Ekkert bendir til þess að unnið sé að fullu afnámi verðtryggingar

Í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Björg­vins G. Sig­urðs­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um afnám verð­trygg­ingar er ekk­ert sem gefur til kynna að unnið sé að fullu afnámi verð­trygg­ingar innan ráðu­neytis hans.

Björgvin spurði hvort fyrir liggi, eða unnið sé eftir, tíma­settri áætlun um afnám verð­trygg­ingar, til hvaða lána­flokka verð­trygg­inga­flokka slíkt bann ætti að ná til, hvort að lagt verði til að þak á upp­hæð breyti­legra verð­tryggðra vaxta og ef svo væri hvert vaxta­þakið yrði.

Bjarni svarar engri spurn­ing­anna beint en segir að sú vinna sem standi yfir lúti „að því að draga úr vægi verð­trygg­ingar“ og að hún bygg­ist á til­lögum sem sér­fræði­hópur um afnám verð­trygg­ingar skil­aði af sér í jan­úar 2014. Í nið­ur­stöðum hóps­ins var lagt til að óheim­ilt yrði að bjóða neyt­endum verð­tryggð lán með jöfnum greiðslum til lengri tíma en 25 ára, að lág­marks­tími nýrra verð­tryggðra neyt­enda­lána yrði lengdur í allt að tíu ár, að tak­mark­anir yrðu gerðar á veð­setn­ingu verð­tryggðra íbúða­lána og að hvati yrði auk­inn til töku og veit­ingar óverð­tryggðra lána.

Hópurinn lagið hins vegar ekki til fullt afnám verð­trygg­ingar.

Í svari Bjarna við fyr­ir­spurn Björg­vins segir: „ Unnið er að áhrifa­mati til­lagn­anna og hefur í því skyni verið óskað eftir grein­ingum og álitum frá eft­ir­lits­stofn­unum. Þá hefur ráðu­neytið lagt áherslu á að meta þær aðgerðir sem mögu­legar eru til að koma til móts við tekju­lægri ein­stak­linga og fyrstu kaup­endur fast­eigna“.

Enginn samhljómur milli ríkisstjórnarflokka

Bjarni hefur raunar áður sagt að ekki standi til að afnema verð­trygg­ingu. Það gerði hann m.a. í apríl síð­ast­liðnum.

Þingmenn Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem situr í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki Bjarna Bene­dikts­sonar, hafa hins vegar haldið uppi þrýst­ingi á að rík­is­stjórnin vinni að afnámi verð­trygg­ingar, enda kom skýrt fram í stefnu­skrá flokks­ins í fyrir kosn­ing­arnar árið 2013 að hann ætl­aði sér að afnema verð­trygg­ingu á neyt­enda­lánum. Þar sagði: „Fyrsta skrefið verði að setja þak á hækkun verð­trygg­ingar neyt­enda­lána. Skipaður verði starfs­hópur sér­fræð­inga til að und­ir­búa breyt­ingar á stjórn efna­hags­mála sam­hliða afnámi verð­trygg­ing­ar­innar, meðal ann­ars til að tryggja hags­muni lán­þega gagn­vart of miklum sveiflum á vaxta­stigi óverð­tryggðra lána. Starfs­hóp­ur­inn skili nið­ur­stöðum fyrir árs­lok 2013.“

Í októ­ber sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra í við­tali á á Útvarpi Sögu að rík­is­stjórnin ætl­aði að afnema verð­trygg­ingu. Willum Þór Þórsson, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði í útvarps­þætti skömmu síðar að ef rík­is­stjórnin færi ekki að koma þessu máli á dag­skrá þá yrðu þing­menn að taka málið upp. Þann 6. októ­ber flutti Elsa Lára Arn­ar­dóttir ræðu í þing­inu þar sem hún hvatti til þess að verð­trygg­ingin yrði „tekin úr sam­bandi“.

Sagði að vinna við afnám verðtryggingar sé komin aftur á skrið

Elsa Lára lagði síðan inn fyr­ir­spurn til Bjarna um hversu stór hluti verð­tryggðra eigna íslenskra við­skipta­banka væru verðr­tyggð hús­næð­is­lán. Í svari Bjarna, sem var birt í gær, kom fram að 57,3 pró­sent þeirra eigna væru slik lán.

Elsa Lára sagði í kjöl­farið við Vísi að það væri farið að þynn­ast í þol­in­mæð­inni gagn­vart verk­leysi rík­is­stjórn­ar­innar í afnámi verð­trygg­ingar. „Við erum ekki búin að gef­ast upp og við vitum það, eins og Sig­mundur sagði, á mið­stjórn­ar­fundi okkar um helg­ina, að loks­ins væri vinna við afnám verð­trygg­ingar komin á skrið aftur og ég veit að það er unnið núna inni í ráðu­neyt­unum.“ Elsa Lára gekkst við því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefði „sett spurn­inga­merki við“ afnám verð­trygg­ingar. „Þeir eru ekki jafn ákveðnir og við í því að gera þetta en það er samt kom­inn sam­hljómur núna,“ sagði Elsa Lára við Vísi í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár