Margar vikur síðan að ljóst var að tilboð Glitnis myndi ekki mæta stöðugleikaskilyrðunum

Skila­boðum var komið á fram­færi við stærstu kröfu­hafa Glitnis fyrir nokkrum vikum að fyrra til­boð þeirra um stöð­ug­leika­fram­lag myndi ekki full­nægja stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda. Það var Seðla­banki Íslands, sem hefur það hlut­verk að meta hvort slit búa föllnu bank­anna hafi nei­kvæð áhrif á greiðslu­jöfnuð Íslands, sem kom skila­boð­unum á fram­færi. Þessi sam­skipti áttu sér stað áður en fund­ar­höld stærstu kröfu­hafa Glitnis og fram­kvæmda­hóps um losun fjár­magns­hafta hófust á ný 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Í morgun var til­kynnt að íslenska ríkið væri að fara að eign­ast annan banka, Íslands­banka, að öllu leyti. Fyrir á ríkið Lands­bank­ann. Eini stóri við­skipta­bank­inn sem verður ekki nán­ast að fullu í rík­i­s­eigu að loknu slita­ferli gömlu bank­anna verður því Arion banki. Þetta var nið­ur­staða funda sem ráð­gjafar stærstu kröfu­hafa Glitnis, núver­andi eig­anda 95 pró­sent hlutar í Íslands­banka, og fram­kvæmda­hópur um losun fjár­magns­hafta áttu vegna breyt­inga á stöð­ug­leika­fram­lagi kröfu­haf­anna.

Talið að skilyrðin væru uppfyllt en svo var ekki


Þegar áætlun um losun hafta var kynnt 8. júní síð­ast­lið­inn var sam­tímis greint frá því að fram­kvæmda­hópur um losun fjár­magns­hafta hefði þróað svokölluð stöð­ug­leika­skil­yrði með til­liti til greiðslu­jafn­aðar. Þau eru þrí­þætt. Í fyrsta lagi þurftu slitabú föllnu bank­anna að gera ráð­staf­anir til að draga nægi­lega úr nei­kvæðum áhriflum af útgreiðslum and­virðis eigna í íslenskum krónum. Í öðru lagi að öðrum inn­lendum eignum þeirra í erlendum gjald­eyri yrði breytt í lang­tíma­fjár­mögnun „að því marki sem þörf krefur“. Í þriðja lagi að tryggt yrði að lána­fyr­ir­greiðsla stjórn­valda í erlendum gjald­eyri sem veitt var nýju bönk­unum í kjöl­far hruns á fjár­mála­mark­aði yrði end­ur­greidd.

Til að mæta þessum skil­yrðum áttu slita­búin að greiða svo­kallað stöð­ug­leika­fram­lag.

Viðræður milli stjórn­valda og stærstu kröfu­hafa Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans, sem að mestu eru risa­stórir banda­rískir fjár­fest­inga- og vog­un­ar­sjóðir, hófust með mik­illi leynd í lok febr­úar 2015. Sumir sjóð­anna eiga kröfur á alla þrjá bank­ana og ýmsa aðra hags­muni í íslensku við­skipta­lífi. Þeim við­ræðum lauk með til­lögum sem lögð voru fram 7. og 8. júní. Í frétta­til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu sem birt var í kjöl­farið kom fram fram­kvæmda­hópur um losun fjár­magns­hafta teldi að þær aðgerðir sem kynntar voru í til­lögum slita­bú­anna féllu að stöð­ug­leika­skil­yrð­unum sem mótuð höfðu verið. Því ættu þær að duga til að fá und­an­þágu frá gjald­eyr­is­lögum til að ljúka nauða­samn­ingi bank­anna. Sumar aðgerð­anna væru þó skil­yrtar og háðar frek­ari áreið­an­leika­könnun.

[caption id="attachment_41681" align="alignnone" width="1024"] Fjármála- og efna­hags­ráð­herra gerir ekki ráð fyrir því að Arion banki lendi í fangi rík­is­ins líka. Hann telur það enn­fremur ekki vera fram­tíð­ar­lausn að íslenska ríkið eigi allt hlutafé í Íslands­banka.[/caption]

Skilaboðum komið á framfæri


Slita­búin hafa öll fengið sam­þykki fyrir því á kröfu­hafa­fundum sínum að greiða stöð­ug­leika­fram­lag til rík­is­sjóðs. Samtals á það að lág­marki að nema 334 millj­örðum króna. Það gæti hækkað um allt að 50 millj­arða króna ef Glitnir fengi gott verð þegar búið myndi selja Íslands­banka.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru nauða­samn­ings­drög Kaup­þings og gamla Lands­bank­ans nokkuð nálægt því að mæta upp­settum stöð­ug­leika­skil­yrðum. Stóra vanda­málið hefur verið Glitnir, það slitabú sem á að greiða uppi­stöð­una í stöð­ug­leika­fram­lag­inu. Og fyrir nokkrum vikum var ljóst að end­ur­skoða þyrfti til­boð bús­ins.

Skila­boðum var komið á fram­færi við stærstu kröfu­hafa Glitnis að fyrra til­boð þeirra myndi ekki full­nægja stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda. Það var Seðla­banki Íslands, sem hefur það hlut­verk að meta hvort slit búa föllnu bank­anna hafi nei­kvæð áhrif á greiðslu­jöfnuð Íslands, sem kom skila­boð­unum á fram­færi. Þessi sam­skipti áttu sér stað áður en fund­ar­höld stærstu kröfu­hafa Glitnis og fram­kvæmda­hóps um losun fjár­magns­hafta hófust á ný 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Þær við­ræður, sem stóðu yfir til 13. októ­ber, lauk með því að kröfu­haf­arn­ir­breytt til­lögu sinni um stöð­ug­leika­fram­lag. Samkvæmt breyttu til­lög­unni mun ríkið eign­ast 95 pró­sent hlut Glitnis í Íslands­banka og þar með eiga bank­ann að fullu.

Hvað næst?


Það er ekki svo að íslenska ríkið sé búið að eign­ast Íslands­banka. Nú er bolt­inn hjá Seðla­banka Íslands sem þarf að gefa grænt ljós á að nýja til­boðið upp­fylli stöð­ug­leika­skil­yrðin og í fram­hald­inu að veita slita­búi Glitnis und­an­þágu frá gjald­eyr­is­lögum til að ljúka við gerð nauða­samn­ings síns. Heim­ildir Kjarnans herma að búist sé við þeirri nið­ur­stöðu innan viku.

Þegar hún liggur fyrir mun slita­stjórn Glitnis boða til kröfu­hafa­fundar með þriggja vikna fyr­ir­vara, svo kröfu­hafar bús­ins geti ann­ars vegar sam­þykkt eða hafnað breytta ráð­stöfun eigna og hins vegar sam­þykkt eða hafnað nauða­samn­ingi. Sá fundur ætti að geta farið fram um miðjan nóv­em­ber.

Samþykki kröfu­hafar Glitnis nauð­samn­ing á fund­inum mun stýri­hópur um losun hafta, sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra fer fyrir, þurfa að leggja blessun sína yfir hann áður en að nauða­samn­ing­ur­inn verður lagður fyrir dóm­stóla til sam­þykktar. Þetta þarf allt að ger­ast fyrir 31. des­em­ber, ann­ars fellur 39 pró­sent stöð­ug­leika­skattur á Glitni.

Bæði Kaupþing og gamli Lands­bank­inn þurfa að fara í gegnum sama ferli.

[caption id="attachment_41682" align="alignnone" width="1024"] Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri sagði í bréfi til InDefence-hóps­ins í lok sept­em­ber að álagn­ing stöð­ug­leika­skatts hefði þann ann­marka að hún meiri hættu á eft­ir­málum og laga­legum ágrein­ingi sem myndi leiða til þess að losun fjár­magns­hafta myndi ganga hægar en ella.[/caption]

Lokatalan liggur ekki fyrir


Það er ljóst að mik­ill vilji er á meðal þeirra ráða­manna sem að ferl­inu koma að ljúka slitum búanna með nauða­samn­ingum. Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri sagði til að mynda í bréfi til InDefence-hóps­ins í lok sept­em­ber að álagn­ing stöð­ug­leika­skatts hefði þann ann­marka að hún meiri hættu á eft­ir­málum og laga­legum ágrein­ingi sem myndi leiða til þess að losun fjár­magns­hafta myndi ganga hægar en ella. Sú skoðun Más rímar við það sem Kjarninn hefur heyrt innan úr röðum kröfu­hafa föllnu bank­anna: ef skatt­ur­inn verður lagður á munu þeir and­mæla honum fyrir dóm­stólum.

Það liggur ekki alveg fyrir hversu stór talan sem íslenska ríkið mun sitja eftir með verður, gangi nauða­samn­ing­ar­ferli föllnu bank­anna eftir. Það fer í raun allt eftir því hversu mikið íslenska ríkið mun fá fyrir Íslands­banka þegar það ákveður að selja bank­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár