Miklir fjármunir lífeyrissjóða undir í lífsbaráttu Fáfnis Offshore

Fyrir rúmu ári keyptu nokkrir íslenskir líf­eyr­is­sjóðir hlut í Fáfni Offshore í gegnum sjóði fyrir háar fjár­hæðir. Um mikla áhættu­fjár­fest­ingu var að ræða. Síðan þá hefur mark­að­ur­inn sem Fáfnir starfar á hrunið og eini samn­ingur fyr­ir­tæk­is­ins er í upp­námi.

Það gustar um Fáfni Offshore, íslenskt fyr­ir­tæki sem sér­hæfir sig í þjón­ustu við olíu- og gas­bor­p­alla á norð­lægum slóðum. Fyrir rúmu ári síðan keppt­ust íslenskir fjár­festar, aðal­lega líf­eyr­is­sjóðir, um að fjár­festa fyrir millj­arða króna í fyr­ir­tæk­inu. Síðan þá hefur verð­hrun á olíu­mörk­uðum orsakað að eft­ir­spurn eftir þeirri þjón­ustu sem Fáfnir Offshore veitir er nán­ast engin og tugum skipa sem sinna henni hefur verið lagt. Fáfnir hefur tví­vegis frestað afhend­ingu á öðru skipi sínu og það fyrra, Pol­ar­sys­sel, er ein­ungis með eitt verk­efni, birgða­flutn­inga og örygg­is­eft­ir­lit fyrir sýslu­mann­inn á Sval­barða í níu mán­uði á ári. Og sam­kvæmt nýj­ustu fregnum virð­ist það verk­efni vera í upp­námi.

Stjórn Fáfnis Offshore brást við ástand­inu í des­em­ber með því að reka Stein­grím Erlings­son, for­stjóra og stofn­anda Fáfnis Offshore, úr starfi. Sú ákvörðun hefur mælst mis­vel fyrir.

En staðan er hins vegar sú að ástandið á mörk­uðum og óvissa um eina tekju­ber­andi verk­efni Fáfnis Offshore, samn­ing­inn við sýslu­mann­inn á Sval­barða, hefur sett til­urð fyr­ir­tæk­is­ins í upp­nám. Og millj­arða króna fjár­fest­ingu íslenskra líf­eyr­is­sjóða í mjög áhættu­sömu verk­efni í raun­veru­lega hættu.

Dýrasta skip Íslandssögunnar

Fáfnir Offshore á skipið Pol­ar­sys­sel, sem kost­aði yfir fimm millj­arða króna og er dýrasta skip Íslands­sög­unnar. Það skip var afhent haustið 2014 og er með þjón­ustu­samn­ing við sýslu­emb­ættið á Sval­barða um birgða­flutn­inga og örygg­is­eft­ir­lit. Upp­haf­lega gekk sá samn­ingur út á að sýslu­manns­emb­ættið hefði skipið til umráða að lág­marki í 180 daga á ári, eða sex mán­uði. Hina sex mán­uði árs­ins stóð til að nota skipið í verk­efni tengdum olíu- og gas­iðn­að­inum í Norð­ur­sjó. Þau verk­efni hafa hins vegar horfið und­an­farið ár, sam­hliða mik­illi lækkun á heims­mark­aðs­verði á olíu. Í júní 2014 var heims­mark­aðs­verð á tunnu af Brent-olíu 115,9 dalir. Nú kostar hún um 37 dali og hefur því lækkað um 68 pró­sent á tæpu einu og hálfu ári.

Í októ­ber síð­ast­liðnum var gerður nýr samn­ingur við sýslu­manns­emb­ættið á Sval­barða. Hann tryggir Pol­ar­sys­sel verk­efni í níu mán­uði á ári. Þessi samn­ingur er eina verk­efni Fáfnis Offshore sem stendur og því gríð­ar­lega mik­il­vægur.

Fáfnir Offshore ætl­aði sér stóra hluti. Í nóv­em­ber 2014 var Stein­grímur Erlings­son, þá for­stjóri og stofn­andi fyr­ir­tæk­is­ins, við­mæl­andi á fræðslu­fundi VÍB, sem er hluti af Íslands­banka. Þar sagði hann meðal ann­ars að Fáfnir Offshore stefndi að því að vera með 3-4 skip í rekstri á næstu árum. Fund­ur­inn hefur verið fjar­lægður af net­inu.

Lífeyrissjóðir með milljarða fjárfestingu

Á grunni þess­arrar miklu bjart­sýni náði Fáfnir Offshore sér í umtals­verða fjár­fest­ingu með sölu á hlutafé. Í des­em­ber 2014 keypti Akur fjár­fest­ingar, fram­taks­sjóður í rekstri Íslands­sjóða, sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis Íslands­banka, 30 pró­sent hlut í Fáfni Offshore fyrir 1.260 millj­ónir króna. Helstu eig­endur sjóðs­ins eru þrettán líf­eyr­is­sjóðir, Íslands­banki og VÍS. Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna er stærsti eig­andi Akurs með 19,9 pró­senta hlut. Þar á eftir kemur Gildi – líf­eyr­is­sjóður með 15 pró­sent. Íslands­banki á 14 pró­senta hlut en aðrir hlut­hafar tíu pró­sent eða minna.

Áður höfðu ýmsir fjár­festar komið að félag­inu, meðal ann­ars stjórn­ar­for­mað­ur­inn Bjarni Ármans­son, fyrrum banka­stjóri Glitnis, í gegnum fjár­fest­inga­fé­lag sitt Sjáv­ar­sýn. Þá á félag tengt Havyard ship skipa­smíða­verk­smiðj­unni, sem smíðar bæði skip Fáfnis Offshore, hlut í félag­inu. Það á Horn II, fram­taks­sjóður í rekstri Lands­bréfa, sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækis Lands­bank­ans, líka, en sjóð­ur­inn á 23,1 pró­sent hlut í Fáfni Offshore.

Upp­lýs­ingar um hverjir eigi í Horni II eru að mestu ekki opin­berar. Kjarninn hefur hins vegar upp­lýs­ingar um að stærstu eig­endur í Horni II séu Gildi líf­eyr­is­sjóður (18,17 pró­sent), Líf­eyr­is­sjóður Verzlunarmanna (18,17 pró­sent), Lands­bank­inn (7,66 pró­sent), Vátrygg­ing­ar­fé­lag Íslands (4,68 pró­sent) og sjö aðrir líf­eyr­is­sjóðir (sam­tals 32,53 pró­sent). Aðrir eig­endur, alls 18 tals­ins, eiga sam­tals 18,26 pró­sent hlut. Kaup­verðið sem Horn II greiddi fyrir sinn hlut í Fáfni var aldrei gefið upp en ef það hefur verið svipað því sem Akur greiddi þá nemur það tæpum einum millj­arði króna.

Því er ljóst að þessir tveir sjóðir, að mestu í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða, hafa fjár­fest fyrir vel yfir tvo millj­arða króna í Fáfni Offshore fyrir rúmu ári síðan.

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hrunið

Síðan að þessi fundur var hald­inn hefur mark­að­ur­inn sem Fáfnir Offshore starfar á hrunið. Tugum skipa sem gerðu út á þennan markað, sem alþjóð­lega nefn­ist „Offshore“-mark­að­ur­inn, hefur verið lagt vegna þess að það eru ekki verk­efni til staðar fyrir þau og oliu­borpöllum í Norð­ur­sjó hefur fækkað mikið. Ástæðan er sú að olíu­verð hefur lækkað svo mikið að það svarar ekki kostn­aði að vinna olí­una úr þeim lindum sem þar er að finna.

Offshore-borpöllum í Norður-Ameríku hefur einnig fækkað skarpt á þessu tíma­bili. Frá nóv­em­ber 2014 og til loka sama mán­aðar í ár fækk­aði þeim úr 54 í 30.

Fáfnir Offshore tap­aði 3,4 millj­ónum norskra króna á árinu 2014, eða um 52 millj­ónum íslenskra króna á gengi dags­ins í dag. Velta félags­ins í fyrra var 33,2 millj­ónir norskra króna, eða rúm­lega hálfur millj­arður íslenskra króna. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Fáfnis Offshore fyrir árið 2014.

Kjarninn greindi frá því í byrjun des­em­ber að afhend­ing á Fáfni Viking, skipi í eigu Fáfnis Offshore, hafi verið frestað í annað sinn. Skipið átti að afhend­ast í mars á næsta ári en sam­kvæmt nýju sam­komu­lagi milli Fáfnis og norsku skipa­smíða­stöðv­ar­innar Hayvard Ship Technologies AS, sem skrifað var undir í byrjun þessa mán­aðar, mun afhend­ing þess frest­ast fram til júní­mán­aðar 2017.

Heim­ildir Kjarnans herma að ástæða frest­un­ar­innar á afhend­ingu á nýja skip­inu sé ein­föld: ástandið á olíu­mark­aði hefur leitt til þess að engin verk­efni séu til staðar fyrir skip eins og Fáfni Viking.

Nokkrum dögum síðar var Stein­grimi Erlings­syni sagt upp störfum sem for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins. Bjarni Ármanns­son, stjórn­ar­maður í Fáfni Offshore, stað­festi það við Frétta­blaðið en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um ástæðu upp­sagn­ar­innar. Heim­ildir Kjarnans herma að miklir sam­starfs­erf­ið­leikar hafi verið milli stjórnar Fáfnis Offshore og Stein­gríms und­an­farið. Stein­grímur, sem á enn 21 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu, stofn­aði Fáfni Offshore árið 2012.

Svalbarðasamningur í uppnámi?

Ketill Sig­ur­jóns­son, sér­fræð­ingur í orku­málum, hefur fylgst vel með Fáfni Offshore og þeirri þróun sem átt hefur sér stað á mark­aðnum sem fyr­ir­tækið starfar á. Hann skrif­aði grein í gær um stöð­una sem vakið hefur mikla athygli.

Í grein sinni segir Ketill að það hafi verið mikil gæfa fyrir Fáfni Offshore að hafa náð að landa lang­tíma­samn­ingnum við sýslu­mann­inn á Sval­barða. „ Það má án efa fyrst og fremst þakka frum­kvöðl­inum að baki fyr­ir­tæk­inu, Stein­grími Erlings­syni. Sem tókst að ná þeim samn­ingi þrátt fyrir mikla þekk­ingu Norð­manna sjálfra á þess­ari þjón­ustu og fjöl­mörg norsk fyr­ir­tæki sem hana bjóða. Það að Íslend­ingur skuli hafa náð þessum samn­ingi á Sval­barða má reyndar telj­ast við­skipta­legt afrek.“

Ketill segir að ljóst hafi þó verið að tryggð sex mán­aða vinna á ári væri ekki nóg til að tryggja jákvæðan rekstur á Pol­ar­sys­sel. Það hafi því verið gleði­tíð­indi fyrir hlut­hafa fyr­ir­tæk­is­ins þegar Stein­grímur land­aði nýjum samn­ingi við sýslu­mann­inn á Sval­barða í haust sem í fólst að Pol­ar­sys­sel sinnti verk­efnum fyrir hann í níu mán­uði á ári í stað sex. Með því hafi verið stígið stórt skref í að koma rekstri Pol­ar­sys­sel í var.

Síðan segir Ketill: „Samkvæmt heim­ildum Orku­blogg­ar­ans úr norsku stjórn­sýsl­unni er þessi nýi samn­ingur þó ekki alveg skot­heldur ennþá. Því þó svo kveðið hafi verið á um fjár­fram­lag til sýslu­manns­emb­ætt­is­ins á Sval­barða í norska fjár­laga­frum­varp­inu, vegna 9 mán­aða leigu, virð­ist nú raun­veru­leg hætta á því að samn­ing­ur­inn falli niður. Vegna hinnar óvæntu nýlegu ákvörð­unar stjórnar Fáfnis að segja fram­kvæmda­stjór­anum Stein­grími Erlings­syni, fyr­ir­vara­laust upp störfum og skilja fyr­ir­tækið eftir án hæfs leið­toga og með afar óljós mark­mið um fram­tíð­ina.“

Kjarninn hafði sam­bandi við Bjarna Ármanns­son, einn stærsta eig­anda Fáfnis Offshore og stjórn­ar­mann í fyr­ir­tæk­inu, til að spyrja hann út í málið. Hann er staddur erlendis og benti á Jóhannes Hauksson, stjórn­ar­for­mann félags­ins. Jóhannes starfar hjá Íslands­sjóðum og stýrir þar fram­taks­sjóðnum Akri, einum stærsta eig­anda Fáfnis. Kjarninn hefur ekki náð sam­bandi við í Jóhannes í dag.

Í Frétta­blað­inu í morgun sagði Jóhannes að hann vildi ekki tjá sig um mál­efni Fáfnis að öðru leyti en að sagt verði frá nýjum for­stjóra þegar búið verður að ráða hann. Þangað til mun Rúnar Steinn Ragn­ars­son sinn starf­inu sam­hliða starfi fjár­mála­stjóra.

Íslandsbanki á einnig mikið undir

Ljóst er að staðan hjá Fáfni, og raunar staðan almennt á þjón­ustu­mark­aði fyrir ólíu­iðn­að­inn í Norð­ur­sjó, veldur áhyggjum víðar en hjá líf­eyr­is­sjóðum lands­ins. Íslands­banki á einnig mikið undir. Fyrir utan að eiga beinan fjórtán pró­sent hlut í Akri tók bank­inn þátt í sam­banka­láni upp á 475 millj­ónir norskra króna, um sjö millj­arðar króna á gengi dags­ins í dag, til norska skipa­fé­lags­ins Havila til að end­ur­fjár­magna fjögur skip félags­ins sem þjón­usta olíu­iðn­að­inn þar í landi. Alls á Havila 27 skip og miðað við þá eft­ir­spurn sem er eftir þjón­ustu­skipum í Norð­ur­sjóð –en hún er nán­ast engin – má ljóst vera að Havila gæti lent í vand­ræðum.

Kim André Uggedal, sér­fræð­ingur hjá Fearnley Scurities, sagð­ist til að mynda ekki sjá margt bjart framundan á hinum svo­kall­aða spot-mark­aði fyrir þjón­ustu­skip olíu­iðn­að­ar­ins í Norð­ur­sjó á næsta ári, í nýlegu sam­tali við vef­inn Maritime.no. Hann seg­ist ekki viss um að Havila muni lifa af nið­ur­sveifl­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár