Illugi svarar ekki spurningum um greiðslur til OG Capital

Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hefur ekki viljað svara spurn­ingum Kjarnans um hvort félag sem hann átti, OG Capital, hafi fengið greiðslur frá Orku Energy á árunum 2011 og 2012. Kjarninn sendi fyr­ir­spurn til ráð­herr­ans í kjöl­far þess að hann opin­ber­aði skatt­fram­tal sitt á Facebook í byrjun mán­aðar, sem hann sagði að sýndi að engar fleiri launa­greiðslur hefðu borist til hans frá Orku Energy. Fjöl­mið­il­inn Stundin birti í kjöl­farið frétt þar sem því var haldið fram að þótt Illugi hafi ekki fengið frek­ari laun frá Orku Energy hafi félag í hans eigu fengið greiðslur þaðan síðla árs 2012.

Fyr­ir­spurn Kjarnans var ein­föld: fékk félagið OG Capital, sem þá var í eigu Illuga, greiðslur frá Orku Energy á árunum 2011 eða 2012, og ef svo var hversu háar voru þær greiðslur?

Í svari sem barst frá Illuga, í gegnum aðstoð­ar­mann hans Sigríði Hall­gríms­dóttir, þann 15. októ­ber síð­ast­lið­inn sagði: „Ég hef birt og gert grein fyrir öllum upp­lýs­ingum er varða tekjur mínar vegna ráð­gjaf­ar­starfa fyrir Orku Energy. Eins og skatt­skýrslur mínar og eig­in­konu minnar frá árunum 2012 og 2013 sýna, er ein­ungis um eina launa­greiðslu að ræða frá Orku Energy. Þetta eru einu tekj­urnar sem ég hef haft frá Orku Energy fyrr og síðar. Hvað OG Capital varðar, þá fékk ég engin laun eða arð frá því félagi, hvorki fyrr né síðar, sem áttu upp­runa sinn hjá Orku Energy.

Ég hef nú opin­berað allt sem hægt er að opin­bera um tekjur mínar og reyndar líka Bryn­hildar kon­unnar minnar, á þessum árum. Það er ekk­ert eftir til að opin­bera eða svara“.

Í svari sínu seg­ist Illugi ekki hafa fengið laun eða arð frá OG Capital. Hann svarar því hins vegar ekki hvort OG Capital hafi fengið greiðslur frá Orku Energy á árunum 2011 eða 2012. Kjarninn hefur ítrekað óskað eftir því að ráð­herr­ann svari þeim spurn­ingum sem til hans var beint. Við þeirri beiðni hefur ekki verið orðið.

Birti skattframtal sitt á Facebook

Illugi Gunn­ars­son hefur verið gagn­rýndur víða fyrir tengsl sín við Orku Energy, ekki síst vegna heim­sóknar til Kína í vor þar sem full­trúar frá Orku Energy voru líka, en Illugi starf­aði fyrir fyr­ir­tækið árið 2011 auk þess sem hann hefur greint frá því að stjórn­ar­for­maður þess Haukur Harð­ar­son hafi keypt íbúð hans vegna fjár­hags­vand­ræða. Illugi og fjöl­skylda leigja nú íbúð­ina aftur af Hauki.

Áður en að Haukur keypti íbúð Illuga var hún færð inn í félagið OG Capital, sama félag og Stundin segir að Illugi hafa fengið greiðslur inn í. Haukur keypti síðan félagið með öllum eignum þess í lok árs 2013.

Illugi hefur sagt opin­ber­lega að hann hafi aðeins fengið 5,6 millj­óna launa­greiðsl­una frá Orku Energy og að sú greiðsla hafi verið vegna vinnu sem hann vann árið 2011. Hann birti launa­seðil sinn vegna greiðsl­unnar í fréttum Stöðvar 2 í byrjun októ­ber.

Eftir birt­ingu skatt­fram­tals­ins greindi Stundin hins vegar frá að mið­ill­inn hefði heim­ildir fyrir því að eign­ar­halds­fé­lag sem þá var í eigu Illuga, OG Capital, hefði fengið 1,2 milljón króna greiðslu frá Orku Energy síðla árs 2012. Í kjöl­farið birti Illugi skatt­fram­tal sitt og eig­in­konu sinnar vegna áranna 2012 og 2013 á Facebook og sagði það sýna að engar launa­greiðslur, arð­greiðslur eða aðrar greiðslur hefðu komið til hans eða eig­in­konu hans á árinu 2012 eða 2013.

Illugi svar­aði því hins vegar ekki í stöðu­upp­færsl­unni hvort OG Capital hefði fengið umrædda greiðslu síðla árs 2012.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár