Spilling og valdaskipti í Brasilíu

Stjórn­mála­menn í Brasilíu eiga langt í land með að vinna til baka traust almenn­ings. Fyrr­ver­andi for­seti, Dilma Rousseff, var vikið úr emb­ætti tíma­bundið vegna spill­inga­mála og eft­ir­maður hennar er jafn­vell enn óvin­sælli en hún var.

Dilma Rousseff, fyrrverandi forseti Brasilíu.
Dilma Rousseff, fyrr­ver­andi for­seti Brasilíu. Mynd: UESLEI MARCELINO / REUTERS

Michel Temer, vara­for­seti í síð­ustu rík­is­stjórn Dilma Rousseff og stað­geng­ill Rousseff sem for­seti eftir að henni var vikið úr emb­ætti tíma­bundið vegna máls­höfð­un­ar­ferlis gegn henni þann 12. maí, var form­lega svar­inn í emb­ættið þann 31. ágúst síð­ast­lið­inn. Það gerð­ist ein­ungis nokkrum klukku­stundum eftir kosn­ingar í öld­ung­ar­deild þings­ins þar sem 61 af 81 þing­manna kusu með ályktun að víkja Dilma Rousseff úr emb­ætti. Temer, sem er með­limur PMDB-flokks­ins sem var í sam­steypu­stjórn með PT-flokk Rousseff þangað til mars í ár, hefur þannig verið falið að skipa emb­ætti for­seta lík­lega fram að lokum núver­andi kjör­tíma­bils síðla árs 2018. 

Þessi valda­skipti eru umdeild ekki ein­göngu fyrir þær sakir að land­inu verður lík­lega stjórnað næstu tvö árin af ókjörnum for­seta. Rík­is­stjórn Temer er sterk­lega bendluð við sömu spill­ing­ar­mál og urðu Dilma Rousseff að falli. Þar að auki hefur Temer lýst yfir nið­ur­skurð­ar­stefnu til þess að takast á við síversn­andi efna­hags­á­stand í land­inu, en búist er við því að erfitt verði að hrinda henni í gegn vegna skorts á hljóm­grunni fyrir henni í þing­inu.

Ávallt land framtíðarinnar?

Spilling í brasil­ískum stjórn­málum á sér langar rætur en sundrað flokka­kerfi lands­ins - alls eru 22 flokkar á núver­andi þingi - og tengsl alrík­is­ins við smærri stjórn­sýslu­ein­ingar stuðla að fyr­ir­greiðslu­kerfi sem erfitt hefur reynst að upp­ræta. Ákveðnar vonir voru bundnar við að búið væri að brjóta blað í sögu lands­ins - sem hafði sögu­lega ein­kennst af sveiflu­kenndum „boom and bust“-vexti - í kjöl­far valda­tíð hins vin­sæla Luiz Inácio Lula da Silva („Lula“) fyrsta ára­tug þess­arar aldar; hag­vöxtur var til­tölu­lega sterkur og ýmsar vel heppn­aðar vel­ferð­ar­stefnur á borð við Bolsa Familia og Fome Zero sáu til þess að stór hluti efna­minni fólks upp­lifði bætt lífs­kjör, og landið bar sigur í fram­boðum sínum til að halda bæði heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu og sum­ar­ólymp­iu­leik­ana. Lula útnefndi Rousseff sem arf­taka sinn í PT-flokknum fyrir for­seta­kosn­ing­arnar 2010 og vann hún auð­veldan sigur í skugga vel­gengni Lula. Hún hafði líkt og Lula tekið þátt í marxískri skæru­liða­hreyf­ingu á tímum her­stjórn­ar­innar í Brasilíu á átt­unda og níunda ára­tugnum og búist var við því hún myndi halda stefnum Lula áfram þegar hún tók við kefl­inu. Raunin varð önnur.

Bílaþvottastöðin Brasilía

Lækkun á verði olíu og ann­arra útflutn­ings­auð­linda lands­ins gerðu Rousseff engan greiða og brátt kom í ljós hversu háður þeim efna­hagur Brasilíu var. Hag­vöxtur hrundi og ekki bætti úr skák þegar dóm­ar­inn Sérgio Moro skip­aði í apríl 2014 lög­reglu­rann­sókn á stór­felldri spill­ingu innan rík­is­rekna olíu­fyri­tæk­is­ins Petr­obras. Rann­sóknin hlaut nafnið Operação Lava Jato eða bíla­þvotts­að­gerðin og eftir því sem Rousseff var stjórn­ar­for­maður Petr­obras á árunum 2003 til 2010 varð hún sjálf bendluð við spill­ing­arskandal­ann ásamt fjöl­mörgum hátt­settum stjórn­mála­mönnum í PT og PMDB.

Máls­höfð­un­ar­til­laga gegn Rousseff var loks sam­þykkt í des­em­ber 2015 og sner­ist form­lega um brot á fjár­hags­á­ætl­ana­lögum vegna óábyrgra fjár­veit­inga sem veittar voru með for­seta­legum til­skip­unum til að kom­ast hjá þing­með­ferð. Þó er ljóst að bíla­þvotts­málið og síversn­andi efn­hags­staða lands­ins vógu þungt í bak­grunn­inum. Vörn Rousseff sner­ist nefni­lega ekki ein­ungis um að neita sök varð­andi fjár­veit­ing­arnar heldur líka um færa rök fyrir því að eina mark­mið bíla­þvotts­að­gerð­ar­innar væri að steypa henni af stóli. Með öðrum orðum, sam­kvæmt Rousseff var máls­höfð­unin gegn henni ein­fald­lega valda­ránstil­raun hægri­afla sem stefndi brasil­ísku lýð­ræði í hættu.

Tilkoma Tamer

Þegar Temer varð stað­geng­ill for­seta þann 13. maí síð­ast­lið­inn tók ekki nema tíu daga áður en að bíla­þvotts­málið skaut upp koll­inum aftur þegar dag­blaðið Folha de São Paulo birti upp­tökur af síma­sam­tali á milli nýút­nefnds skipu­lags­mála­ráð­herra í nýrri rík­is­stjórn Temer, Romero Jucá, og fyrr­ver­andi for­manni Tran­spetro sem er dótt­ur­fyr­ir­tæki Petr­obras, Sérgio Machado. Í sam­tal­inu heyr­ist Jucá tala um mik­il­vægi þess að koma rík­is­stjórn Rousseff frá völdum til þess að geta „stöðvað blæð­ing­una“. Sjálfur vildi Jucá meina að með blæð­ingu ætti hann við versn­andi efna­hags­lega stöðu lands­ins en margir vildu meina að blæð­ingin hafi verið bíla­þvotts­að­gerðin, og að eina leiðin til að koma í veg fyrir að hún fletti ofan af fleiri skandölum væri að koma á nýrri rík­is­stjórn. Jucá sagði af sér ráð­herra­emb­ætt­inu í kjöl­farið. Með svip­uðum hætti ollu upp­tökur af sím­tölum við Machado að þeirri kald­hæðni að gagn­sæ­is­ráð­herra, Fabiano Silveira, sagði af sér 30. maí, og rúmum tveim vikum síðar sagði ferða­mála­ráð­herra, Henrique Eduardo Alves, af sér eftir ásak­anir um að þiggja mútur frá Petr­obras. Til við­bótar við grun­semdir um sam­særi til að steypa Rousseff af stóli vakti mikla athygli að allir ráð­herrar í upp­haf­legu rík­is­stjórn Temer voru hvítir karl­menn, en nú á dög­unum bætt­ist fyrsta konan í ráð­herra­hóp Temer, og erfitt hefur reynst að sann­færa almenn­ing um að ný rík­is­stjórn hafi hags­muni allra lands­manna að leið­ar­ljósi.

Nú er komin upp sú for­vitni­lega staða að skoð­ana­kann­anir sýna ekki ein­ungis að Temer er jafn­vel óvin­sælli en hin skandala­þrungna Rousseff, heldur líka að meiri­hluti lands­manna er þeirrar skoð­unar að það ætti að draga Temer fyrir dóm fyrir svip­aðar sakir og Rousseff. Ljóst er að stjórn­mála­menn Brasilíu eiga langt í land með að vinna aftur traust almenn­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár