62% segjast andvíg búvörusamningunum

Meiri­hluti Íslend­inga er mót­fall­inn búvöru­samn­ingum, sam­kvæmt nýrri könnun frá MMR. 62,4% svar­enda sögð­ust vera and­vígir búvöru­samn­ingnum en 16,3% sögð­ust vera fylgj­andi honum. 21,3% eru hvorki fylgj­andi né and­víg samn­ingnum.

Tölu­verður munur var á afstöðu fólks gagn­vart búvöru­samn­ingnum eftir aldri. Eldri ald­urs­hópar voru lík­legri til að vera fylgj­andi búvöru­samn­ing­unum, til dæmis sögð­ust 31% þeirra sem eru 68 ára og eldri vera fylgj­andi en aðeins átta pró­sent þeirra sem eru 29 ára og yngri.

Búseta hafði líka mikið að segja, en 28% fólks á lands­byggð­inni sögð­ust fylgj­andi en aðeins 10 pró­sent íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Stuðn­ings­fólk Fram­sókn­ar­flokks­ins var lang­lík­leg­ast til að vera fylgj­andi samn­ing­unum, en 55% þeirra kjós­enda voru fylgj­andi honum. Það er eini kjós­enda­hóp­ur­inn þar sem er meiri­hluti fylgj­andi samn­ingnum. Þau sem styðja Sam­fylk­ingu, Bjarta fram­tíð, Pírata og Viðreisn voru ólík­leg­ust til að vera fylgj­andi, og yfir 75% kjós­enda þess­ara flokka sögð­ust and­víg. Hjá Sjálf­stæð­is­flokknum eru 22% fylgj­andi samn­ingnum og 23% hjá Vinstri grænum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár