Tveir og hálfur milljarður í bankabónusa á þremur árum

Íslands­banki og Arion banki hafa gjald­fært rúm­lega 2,4 millj­arða króna vegna kaupauka starfs­manna á þremur árum. Lands­bank­inn er ekki með kaupauka­kerfi en starfs­mönnum hans var gefin hlutur í bank­anum og þeir fá greiddan arð vegna hans.

Sam­an­lagðar bón­us­greiðslur sem Arion banki og Íslands­banki skuld­bundu sig til að greiða vegna kaupauka­kerfa sinna í fyrra nema 977 millj­ónum króna. Bank­arnir tveir hafa sam­an­lagt gjald­fært tæpan tvo og hálfan millj­arð króna vegna bón­us­greiðslna á þremur árum.

Arion banki ætlar að greiða 599 millj­ónir króna vegna árs­ins 2015 í kaupauka­greiðslur handa rúm­lega hund­rað starfs­mönnum bank­ans og dótt­ur­fé­laga hans sem eiga rétt á slíkum. Þar af fær Hösk­uldur H. Ólafsson banka­stjóri 7,2 millj­ónir króna í bónus ofan á 56 millj­óna króna árs­laun sínu og níu fram­kvæmda­stjórar skipta á milli sín 26,4 millj­ónum króna í árang­urstengdum greiðslum.

Íslands­banki gjald­færði 378 millj­ónir króna vegna kaupauka­greiðslna á árinu 2015 til val­inna starfs­manna bank­ans og dótt­ur­fé­laga hans. Birna Ein­ars­dóttir banka­stjóri fær 7,2 mill­ljónir króna ofan á 44 millj­óna króna árslan sín og átta fram­kvæmda­stjórum Íslands­banka var lofað 29 milj­ónum króna. Þess má geta að Íslands­banki er nú að öllu leyti í eigu rík­is­ins. Frá þessu er greint í DV.

Vert er að taka fram að í sam­ræmi við reglur Fjár­mála­eft­ir­lits­ins er greiðslu á að minnsta kosti 40 pró­sent kaupauka frestað um þrjú ár.

Greiddu tæplega 1,5 milljarð árin 2013 og 2014

Íslands­banki og Arion banki gjald­færðu sam­tals um 835 millj­ónir króna vegna kaupauka­greiðslna til starfs­manna sinna á árinu 2014. Arion banki gjald­færði 477 millj­ónir króna það ár sem var 25 millj­ónum króna meira en árið á undan. Íslands­banki gjald­færði 258 millj­ónir króna árið 2014, eða 17 millj­ónum krónum meira en árið 2013. Samtals höfðu bank­arnir tveir því gjald­fært 1.428 millj­ónir króna í bónusa vegna áranna 2013 og 2014. Við bæt­ast nú 977 millj­ónir króna vegna árs­ins 2015.

Lands­bank­inn, sem er að mestu í eigu rík­is­ins, er ekki með árang­urstengdar greiðslur. Um 1.400 núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn bank­ans fengu hins vegar hlut í bank­anum gef­ins árið 2013 og fá greiddan arð vegna hans. Gjörn­ing­ur­inn var liður í sam­komu­lagi frá árinu 2009, um fjár­hags­upp­gjör milli gamla og nýja Lands­bank­ans. Skatta­legt verð­mæti hluta­bréf­anna nam 4,7 millj­örðum króna þegar hann var afhentur.

Reynt að hækka bónusheimildina í lögum

Reynt var að auka heim­ild fjár­mála­fyr­ir­tækja þannig að þau gætu greitt hærri bónusa í frum­varpi um breyt­ingar á lögum um fjár­mála­fyr­ir­tæki sem var til umræðu á þingi í fyrra. Þar var meðal ann­ars lagt til að tvö­falda bón­us­greiðslur starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja þannig að þær mættu vera allt að 50 pró­sent af föstum árs­launum starfs­manns, en þær mega nú vera 25 pró­sent af árs­launum hans. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið sendi frá sér minn­is­blað til efna­hags- og við­skipta­nefndar þegar málið var þar til vinnslu sem í stóð að það teldi að það yrði að „skað­lausu“ að veita fjár­mála­fyr­ir­tækjum heim­ild til að greiða tvö­falt hærri bón­us­greiðslur en núver­andi reglur kveða. Þá mætti einnig skoða að smærri fjár­mála­fyr­ir­tækjum yrði leyft að greiða hlut­falls­lega enn hærri kaupauka til starfs­manna, til dæmis 100 pró­sent af árs­launum, heldur en stóru við­skipta­bönk­unum.

Breyt­ingin á kaupauka­kerfum bank­anna var á end­anum felld út eftir miklar umræður á þingi og í sam­fé­lag­inu og laga­breyt­ingin afgreidd án hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár