Tekjur einstaklinga vegna arðgreiðslna 35 milljarðar í fyrra

Tekjur vegna arð­greiðslna hafa tvö­fald­ast á fjórum árum. Und­an­farin ár hefur rík­asta pró­sent lands­manna þéna tæp­lega helm­ing fjár­magnstekna. Ríkið greiðir á sama tíma minna í vaxta- og barna­bætur.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Íslenskir ein­stak­lingar höfðu sam­tals 34,8 millj­arða króna í tekjur vegna arð­greiðslna í fyrra. Ekki liggur fyrir á hversu marga ein­tak­linga þessi tala skipt­ist en hún hækk­aði um rúma fimm millj­arða, eða 18 pró­sent, á milli ára. Tekjur ein­stak­linga af arði hafa auk­ist mjög hratt á und­an­förnum árum. Alls námu þær 16,7 millj­örðum króna árið 2012 og hafa rúm­lega tvö­fald­ast síðan þá. Nú er svo komið að tekjur ein­stak­linga vegna arð­greiðslna voru stærsti ein­staki liður fjár­magnstekna rík­is­ins vegna árs­ins 2015. Þetta kemur fram í frétt fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins vegna álagn­ingu opin­berra gjalda á ein­stak­linga árið 2016.

Hagnaður af sölu hluta­bréfa var 20,8 millj­arðar króna í fyrra og lækkar á milli ára. Skýr­ingin á þeirri lækkun er sú að við álagn­ingu 2015 voru nokkrir ein­stak­lingar með „óvenju­lega háan sölu­hagnað“.

Þar segir enn fremur að alls hafi 39 þús­und Íslend­ingar sem höfðu tekjur af eignum sínum eða fjár­magni greitt sam­tals 17,9 millj­arða króna í fjár­magnstekju­skatt á árinu 2015, eða tæp­lega tólf pró­sent þjóð­ar­innar.

Barnabætur og vaxtabætur lækka

Alls greiddu Íslend­ingar sam­tals 306,5 millj­arða króna í almennan tekju­skatt og útsvar á árinu 2015. Það er 10,8 pró­sentum meira en þeir gerðu árið árið áður. Álagning tekju­skatts, sem rennur til rík­is­ins, jókst mun meira en álagn­ing útsvars þar sem per­sónu­af­sláttur hækk­aði mjög lítið. Þeir sem borg­uðu almennan tekju­skatt, fólk sem hefur fyrst og síð­ast tekjur vegna launa sinna, voru tæp­lega 182 þús­und tals­ins í fyrra.

Á sama tíma lækka almennar vaxta­bætur sem skuld­settir íbúða­eig­endur fá greiddar vegna vaxta­gjalda íbúða­lána sinna, um 25,7 pró­sent á milli ára og þeim fjöl­skyldum sem fá þær bætur greiddur fækkar um 21,3 pró­sent. Ástæða þessa er sögð betri eign­ar­staða heim­ila lands­ins. Þá lækka heild­ar­greiðslur barna­bóta úr tíu millj­örðum króna í 9,3 millj­arða króna. Ástæða þessa eru sagðar að laun hafi hækkað meira en tekju­við­mið­un­ar­fjár­hæðir og því skerð­ast greiðslur barna­bóta til fleiri ein­stak­lingar.

Rík­asta pró­sentið þén­aði helm­ing allra fjár­magnstekna

Kjarn­inn greindi frá því í nóv­em­ber 2015 að tekju­hæsta eitt pró­sent lands­manna, alls 1890 manns, hefði þénað 42,4 millj­arða króna í fjár­magnstekjur á árinu 2014. Alls námu fjár­magnstekjur sem ein­stak­lingar og sam­skatt­aðir greiddu á því ári 90,5 millj­örðum króna og því fékk þessi litli hópur sam­tals 47 pró­sent þeirra tekna í sinn hlut. Um tvær af hverjum þremur krónum sem rík­asta pró­sent lands­manna þén­aði árið 2014 var vegna fjár­magnstekna. Þetta kom fram í stað­tölum skatta vegna árs­ins 2014 sem hægt er að nálg­ast á vef emb­ættis rík­is­skatt­stjóra.

Ef sama hlut­fall á við í árið 2015 má ætla að þessi litli hópur hafi aftr haft um 42 millj­arða króna í fjár­magnstekjur í fyrra.

Fjár­magnstekjur eru tekjur sem ein­stak­lingar hafa af fjár­magns­eignum sín­um. Þ.e. ekki laun­um. Þær tekjur geta verið ýmis kon­ar. Til dæmis tekjur af vöxtum af inn­láns­reikn­ingum eða skulda­bréfa­eign, tekjur af útleigu hús­næð­is, arð­greiðsl­ur, hækkun á virði hluta­bréfa eða hagn­aður af sölu fast­eigna eða verð­bréfa.

Ef tekj­urnar eru útleystar, þannig að þær standi eig­anda þeirra frjálsar til ráð­stöf­un­ar, ber að greiða af þeim 20 pró­sent fjár­magnstekju­skatt sem rennur óskiptur til rík­is­ins. Ljóst er að ein­ungis lít­ill hluti af fjár­magnstekjum var útleystur í fyrra. Alls greiddu íslensk heim­ili, ein­stak­lingar og sam­skatt­að­ir, 3,8 millj­arða króna í fjár­magnstekju­skatt á árinu 2014. Því til við­bótar greiddu fyr­ir­tæki, sjóðir og rík­is­sjóður vel á þriðja tug millj­arða króna í fjár­magnstekju­skatt. Alls skil­aði hann 30,6 millj­örðum króna á árinu 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár