Fylgi Sjálfstæðisflokks minnkar og fylgi Viðreisnar eykst

Sjálf­stæð­is­flokkur og Píratar mæl­ast með um 28 pró­senta fylgi í nýrri kosn­inga­spá. Viðreisn bætir við sig og er komin með 5,8. For­mað­ur­inn segir þetta góðar fréttir og brátt verði listar mann­aðir. Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir er orðuð við flokk­inn.

Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarsson verða ekki samflokksmenn á næsta þingi. Ekki liggur fyrir hvort Ragnheiður ætli að bjóða sig fram fyrir Viðreisn eða hvort hún ætli að hætta á þingi.
Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir og Guð­laugur Þór Þórð­ars­son verða ekki sam­flokks­menn á næsta þingi. Ekki liggur fyrir hvort Ragn­heiður ætli að bjóða sig fram fyrir Viðreisn eða hvort hún ætli að hætta á þingi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Píratar og Sjálf­stæð­is­flokkur mæl­ast nær hnífjafnir, með um 28 pró­senta fylgi, í nýj­ustu kosn­inga­spánni um fylgi flokk­anna sem gerð var 4. júní. Sjálf­stæð­is­flokkur missir rúmt pró­sentu­stig síðan í síð­ustu kosn­inga­spá, 2. júní, en Píratar bæta við sig hálfu pró­sentu­stig. Viðreisn bætir við sig tæpum tveimur pró­sentu­stigum síðan kosn­inga­spáin var gerð síð­ast.

Vinstri græn mæl­ast með 17 pró­sent, en voru með 17,5 síð­ast. Fram­sókn­ar­flokkur bætir við sig rúmu pró­sentu­stigi og mælist nú með 10,1 pró­sent. Sam­fylk­ing stendur nær í stað með rúm sjö pró­sent og Viðreisn bætir við sig um tæp tvö pró­sentu­stig og fer úr 4,1 í 5,8 pró­sent.

Kosn­­­inga­­­spá Kjarn­ans og Bald­­­urs Héð­ins­­­sonar er gerð fyrir Alþing­is­­­kosn­­­ingar sem boð­aðar hafa verið í haust. Baldur hefur útbúið spálíkan sem vigtar kann­­­anir sem gerðar eru á fylgi stjórn­­­­­mála­­­flokka eftir áreið­an­­­leika. Sama líkan var notað fyrir sveit­­­ar­­­stjórn­­­­­ar­­­kosn­­­ing­­­arnar árið 2014 fyrir fylgi fram­­­boða í Reykja­vík og nið­­­ur­­­staðan birt á vef Kjarn­ans og á vefn­um kosn­­­inga­­­spá.­is. Í nýj­ustu kosn­­­inga­­­spánni eru nýj­­­ustu kann­an­­­irnar vegn­­­ar:

  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 1. til 2. júní (vægi 31,6%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 28. apríl til 29. maí (vægi 47,4%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 23. til 24. maí (vægi 21,0%)

Viðreisn mannar brátt lista

Eins og áður segir mælist Viðreisn með 5,8 pró­senta fylgi í kosn­inga­spánni og hefur slitið sig nokkuð rösk­lega frá Bjartri fram­tíð sem mælist nú með 3,6 pró­sent stuðn­ing í kosn­inga­spánni. Munurinn á milli Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar er einnig orð­inn meiri en skekkju­mörkin sem reiknuð eru með kosn­inga­spánni og hægt er að full­yrða að Viðreisn sé orðið vin­sælla fram­boð en Björt fram­tíð.

Í könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ sem gerð var fyrir Morg­un­blaðið mælist Viðreisn með tæp­lega átta pró­sent stuðn­ing. Í nýj­ustu kosn­inga­spánni vegur sú könnun næst þyngst og fær 31,6 pró­sent vægi.

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir þetta auð­vitað ánægju­legar fréttir, sér­stak­lega í ljósi þess að flokk­ur­inn hafi form­lega verið til í minna en tvær vikur.

„Ég er býsna brattur með þetta, enda væri van­þakk­látt að vera annað, eftir svona skamman tíma,“ segir hann. „En svo verðum við að standa okkur áfram, með því að vera með skyn­sam­lega stefnu og góða fram­bjóð­endur. Stefnan er nokkuð ljós, þannig að fólki fellur hún bæri­lega vel í geð. Svo er bara að stilla þessu upp.“

Spurning með Ragnheiði

Brátt verða skip­aðar upp­still­ing­ar­nefndir og þá taki hlutir að skýr­ast, að sögn Bene­dikts. Viðreisn stefnir að því að bjóða fram í öllum kjör­dæmum.

„Það eru ekki komnir fram­bjóð­endur alls staðar, ekki frekar en hjá öðrum flokkum,” segir Benedikt. „En það er fólk víða um land sem sýnir þessu mik­inn áhuga.“

Hann vill ekk­ert gefa upp varð­andi mögu­lega fram­bjóð­endur, ekki einu sinni varð­andi sig sjálfan. Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, frá­far­andi þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, til­kynnti í gær að hún ætl­aði ekki að gefa kost á sér í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kom­andi kosn­ingum. Vanga­veltur hafa verið uppi hvort hún muni færa sig yfir til Við­reisnar, en hún hvorki neitað því né játað. Það gerir Benedikt ekki heldur.

Hvað er Kosn­­inga­­spá­in?

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­inga­­spá Bald­­urs fyrir sveit­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­arnar og reynd­ist sú til­­raun vel. Á vefnum kosn­­inga­­spá.is má lesa nið­­ur­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­vik kann­ana miðað við kosn­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­leiki könn­un­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­inga­úr­slit­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­um. Hægt er að lesa nánar um fram­kvæmd kosn­inga­spár­innar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár