Aðalmeðferð í Aurum-málinu hafin...aftur

Aðal­með­ferð í Aurum mál­inu, þar sem fjórir menn eru ákærðir fyrir umboðs­svik vegna sex millj­arða króna lán­veit­ingar, hófst í morgun í annað sinn. Hæsti­réttur ógilti sýknu­dóm í fyrra vegna efa um óhlut­drægni dóm­ara.

Jón Ásgeir Jóhannesson er einn þeirra sem ákærður er í Aurum-málinu.
Jón Ásgeir Jóhann­es­son er einn þeirra sem ákærður er í Aurum-mál­inu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Aðal­með­ferð í Aurum-mál­inu svo­kall­aða hófst í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í morgun klukkan 9:15. Þetta er í annað sinn sem málið er tekið fyrir í hér­aði en Hæsti­réttur ógilti sýknu­dóm í mál­inu í apríl 2015. Ástæða þess að Hæsti­réttur féllst á ómerk­ing­ar­kröfu sak­sókn­ara í mál­inu var efi um óhlut­drægni dóm­ara sem dæmdi í mál­inu, Sverris Ólafs­sonar. Hann er bróðir Ólafs Ólafs­sonar, sem hlaut fjög­urra og hálfs árs dóm í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða.

Sak­born­ingar í Aur­um-­mál­inu, þeir Lárus Weld­ing, fyrr­ver­andi for­stjóri Glitn­is, Magnús Arnar Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs bank­ans, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, fyrrum aðal­eig­andi Glitn­is, og Bjarni Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi við­skipta­stjóri bank­ans, voru allir sýkn­aðir af ákæru sér­staks sak­sókn­ara um umboðs­svik í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þann 5. júní síð­ast­lið­inn. Einn dóm­ari máls­ins, Arn­grímur Ísberg, skil­aði sér­at­kvæði og taldi að sak­fella ætti Lárus, Magnús Arnar og Jón Ásgeir.

Málið snýst um sex millj­­arða króna lán­veit­ingu til félags­­ins FS38 í júlí 2008. Lánið var veitt til að fjár­­­magna kaup FS38, eign­­ar­­laust félag í eigu Pálma Har­alds­­son­­ar, á 25,7 pró­­sent hlut Fons hf., líka í eigu Pálma, í Aurum Hold­ing Limited. Hluti láns­ins, einn millj­­arður króna, var ráð­stafað inn á per­­són­u­­legan banka­­reikn­ing Jóns Ásgeirs. Hann nýtti þann millj­­arð síðan í að borga meðal ann­­ars 705 millj­­óna króna yfir­­­drátt­­ar­heim­ild sína hjá Glitni. Hér­aðs­sak­sókn­ari, áður sér­­stakur sak­­sókn­­ari, vill meina að Jón Ásgeir hafi þannig fengið hlut í ávinn­ingi af brot­inu og notið hagn­að­­ar­ins.

Sér­­stakur sak­­sókn­­ari fór fram á sex ára fang­elsi yfir Lárusi Weld­ing þegar málið var fyrst flutt í hér­­aði og fjög­­urra ára fang­elsi yfir þeim Jóni Ásgeiri, Magn­úsi Arn­­ari og Bjarna.

Ólafur Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari sækir málið sjálfur og dóm­ari í því er Barbara Björns­dóttir, hér­aðs­dóm­ari.

Ógilt vegna efa um óhlut­drægni dóm­ara

Helgi Magnús Gunn­­ar­s­­son vara­­rík­­is­sak­­sókn­­ari hafði kraf­ist ómerk­ingar á með­­­ferð máls­ins á grund­velli þess að einn með­­­dóm­­ari máls­ins hefði verið van­hæfur til að fjalla um það. Um­ræddur með­­­dóm­­ari er Sverrir Ólafs­­son, fjár­­­mála­verk­fræð­ing­­ur, en hann er bróðir Ólafs Ólafs­­son­­ar, kenndum við Sam­­skip, sem hlaut þungan fang­els­is­­dóm vegna aðildar sinnar að Al-T­hani flétt­unni svoköll­uðu. Þetta lá ekki fyrir við með­ferð máls­ins í hér­aði. Hæsti­réttur féllst á það.

Fjöl­miðlar komust á snoðir um tengslin eftir dóms­upp­kvaðn­ingu í hér­aði og spurðu Ólaf Þór Hauks­­son, sér­­stakan sak­­sókn­­ara, hvort hann hefði vitað af tengsl­un­um, sem hann neit­aði. Í kjöl­far­ið, nánar til­­­tekið 9. júní 2014, ræddi frétta­­stofa RÚV við með­dóm­ar­ann Sverri. Í þeirri frétt sagði hann: „Ég fór til dóm­­ar­ans, Guð­jóns St. Mart­eins­­son­­ar, sagði honum frá tengslum mín­­um. Hann taldi að það væru ekki vand­­kvæði á því að ég tæki þetta að mér … Ég trúi því ekki í eina sek­úndu að sér­­stakur sak­­sókn­­ari hafi ekki vitað af mínum tengslum strax í upp­­hafi. Ef hann vissi ekki af mínum tengsl­um, þá ber það vott um afskap­­lega léleg og yfir­­­borðs­­kennd vinn­u­brögð. Mér finnst við­brögð hans, sko, hæpin og mér finnst þetta bera vott um örvænt­ing­­ar­­fullar og jafn­­vel óheið­­ar­­legar aðgerð­­ir. Og hann grípur til þeirra á erf­iðum tímum þegar að trú­verð­ug­­leiki hans stofn­unar er eig­in­­lega í mol­u­m.“

Í sjón­­varps­fréttum sama kvöld bætt­ust eft­ir­far­andi ummæli Sverris við frétt­ina: „Ég trúi því fast­­lega að sér­­stakur sak­­sókn­­ari hafi vitað allan tím­ann hver ég var, hann telji það hins vegar kost að full­yrða núna að hann hafi ekki vitað það. Það laum­­ast að mér sá grunur að sak­­sókn­­ari sé í raun­inni að gera þetta til þess að veikja dóm­inn.“

Guð­jón þurfti að víkja sæti

Í októ­ber í fyrra varð svo ljóst með úrskurði Hæsta­réttar að Guð­jón St. Mart­eins­son hér­aðs­dóm­ari þyrfti að víkja sæti í mál­inu, en áður hafði hér­aðs­dómur úrskurðað að hann þyrfti ekki að víkja. Sér­stakur sak­sókn­ari hafði gert kröfu um að Guð­jón véki sæti vegna eft­ir­mála máls­ins í hér­aðs­dómi.

Hann taldi Guð­jón ekki geta talist hæfan til að fara með mál­ið. Ástæðan er sú að eftir að Hæst­i­­réttur ómerkti nið­­ur­­stöðu hér­­aðs­­dóms í mál­inu í apríl og vís­aði því aftur til hér­­aðs­­dóms sendi Guð­jón tölvu­­póst til rík­­is­sak­­sókn­­ara og verj­enda ákærðu þar sem hann ræddi mál­ið. Með tölvu­­póst­­inum sendi hann grein sem hann hafði ætlað að birta í Frétta­­blað­inu, en gerði ekki. Greinin fjall­aði um málið og umræð­una um van­hæfi Sverris Ólafs­son­ar. Þrátt fyrir að hann hafi hætt við birt­ing­u ­­sögð­u 365 miðlar frá inn­i­haldi grein­­ar­inn­­ar í fréttum og leið­­ara­­skrifum.

„Ég varð bæði undr­andi og fannst að mér vegið með ummælum sér­­staks sak­­sókn­­ara í fjöl­miðlum eftir upp­­­sögu dóms­ins. Af því til­­efni sendi ég hinn 10. júní 2014 stutta grein til birt­ingar í dag­­blaði. Mér þótti sann­­gjarnt og eðli­­legt að greina rík­­is­sak­­sókn­­ara frá þessu og ræddi því við hana í síma sama dag auk þess að senda henni grein­ina. Sama dag ræddi ég sím­­leiðis við sér­­stakan sak­­sókn­­ara sem kann­að­ist ekki við að hafa rætt bræðra­­tengslin í sím­tali okkar 13. mars 2014 þótt hann kann­að­ist við sím­talið og ýmis­­­legt sem þar var rætt. Eftir þetta ákvað ég að birta ekki grein­ina enda ljóst að birt­ingin myndi valda miklu fjaðrafoki sem ekki væri á bæt­and­i.“

Guð­jón segir í tölvu­­póst­­inum að á þessum tíma hafi hann hvorki séð fyrir né reiknað með að krafa ákæru­­valds­ins við áfrýjun yrði krafa um ómerk­ingu máls­ins. „Ég hefði hins vegar birt grein­ina hefði svo ver­ið,“ segir í tölvu­­póst­­in­­um. Þá segir hann að Sverrir hafi látið ummælin falla í fjöl­miðlum „eftir ómak­­lega aðdróttun sér­­staks sak­­sókn­­ara í hans garð og raunar gegn mér einnig“.

Í dómi Hæsta­réttar er einnig vitnað í óbirtu blaða­­grein­ina, þar sem Guð­jón segir að Ólafur Þór Hauks­­son, sér­­stakur sak­­sókn­­ari, hafi hringt í hann og greint honum frá tengslum Sverris Ólafs­­sonar og Ólafs Ólafs­­sonar að fyrra bragði þann 13. mars 2014. „Lauk sam­tal­inu með því að sér­­stakur sak­­sókn­­ari kvað ákæru­­valdið ekki ætla að gera athuga­­semd við hæfi með­­­dóms­­manns­ins og var það ekki gert.“ Þetta hefur komið fram í mál­inu áður og hefur Ólafur Þór sagt að í umræddu sím­tali milli hans og Guð­jóns hafi hann rætt um það að Sverrir hafi unnið fyrir slita­­stjórn Glitn­­is. Þetta kemur einnig fram í dómn­um, þar sem vitnað er til tölvu­­pósts sem Ólafur Þór sendi til rík­­is­sak­­sókn­­ara þann 18. febr­­ú­­ar. „Enn og aftur skyld­­leika­­tengsl með­­­dóm­­ar­ans við C [Ólaf Ólafs­­son, inn­­­skot blaða­­manns] voru ekki rædd í því sím­tali enda hefði ákæru­­valdið þá klár­­lega gert athuga­­semd við þá skipan dóms­ins,“ segir í tölvu­­póst­­in­­um.

Hæsti­réttur úrskurð­aði að Guð­jón skyldi víkja sæti vegna þess að orð hans væru fallin til þess að draga mætti með réttu í efa að hugur hans gagn­vart Ólafi Þór Hauks­syni, sér­stökum sak­sókn­ara, væri með þeim hætti að tryggt væri að óhlut­drægni yrði gætt við úrlausn máls­ins.

Ásakanir um vanhæfni og óheiðarleika

Sverrir Ólafsson, sér­fróði dóm­ar­inn sem varð til þess að fyrri nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms ógilt­ist, skrif­aði grein í Morg­un­blaðið 10. sept­em­ber síð­ast­lið­inn þar sem hann fór hörðum orðum um emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara. Í grein­inni sagði hann að margt bendi til þess að annað hvort van­hæfni eða óheið­ar­leiki hafi átti sér stað hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara með til­liti til með­ferðar gagna í Aur­um-­mál­in­u. Sverrir spyr sig hvort að emb­ættið hafi verið að leyna gögnum í öðrum mik­il­vægum málum og segir að það verði að taka nýlegan áburð Hreið­ars Más Sig­urðs­son­ar, fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings sem ákærður hefur verið í fjölda hrun­mála, um slikt alvar­lega.

Það sé skoðun sumra að emb­ættið hafi sýnt af sér for­dæma­lausan ásetn­ing til að sak­fella banka­menn, hvað sem það kostar jafn­vel þótt það krefj­ist þess að ólög­legum vinnu­brögðum sé beitt. Ekki hafi skort á stuðn­ingi frá reiðri þjóð við þessi verk, sem virð­ist telja fang­elsun mik­il­væg­ari en rétt­mæt máls­með­ferð. „Ég hef heyrt þá skoðun setta fram að ef til vill séu sak­fell­ingar í nokkrum banka- eða hrun­málum rang­ar, en að það sem skipti höf­uð­máli sé að réttir menn voru dæmd­ir. Maður trúir varla eigin eyrum þegar maður heyrir slíkar athuga­semd­ir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár