Seðlabanki ber fyrir sig þagnarskyldu vegna skuldauppgjörs félaga Jóns Ásgeirs

Seðla­banki Íslands svarar ekki efn­is­lega spurn­ingum Kjarnans um skulda­upp­gjör sem félög undir stjórn Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar gerðu árið 2010. Í skulda­upp­gjör­inu fékk félag frá Panama heim­ild til að greiða skuldir ann­arra með íbúða­lána­sjóðs­bréfum.

Seðla­banki Íslands vill ekki svara spurn­ingum Kjarnans um heim­ild sem hann veitti félag­inu Guru Invest, með heim­il­is­festi á Panama, til að nota skulda­bréf útgefin af Íbúða­lána­sjóði, svokölluð HFF-bréf, til greiða upp skuld íslenskra félaga eig­enda Guru Invest vil slita­stjórn Glitnis. Seðla­bank­inn vill enn fremur ekki svara því hvort fleiri dæmi séu um að eig­endur erlendir eig­endur HFF-bréfa hafi fengið að greiða skuld íslensks félags við slitabú banka með þessum hætti.

Kjarninn greindi frá skulda­upp­gjöri nokk­urra félaga í eigu eða undir stjórn Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar við slitabú Glitnis í frétta­skýr­ingu þann 21. apríl síð­ast­lið­inn. Skjöl um skulda­upp­gjörið var að finna í hinum svoköll­uðu Panama­skjölum sem láku frá lög­manns­stof­unni Mossack Fonseca. Kjarninn vann röð frétta­skýr­inga upp úr hluta skjal­anna í sam­starfi við Reykja­vík Media.

Panamafélag notaði íslensk skuldabréf til að greiða skuldir annarra

Skulda­upp­gjörið er dag­sett í júní 2010. Félögin sem aðild áttu að sam­komu­lag­inu voru annað hvort skuld­arar eða í sjálf­skuld­ar­á­byrgð fyrir skuld­unum. Um er að ræða ann­ars vegar yfir­drátt upp á 2.563 millj­ónir króna sem íslenska félagið 101 Chalet ehf. var með hjá Glitni og hins vegar 723 millj­óna króna skuld Fjár­fest­inga­fé­lags­ins Gaums ehf., við Glitni. Stærsti eig­andi Gaums var Jón Ásgeir Jóhann­es­son og 101 Chalet var einnig í eigu dótt­ur­fé­laga Gaums á þessum tíma.

Eitt félag­anna sem greiddi hluta skuld­anna heitir Guru Invest, og er stýrt var af Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni og Ingi­björgu Stefaníu Pálma­dóttur, eig­in­konu hans. Það er með heim­il­is­festi á Panama. Alls fékk slitabú Glitnir þá 2,4 millj­arða króna greiðslu upp í 3,3 millj­arða króna skuld sem Gaumur og félagið 101 Chalet ehf. höfðu stofnað til en ekki getað greitt. Skuldin var ann­ars vegar greidd með 200 millj­óna króna greiðslu í reiðufé og hins vegar með afhend­ingu skulda­bréfa útgefnum af Íbúða­lána­sjóði, að and­virði 2,2 millj­arða króna.

Með þess­ari greiðslu var kom­ist hjá því að Glitnir gæti sett Gaum og 101 Chalet ehf. í þrot. Gaumur óskaði ekki eftir gjald­þrota­skiptum fyrr en í sept­em­ber 2013 og 101 Chalet er enn starf­rækt. Það er nú í eigu Moon Capital S.a.r.l. í Lúx­em­borg, félags Ingi­bjargar Stefaníu Pálma­dóttur.

Fengu fullt verð fyrir bréfin

Kjarninn hefur rætt umrætt skulda­upp­gjör við sér­fræð­inga sem komið hafa að vinnu við fjár­magns­höft, við úrvinnslu skulda­upp­gjöra eftir banka­hrun og innan fjár­mála­geirans. Þeim ber saman um að upp­gjörið sé óvenju­legt, sér­stak­lega þar sem panamíska félagið Guru Invest, erlendur eig­andi íslenskra HFF-bréfa, fékk að nota bréfin til að greiða inn á skuld félaga Jóns Ásgeirs. Í upp­gjör­inu fékkst fullt verð fyrir bréfin löngu áður en þau voru á gjald­daga. Það var ekki staða sem bauðst öðrum erlendum eig­endum HFF-bréfa. Þeir hafa þurft að taka þátt í útboðum Seðla­banka Íslands til að koma fé sínu út úr íslenskum höftum, og þar með gefa eftir hluta af virði þeirra.

Kjarninn hefur heim­ildir fyrir því að beiðni for­svars­manna Gaums og 101 Chalet um að nota HFF-bréfin sem greiðlsu í sam­komu­lag­inu hafi upp­runa­lega verið hafnað af Seðla­banka Íslands en að þeirri ákvörðun hafi síðar verið snúið.

Ítarlegt erindi var sent til Seðla­banka Íslands vegna máls­ins. Erindið var sent til bank­ans 19. maí. Því var á end­anum svarað 19. júlí, þremur mán­uðum eftir að það var upp­haf­lega sent. Fyr­ir­spurnin var eft­ir­far­andi:

Færa má rök fyrir því að með svona notkun á HFF-bréfum hafi hið erlenda félag fengið fullt verð fyrir bréfin löngu áður en að þau voru á gjald­daga. Það er ekki staða sem býðst öðrum erlendum eig­endum HFF-bréfa. Hvernig stenst þessi gjörn­ingur við­mið um jafn­ræði sem tryggð eru í stjórn­ar­skrá, og Seðla­banki Íslands á þar með að vinna í sam­ræmi við?

Í sam­komu­lags­ins fólst að Glitnir myndi fá 2,4 millj­arða króna greiðslu upp í sam­eig­in­lega skuld­ina gegn því að hún yrði felld niður. Greiðslan sam­an­stóð ann­ars vegar af skulda­bréfum útgefnum af Íbúða­lána­sjóði, svoköll­uðum HFF-bréfum, að and­virði 2,2 millj­arða króna og 200 millj­ónum króna í reiðufé. Greið­andi var félagið Guru Invest sem skráð er með heim­il­is­festi í Panama. Þetta stað­festa gögn sem Kjarninn er með undir höndum.

Við höfum upp­lýs­ingar um að beiðni um að nota HFF-bréf sem greiðslu í þessu sam­komu­lagi hafi upp­runa­lega verið hafnað af Seðla­banka Íslands en þeirri ákvörðun síðan snúið?

Af hverju var það sam­þykkt að leyfa notkun á HFF-bréfum í eigu erlends félags til að greiða skuld íslensks félags við slitabú banka?

Eru fleiri dæmi um það að eig­endur HFF-bréfa hafi fengið að nota þau til að greiða niður skuldir íslenskra félaga með þessum hætti?

Ber fyrir sig þagnarskyldu

Í svari Seðla­bank­ans er beðist vel­virð­ingar á þeim töfum sem orðið hafa á því að svara erind­inu, og sagt að taf­irnar megi rekja til gíf­ur­legra anna innan gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­bank­ans að und­an­förnu. Síðan segir: „Með vísan til þagn­ar­skyldu­á­kvæða 35. gr. laga nr. 36/2001, um Seðla­banka Íslands, og 15. gr. laga nr. 87/1992, um gjald­eyr­is­mál, getur Seðla­bank­inn hins vegar ekki upp­lýst um ein­staka mál sem kunna að hafa verið til afgreiðslu innan Seðla­bank­ans.“

Það tók því Seðla­banka Íslands þrjá mán­uði að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að hann ætl­aði sér ekki að svara fyr­ir­spurn­inni.

Jón Ásgeir og Ingi­björg vildu ekki svara fyr­ir­spurn Kjarnans um Guru Invest efn­is­lega þegar eftir því var leitað í apríl síð­ast­liðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár