspurðra, sama hvaða flokk þeir studdu, vildu að Katrín yrði næsti for­sæt­is­ráð­herra. Bjarni Bene­dikts­son var með 26 pró­sent stuðn­ing í emb­ættið en Benedikt með ein­ungis fjögur pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár