Þegar Landsbankinn seldi Vestia án útboðs

Sala Lands­bank­ans á 31,2 pró­sent hlut hans í Borgun hefur verið fyr­ir­ferða­mesta frétt þessa árs á Íslandi. Ljóst er að þeir sem keyptu hlut­inn hafa marg­faldað virði fjár­fest­ingar sinnar í ljósi þess að virði fyr­ir­tæk­is­ins hefur reynst mun meira en áætlað var. Auk þess hefur bank­inn legið undir ámæli fyrir að hafa selt hlut sinn í Lands­bank­anum bak­við luktar dyr til val­ins hóps bjóð­enda.

Salan á Borgun hefur beint athygl­inni að því hvernig Lands­bank­inn hefur áður haldið á sölu eigna á und­an­förnum árum. Og þar hefur ein „sala“ umfram aðrar verið nefnd, salan á eigna­um­sýslu­fé­lag­inu Vestia til Fram­taks­sjóðs Íslands.

Landsbankinn setur á fót eignaumsýslufélag

Eftir að Lands­bank­inn var end­ur­reistur á nýrri kenni­tölu eftir hrunið sat hann, líkt og hinir end­ur­reistu bank­arnir, uppi með gríð­ar­legt magn af eignum sem þurfti að end­ur­skipu­leggja. Ákvörð­unin um að láta end­ur­reistu rík­is­bank­anna end­ur­skipu­leggja þessar eignir var póli­tísk og því var enn meiri þrýst­ingur á bank­ana að fram­kvæma verkið með opnum og gegn­sæjum hætti sem hafin væri yfir tor­tryggni. Þess utan voru enn rík­ari skyldur á Lands­bank­anum að gera hlut­ina almenni­lega í ljósi þess að hann var að öllu leyti í eigu rík­is­ins, og eignir hans þar af leið­andi rík­is­eignir. Það tók bank­ann þó ekki langan tíma að orka tví­mælis.

Árið 2009 setti Lands­bank­inn á fót eigna­um­sýslu­fé­lagið Vestia til að halda á fyr­ir­tækjum sem lentu í höndum á bank­ans. Ýmsir einka­að­ilar höfðu sýnt umræddum eignum áhuga og reyndu að nýta tengsl innan bank­ans og stjórn­sýsl­unnar til að kom­ast einir í bjóð­enda­stöður.

Vestia var ansi stór biti. Inni í félag­inu voru sjö fyr­ir­tæki sem sam­tals réðu yfir sex þús­und starfs­mönnum. Um var að ræða alþjóð­lega sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Icelandic Group, með alls 30 dótt­ur­fé­lög og starf­semi í 14 löndum, Vodafone, Skýrr, EJS, HugAx, Húsa­smiðj­una og Plast­prent. Mikið púður var lagt í að tryggja að eng­inn „mon­key-business“ yrði í end­ur­sölu á þessum eignum, líkt og það var orðað af við­mæl­anda innan stjórn­sýsl­unnar, sem átti við að þeim ætti ekki að stýra upp í hend­urnar á ein­hverjum útvöldum aðilum.

Steingrímur J. varð brjálaður

Í lok ágúst 2010 var skyndi­lega til­kynnt að Fram­taks­sjóður Íslands, umbreyt­ing­ar­sjóður sem stofn­aður hafði verið af 16 líf­eyr­is­sjóðum í des­em­ber 2009, hefði keypt Vestia. Fyrir pakk­ann greiddi Fram­taks­sjóð­ur­inn 19,5 millj­arða króna auk þess sem Lands­bank­inn eign­að­ist 27,5 pró­senta hlut í hinum ætl­aða umbreyt­ing­ar­sjóði. Eignin var ekki sett í opið sölu­ferli né yfir höfum aug­lýst til sölu.

Með þessum gern­ingi var íslenska ríkið, sem átti Lands­bank­ann að mestu leyti, orð­inn óbeint stærsti ein­staki eig­andi Fram­taks­sjóðs­ins. Það var aldrei mein­ingin að svo yrði. Með kaup­unum á Vestia-eign­unum var Fram­taks­sjóð­ur­inn einnig kom­inn almenni­lega af stað í starf­semi sinni. Áður var eina stóra fjár­fest­ingin sem sjóð­ur­inn hafði ráð­ist í kaup á 30 pró­sent af hlutafé Icelandair.

Ákvörð­unin um kaupin á Vestia var tekin af æðstu stjórn­endum Lands­bank­ans og Fram­taks­sjóðs­ins, þeim Stein­þóri Pálssyni og Finnboga Jónssyni. Í bók­inni Íslands ehf.- Auðmenn og áhrif eftir hrun, sem kom út í águst 2013, kemur fram að Stein­grímur J. Sig­fús­son, fjár­mála­ráð­herra, hafi varið þennan gjörn­ing opin­ber­lega en bak­við luktar dyr varð hann gjör­sam­lega brjál­aður yfir sam­ein­ing­unni. Að hans mati fólst í henni klárt brot á reglum sem Lands­bank­inn hafði sjálfur sett sér um með­ferð eigna sem lent höfðu í hönd­unum á bank­anum eftir hrunið. Stein­grími fannst þeir Steinþór og Finnbogi heldur ekki hafa vandað almenni­lega til verka. Í einka­sam­tölum hund­skamm­aði hann þá báða og sagði þeim mjög skýrt að svona lagað skyldu þeir aldrei gera aftur.

Aug­ljós­lega var sam­run­inn við Fram­taks­sjóð­inn góð leið fyrir Lands­bank­ann til að koma eignum frá sér og losa þar með um þrýst­ing á bank­ann um að losa sig sem fyrst við fyr­ir­tæki sem voru komin í faðm hans. Stein­grímur lagði mikla áherslu á að þeir Finnbogi og Steinþór myndu ekki láta taka sig í bólinu þegar kæmi að því að fyr­ir­tækin yrðu end­ur­seld út úr Fram­taks­sjóðnum. Allt yrði að vera opið og gagn­sætt í þeim sölu­ferlum.

Salan á Icelandic

Stein­grímur varð því ekki ánægður þegar Fram­taks­sjóð­ur­inn tók upp einka­við­ræður í upp­hafi árs 2011 við fjár­fest­inga­sjóð­inn Triton um kaup á verk­smiðju­rekstri Icelandic, sem hafði fylgt frá Lands­bank­anum til sjóðs­ins þegar Vestia var selt. Á hlið­ar­lín­unni í þeim við­skiptum voru aðrir áhuga­samir aðilar, meðal ann­ars kanadíska fisk­sölu­fyr­ir­tækið High Liner Foods, algjör­lega brjál­aðir yfir því að fá ekki að gera til­boð í rekst­ur­inn. Í umræð­unni á þessum tíma var látið líta út fyrir að Finnbogi Bald­vins­son, for­stjóri Icelandic, hefði haft sér­staka hags­muni umfram aðra að Triton keypti Icelandic og að við­ræður við fjár­fest­inga­sjóð­inn hefðu verið til­komnar vegna frænd­semi hans við nafna sinn Jónsson, fram­kvæmda­stjóra Fram­taks­sjóðs­ins.

Sam­sær­is­kenn­ingin gekk út á það að bak­hjarl Finnboga Bald­vins­sonar væri bróðir hans, Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri og eig­andi Samherja. Samn­ings­við­ræð­urnar áttu þannig að vera eitt stórt ráða­brugg til að gera þeim kleift að kom­ast yfir Icelandic. Á meðal þess sem lagt var til í þessum við­ræðum við Triton var að hluti starfs­manna Icelandic myndi fá að eign­ast í fyr­ir­tæk­inu ef af söl­unni yrði. Mörgum innan stjórn­sýsl­unnar og við­skipta­lífs­ins fannst óþefur af við­ræð­unum og töl­uðu um að gamla Ísland vakn­aði alltaf þegar ein­hver héldi að hann gæti grætt mikið á skömmum tíma. Í byrjun febr­úar 2011 var til­kynnt um að til­boði Triton hefði verið hafnað og að hluti af starf­semi Icelandic yrði seldur í opnu sölu­ferli. Á bak­við tjöldin hafði gengið mikið á vik­urnar á undan. Aftur bland­aði Stein­grímur J. Sig­fús­son sér í málið og sagði við Finnboga Jónsson að hann ætti að slíta samn­inga­við­ræð­unum. Hvort þau skila­boð fjár­mála­ráð­herr­ans hafi ráðið úrslitum í því að hætt var við söl­una liggur ekki fyrir.

Í nóv­em­ber 2011 var starf­semi Icelandic í Banda­ríkj­unum seld til High Liner Foods. Sölu­verðið var 26,9 millj­arðar króna.

Sumarið 2014 seldi Lands­bank­inn 9,9 pró­sent hlut sinn í Fram­taks­sjóði Íslands og bók­færði vegna þessa 4,8 millj­arða króna hagnað. Lands­bank­inn á enn þann dag í dag 17,7 pró­sent hlut í Fram­taks­sjóði Íslands, sem hefur losað um mikið af þeim eignum sem hann eign­að­ist á árunum eftir hrun. Í dag á sjóð­ur­inn 100 pró­sent hlut í Icelandic Group, 38 pró­sent hlut í Invent Farma og allt hlutafé í IEI slhf., sem heldur utan um sölu­and­virði erlendra eigna Fram­taks­sjóðs­ins. Á meðal þeirra eigna er sölu­and­virði vegna söl­unar á starf­semi Icelandic í Banda­ríkj­unum árið 2011.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár