Ólafur Ólafsson: Ömurlegt hlutskipti að vera í fangelsi en fjárhagsstaðan ágæt

Ólafur Ólafsson, sem hlaut fjög­urra og hálfs árs fang­elsi í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða fyrr á þessu ári, segir að rann­sókn sér­staks sak­sókn­ara á mál­inu hai ekki verið hlut­laus heldur hafi allt kapp verið lagt á að ná sak­fell­ingu, að dómur Hæsta­réttar hafi verið rangur og að hann hafi látið almenn­ings­á­litið stjórna nið­ur­stöðu sinni að ein­hverju leyti. Hann segir tvo dóm­ara sem felldu dóm­inn hafa verið van­hæfa til þess vegna vensla. Ólafur hefur bæði óskað eftir end­ur­upp­töku máls­ins fyrir end­ur­upp­töku­nefnd og kært það til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Hann segir það ömur­legt hlut­skipti að sitja í fang­elsi. Fjár­hags­staða hans sé hins vegar ágæt og ótt­ast ekki að missa þau fyr­ir­tæki sem hann á, meðal ann­ars Samskip.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í við­tali við Ólaf sem Við­skipta­blaðið birtir í dag.

Dómur féll í Al Thani-mál­inu þann 12. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þar voru þeir Ólafur, sem átti tæp­lega tíu pró­sent hlut í Kaup­þingi fyrir fall hans, Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings í Lúx­em­borg, allir dæmdir sekir. Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­elsi, Sigurður fjögur ár, Ólafur og Magnús fjögur og hálft ár.

Al-Thani málið, sem er eitt umfangs­mesta efna­hags­brota­mál sem komið hefur á borð dóm­stóla hér á landi, á rætur að rekja til hluta­bréfa­kaupa sheikh Mohammad Bin Khalifa Al-Thani frá Katar hinn 22. sept­em­ber 2008 en félag hans keypti 5,01 pró­senta hlut í Kaup­þingi banka fyrir 25,7 millj­arða króna með láni frá bank­anum.

Ljóst lengi að Ólafur telur dóminn rangan


Ljóst hefur verið um nokk­urt skeið að Ólafur telur dóm Hæsta­réttar yfir sér rangan og að hann vilji fá honum hnekkt. Daginn eftir að dóm­ur­inn féll upp­lýsti Ólafur um að hann ætl­aði sér að kæra málið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu.

Í mars héldu aðstand­endur þeirra sem dæmdir voru í Al Thani-mál­inu fund á Hilton-hót­el­inu þar verj­endur fóru yfir málið. Auk þess mætti Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrrum hæsta­rétt­ar­dóm­ari, á fund­inn og lýsti skoðun sinni á dómnum.

Ingi­björg Krist­jáns­dóttir, eig­in­kona Ólafs Ólafs­sonar, skrif­aði grein í Frétta­blaðið í byrjun apríl þar sem hún sagði að eig­in­maður sinn hafi verið dæmdur í fjög­urra og hálfs árs fang­elsi í Hæsta­rétti í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða á grund­velli mis­skiln­ings.

Í grein­inni segir að í upp­hafs­for­sendur dóms­ins vísi Hæstiréttir til sím­tals í gögnum máls­ins þar sem ítrekað komi fram að rætt hafi verið við „Óla“ um nákvæma útfærslu við­skipt­anna. „Hæsti­réttur fer manna­villt í rök­stuðn­ingi sínum og ályktar að hér sé átt við eig­in­mann minn, Ólaf Ólafsson, en hið rétta er að um er að ræða lög­fræð­ing með sama for­nafni sem er sér­fræð­ingur í lögum um kaup­hall­ar­við­skipti."Hún full­yrti að bæði ákæru­valdið og hér­aðs­dómur hefði áttað sig á því að umrætt sím­tal var ekki við Ólaf, eig­in­mann hennar.

Rúmum mán­uði síðar fór Ólafur fram á end­ur­upp­töku máls­ins á þessum grund­velli.

Björn Þor­valds­son, sem sótti Al Thani-málið fyrir hönd emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara, hefur hins vegar sagt það vera mis­skiln­ing að Ólafur hafi verið dæmdur í fang­elsi á grund­velli mis­skiln­ings. Það sé alveg skýrt að í því sím­tali þar sem rætt hafi verið um „Óla“ sem Hæsti­réttur fjallar um sé verið að ræða Ólaf Ólafsson, ekki lög­fræð­ing með sama for­nafni sem sé sér­fræð­ingur í kaup­hall­ar­við­skiptum. Auk þess séu fullt af öðrum gögnum, tölvu­póstar og fram­burðir og annað, sem bendi til aðkomu Ólafs. "Þannig að ef þessu sím­tali yrði kippt út yrði hann sak­felldur eftir sem áður,“ sagði Björn í sam­tali við Kjarnann í apríl.

Ömurlegt hlutskipti en góður crossfit-þjálfari


Í við­tal­inu í Við­skipta­blað­inu segir Ólafur að Kvía­bryggja sé ömur­legur staður og að það sé ömur­legt hlut­skipti í líf­inu að búa við það að vera í fang­elsi. Hann sinni hins vegar sínu starfi og sé mjög dug­legur í lík­ams­rækt. Magnús Guð­munds­son, sem var einnig dæmdur í Al Thani-mál­inu, sé frá­bær crossfit-þjálf­ari og því hafi Ólafur aldrei verið í betra lík­am­legu formi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár