Bankasýslan hafnar allri málsvörn Landsbankans

Banka­sýsla rík­is­ins telur rök­stuðn­ing banka­ráðs Lands­bank­ans og stjórn­enda hans fyrir sölu á 31,2 pró­sent hlut í Borgun á 2,2 millj­arða króna í nóv­em­ber 2014 vera ófull­nægj­andi. Í ítar­legu svar­bréfi sem stofn­unin sendi banka­ráði Lands­bank­ans á föstu­dag, og var birt á vef hennar í morgun, er nær öllum rök­semd­ar­færslum sem Lands­bank­inn hefur teflt fram sér til varnar í Borg­un­ar­mál­inu hafnað. Þar er enn fremur sagt að svör Lands­bank­ans við þeirri gagn­rýni sem sett hefur verið fram á fram­göngu hans hafi „ekki verið sann­fær­andi“.

Banka­sýslan gagn­rýnir til að mynda rök­stuðn­ing bank­ans fyrir því að selja hlut­inn í lok­uðu sölu­ferli, verk­lag við samn­ings­gerð, mál­flutn­ing hans um mein­tan sölu­þrýst­ing frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu, verð­mat á eign­ar­hlutnum í Borgun og að Lands­bank­inn hafi komið sér í þá stöðu að eini við­semj­andi hans hafi verið hópur fjár­festa sem inni­hélt meðal ann­ars stjórn­endur Borgunar.

Nið­ur­staða Banka­sýsl­unnar er sú að sölu­með­ferðin hafi varpað veru­legum skugga á árangur Lands­bank­ans und­an­farin miss­eri og að fag­leg ásýnd bank­ans og stjórn­enda hans hafi beðið hnekki. Af þeim sökum telur Banka­sýsla rík­is­ins að banka­ráð Lands­bank­ans verði að grípa til „við­eig­andi ráð­staf­ana til að end­ur­heimta það traust sem bank­inn tap­aði vegna sölu­með­ferð­ar­innar. Fer stofn­unin fram á að hlut­höfum í Lands­bank­anum hf. verði hið fyrsta gerð grein fyrir því með hvaða hætti banka­ráðið telur rétt að bregð­ast við og ekki siðar en tveimur vikum fyrir aðal­fund sem fram fer þann 14. apríl nk."

Hún hefur þegar sent bréf til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, þar sem stofn­unin lýsir sömu nið­ur­stöðu.

Slær niður alla málsvörn Landsbankamanna

Banka­sýslan segir í bréfi sínu að Lands­bank­inn hafi haft full­nægj­andi upp­lýs­ingar til að fram­kvæma verð­mat á hlutnum í Borgun sem hann hafi verið sáttur við. „Að mati Banka­sýslu rík­is­ins kemur það einnig fram í sam­skiptum Lands­bank­ans við Sam­keppn­is­eft­ir­litið, sbr. bréf dags 7. febr­úar 2014, að bank­inn hafi talið sig geta falað við­hlít­andi upp­lýs­ingar um Borgun og Valitor. Það má að lokum nefna að upp­lýs­inga­skortur selj­anda ætti að vera rök­stuðn­ingur fyrir því að fara með eign­ar­hlut í opið sölu­ferli. Í þessu máli var það meira aðkallandi en ella, þar sem stjórn­endur Borgunar voru hluti af kaup­enda­hópnum, og opið sölu­ferli hefði að ein­hverju leyti getað jafnað samn­ings­stöðu aðila. Þá má einnig benda á að þrátt fyrir að Lands­bank­inn hafi borið fyrir sig upp­lýs­inga­skorti virð­ist bank­inn aldrei hafa látið á það reyna hvort að það væri erf­ið­leikum bundið að afla upp­lýs­inga um Borgun áður en úti­lokað var að fara með eign­ar­hlut­inn í opið sölu­ferli“.

Banka­sýslan fjallar einnig um mein­tan þrýst­ing Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á sölu Lands­bank­ans á hlut sínum í Borgun, sem stjórn­endur bank­ans hafa ítrekað borið fyrir sig, en Sam­keppn­is­eft­ir­litið neitað. Nið­ur­staða Banka­sýsl­unnar er sú að það hefði verið mögu­legt fyrir Lands­bank­ann að fá auk­inn tíma til að selja hlut­inn sam­kvæmt þeirri sátt sem gerð hafi verið við Sam­keppn­is­eft­ir­litið.

Í svar­bréfi Banka­sýsl­unnar er svo fjallað um þau rök stjórn­enda Lands­bank­ans að hann hefði getað borið ábyrgð á auk­inni áhættu sem skap­ast gæti í rekstri Borgunar, sem selj­andi hlut­anna. Þar er átt við að þau vaxt­ar­á­form sem Borgun var með á prjón­unum hafi þótt áhættu­söm, þótt þau hafi á end­anum skilað miklum virð­is­auka. Banka­sýslan hafnar þessum rökum sem ástæðu fyrir því að selja hlut­inn í lok­uðu sölu­ferli frekar en opnu.

Lands­bank­inn hefur haldið því fram að ein ástæða þess að hlut­ur­inn var seldur í lok­uðu útboði hafi verið sú að bank­inn væri að tryggja sér við­un­andi verð. Það bygg­ist á því að sölu­verðið hafi verið full­nægj­andi á grund­velli ákvörð­unar Íslands­banka að kaupa ekki hlut­inn. Þessu hafnar Banka­sýslan sem gildri rök­semd­ar­færslu og segir að það sé „hæpið“ að álykta um sölu­verð með þessum hætti. Til­gangur opins sölu­ferlis sé ekki síst að virkja fjár­festa og nýta sam­keppni til að fá mark­aðs­verð.

Stjórn­endur Lands­bank­ans bentu á í svar­bréfi sínu vegna fyr­ir­spurna Banka­sýsl­unnar um málið að ströng skil­yrði giltu um eign­ar­hald á virkum eign­ar­hlut í fjár­mála­fyr­ir­tæki eins og Borgun. Banka­sýslan hafnar þessu einnig sem rökum fyrir því að hlut­ur­inn var seldur í lok­uðu ferli til stjórn­enda Borgunar og með­fjár­festa þeirra. Í bréfi hennar til bank­ans segir að það sé Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að meta hæfi aðila til að fara með virkan eign­ar­hlut, ekki selj­enda þess hlutar.

Banka­sýslan hafnar enn fremur þeirri rök­semd­ar­færslu að hlut­ur­inn í Borgun hafi ekki verið fulln­ustu­eign og þar með hefði ekki þurft að setja hann í opið sölu­ferli. Að mati hennar er vand­séð hvaða rök séu fyrir því að hafa annan hátt á með sölu á öðrum eignum bank­ans en fulln­ustu­eignum. Stjórn hluta­fé­lags eigi að hafa hags­muni eig­enda sinna í fyr­ir­rúmi og stjórn­endur Lands­bank­ans hefði átt að vera ljóst að „ríkið hefur lagt mikla áherslu á gagn­sæi og jafn­ræði við sölu eigna. Með því að hafa sölu­ferlið opið og gefa öðrum aðilum þannig kost á að bjóða í eign­ar­hlut­ina hefðu stjórn­endur bank­ans og banka­ráð unnið afram­gangi þess­ara mark­miða ásamt því að styrkja samn­ings­stöðu sína. Í ljósi sölu­verðs eign­ar­hlut­anna er einnig ljóst að sá við­bót­ar­kostn­aður við að opna ferlið hefði vel getað verið rétt­læt­an­legur.“

Rökstuðningur: Ófullnægjandi

Nið­ur­staða Banka­sýsl­unnar er því skýr. Stjórn­endum Lands­bank­ans mátti vera það full­ljóst, sér­stak­lega vegna þeirrar gagn­rýni sem bank­inn fékk þegar hann seldi Vestia á sínum tíma, og Kjarninn fjall­aði nýverið ítar­lega um, að rök­styðja þyrfti sér­stak­lega öll frá­vik frá því að selja eignir í opnu sölu­ferli. „Í til­felli söl­unnar á Vestia féllst Banka­sýsla rík­is­ins á rök­stuðn­ing Lands­bank­ans á grund­velli ákveð­inna neyð­ar­sjón­ar­miða. Í til­felli söl­unnar á Borgun telur stofn­unin hins vegar rök­stuðn­ing bank­ans ófull­nægj­andi. Þannig bendir margt til þess að bank­inn hafi dregið rangar álykt­anir af sam­skiptum sínum við Sam­keppn­is­eft­ir­litið varð­andi mögu­lega fresti og svig­rúm til að selja eign­ar­hlut sinn í félag­inu.[...]Sömu­leiðis er það mat stofn­un­ar­innar að verk­lagi við samn­ings­gerð Lands­bank­ans hafi að sumu leyti verið ábóta­vant. Banka­sýsla rík­is­ins telur það jákvætt að Lands­bank­inn hafi samið um hlut­deild í þátt­töku Valitors vegna mögu­legrar sölu á Visa Europe, en engin hald­bær rök hafa komið fram fyrir því að hann hafi ekki gert sömu fyr­ir­vara vegna söl­unnar á Borgun, en sala eign­ar­hluta á þessum tveimur félögum fór fram sam­hliða. Telur Banka­sýsla rík­is­ins jafn­framt að Lands­bank­inn sem stærsta fjár­mála­fyr­ir­tæki lands­ins geti ekki borið fyrir sig grand­leysi ann­arra kaup­enda á eign­ar­hlutum í Borgun.“

Banka­sýslan segir einnig að spurn­ingar hafi vaknað um verð­mat Lands­bank­ans á eign­ar­hlutnum í Borgun. Í svar­bréfi bank­ans við fyr­ir­spurnum stofn­un­ar­innar hafi komið fram að bank­inn hafi aðal­lega verð­metið eign­ar­hlut­inn miðað við áætl­aðar arð­greiðslur frekar en svo­kallað V/H hlut­fall. Hlut­fallið segir til um hversu langan tíma það tekur að greiða upp núver­andi mark­aðsvirði félags­ins sem verið er að kaupa miðað við óbreyttan hagnað þess. Auk þess hafi birst upp­lýs­ingar opin­ber­lega um að verð­mæti alls hluta­fjár í Borgun hafi auk­ist mun meira en virði skráðra hluta­bréfa á Íslandi frá því að Lands­bank­inn seldi hlut sinn. „Það hefur valdið því að traust til bank­ans og stjórn­enda hans hefur beðið hnekki. Hefði Lands­bank­inn selt hluti sína í opnu og gagn­sæju ferli þar sem mark­að­ur­inn hefði verð­lagt bréfin má ætla að það hefði ekki gerst.“

Í bréfi Banka­sýsl­unnar kemur fram að það sé gagn­rýn­is­vert að Lands­bank­inn hefði komið sér í þá stöðu að eini við­semj­andi hans í sölu­ferl­inu væri fjár­festa­hópur sem inni­hélt m.a. stjórn­endur Borgunar. Þá hafi svör bank­ans við þeirri gagn­rýni sem salan hefur hlotið ekki verið sann­fær­andi. Banka­sýslan telur að hafi Lands­bank­inn athuga­semdir við upp­lýs­inga­gjöf af hálfu ann­arra aðila í tengslum við sölu­með­ferð á eign­ar­hlut í Borgun þá eigi bank­inn að leita „réttar síns ef hann telur til­efni til“.

Sölu­með­ferðin hafi þar af leið­andi varpað veru­legum skugga á árangur Lands­bank­ans und­an­farin miss­eri og að fag­leg ásýnd bank­ans og stjórn­enda hans hafi beðið hnekki. Af þeim þeim sökum telur Banka­sýsla rík­is­ins að banka­ráð Lands­bank­ans verði að grípa til „við­eig­andi ráð­staf­ana til að end­ur­heimta það traust sem bank­inn tap­aði vegna sölu­með­ferð­ar­innar. Fer stofn­unin fram á að hlut­höfum í Lands­bank­anum hf. verði hið fyrsta gerð grein fyrir því með hvaða hætti banka­ráðið telur rétt að bregð­ast við og ekki siðar en tveimur vikum fyrir aðal­fund sem fram fer þann 14. apríl nk."

Lands­bank­inn hefur þegar sent frá sér til­kynn­ingu þar sem hann seg­ist ætla að verða við þess­ari kröfu og að við­brögð hans verði birt opin­ber­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár