Á meðan inn í blekkingarvefnum miðjum - Játningar seðlabankastjóra

Á meðan Geir H. Haarde, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og nú sendi­herra Íslands í Banda­ríkj­unum, var að biðja Guð um að blessa Ísland, fyrir nákvæm­lega sjö árum í dag, og und­ir­búa neyð­ar­laga­setn­ingu sem bjarg­aði íslenska hag­kerf­inu, sátu tveir menn í myrkum bak­her­bergjum í banda­ríska þing­inu og reyndu finna lausnir á yfir­þyrm­andi vanda sem banda­ríska fjár­mála­kerfið stóð frammi fyrir. Þetta voru Henry M. Paulson, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, og Ben Bernanke, þáver­andi seðla­banka­stjóri Banda­ríkj­anna.

Á meðan, langt, langt í burtu


Á nákvæm­lega sama tíma og Geir hélt ræðu sína, var Bernanke æfur af reiði vegna upp­lýs­inga sem hann fékk um bága stöðu trygg­ing­arris­ans AIG. Tveimur dögum síðar, 8. októ­ber, sam­þykkti banda­ríska þingið heim­ild til fjárinn­spýt­ingar og hluta­fjár­kaupa í AIG fyrir 38 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur tæp­lega fimm þús­und millj­örðum íslenskra króna.

Í nýrri bók sem Bernanke var að senda frá sér, The Courage to Act: A Memoir of A Crisis and Its Aftermath, upp­lýsir hann að bæði hann og Paulson hafi vís­vit­andi haldið upp­lýs­ingum frá almenn­ingi, þegar þeir svör­uðu spurn­ingum um stöðu mála í banda­ríska þing­inu, vegna áhrif­anna sem fram­köll­uð­ust við fall Lehman Brothers bank­ans. Þeir ótt­uð­ust að „við­kvæm“ staða yrði enn verri, með til­heyr­andi nei­kvæðum áhrifum á mörk­uðum. Þeir hafi auk þess verið báðir hálf nið­ur­brotnir yfir því að hafa ekki tek­ist að leysa vanda Lehman með því að þvinga fram sölu á honum til breska bank­ans Barclays. Paulson hefur við­ur­kennt í sinni ævi­sögu, On The Brink, að hafa gjör­sam­lega brotnað saman þegar ljóst var að Lehman yrði ekki bjargað og hringt skít­hræddur, með tárin í aug­unum, í konu sína. Hún stapp­aði í hann stál­inu og sagði honum að halda áfram að vinna.

Stórmerkileg játning


Andrew Ross Sorkin, blaða­maður New York Times og höf­undur met­sölu­bók­ar­innar Too Big to Fail, segir í pistli á vef New York Times að þessar upp­lýs­ingar sem Bernanke hefur nú greint frá, séu stór­merki­legar og sýni að ekki hafi verið allt sem sýnd­ist þegar dýpstu lægðir fjár­málakrepp­unnar gengu yfir. „Fyrri yfir­lýs­ingar Bernanke segja allt aðra sögu,“ segir Ross Sorkin.

DealBook: In Ben Bernanke’s Memoir, a Candid Look at Lehman Brothers’ Collapse http://t.co/2RreTaXpsb


— NYT Business (@nytimesbusiness) October 5, 2015

Bernanke heldur því fram í bók sinni að fjár­málakreppan á árunum 2007 til 2009 hafi verið hættu­leg­asta fjár­málakreppa í sögu Banda­ríkj­anna og lík­lega heims­ins alls. Aðeins for­dæma­laus inn­grip seðla­banka og rík­is­stjórna, og þá ekki síst í Banda­ríkj­unum, hafi bjargað heim­inum frá aðstæðum sem fólk eigi erfitt með að átta sig á. Á svip­stundu hefðu hjólin geta stöðvast. Bernanke seg­ist stoltur af störfum sínum, og banda­ríska stjórn­valda, á þessum tímum. Sumt hafi mátt fara betur, og eftir á hyggja þá hefðu bæði hann og Paulson mátt tala skýrar og koma fram með upp­lýs­ing­arnar og leggja þær á borðið. En ótt­inn við þá spennu sem var að mynd­ast hafi gert stjórnun á aðstæðum erf­iða.

[caption id="attachment_10162" align="alignnone" width="1024"] Henry M. Paulson, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, segir að stjórnefndur bank­anna á Wall Street valdið sér miklum von­brigðum með afneitun sinni. Bernanke lofar störf Paulson í nýrri bók sinni, og segir hann meðal ann­ars hafa glímt við alvar­legan leka á upp­lýs­ingum. Mynd: EPA:[/caption]

Mistök að fara ekki á eftir bankamönnum


Í bók sinni segir Bernanke enn fremur að það hafi verið mis­tök hjá stjórn­völdum að höfða ekki mál gegn stjórn­endum stærstu fjár­mála­fyr­ir­tækj­anna í Banda­ríkj­unum, þar sem skýr gögn hafi bent til lög­brota. Þá hafi mörg þeirra fjöl­mörgu mála sem þegar hafa verið höfðuð, beinst að of miklu leyti gegn fólki á gólf­inu, sem oft var að fram­kvæma hluti sem stjórn­endur bank­anna annað hvort lögðu til eða vissu af. Ábyrgðin á slíkum hlutum sé þeirra sem séu við stýrið.

Börðust við leka


Í bók Bernanke kemur enn­fremur fram að póli­tískir aðstoð­ar­menn á skrif­stofu Paulson hafi skapað mik­inn vanda með því að leka stans­laust upp­lýs­ingum í fjöl­miðla, um að ekki stæði til að setja svo mikið sem einn Banda­ríkja­dal úr vasa skatt­greið­enda inn í einka­fyr­ir­tæki til að bjarga mál­unum. Segir Bernanke að þetta hafi komið frá fólki sem hafi ekki haft hug­mynd um alvar­leika stöð­unnar, og hafi viljað slá póli­tískar keilur með vill­andi mál­flutn­ingi. Paulson hafi fljót­lega áttað sig á því að þetta gæti hann, eða hans helstu trún­að­ar­menn, ekki ráðið við og því ákveðið að halda spil­unum þétt að sér og setja mikla tíma­pressu á þingið þegar þess hafi þurft. Aðeins þannig hafi verið mögu­legt að afstýra full­komnum glund­roða.

Póker andlitin


Líkt og á Íslandi, þá glímdu stjórn­völd og seðla­bank­inn í Banda­ríkj­unum, við algjöra afneitun banka­manna þegar kom að stöð­unni. Enginn hafi verið heið­ar­legur gagn­vart seðla­bank­anum og stjórn­völdum, og sagt að allt gæti hrunið ef ekki kæmi til fjárinn­spýt­ingar rík­is­ins. Samt segir Bernanke, að það sé alveg öruggt, að allir hafi gert sér grein fyrir því að þannig hafi staðan verið. Póker and­lit banka­manna hafi ekki gert neitt annað en að gera ákvarð­anir erf­ið­ari. Paulson hefur sjálfur sagt, að það hafi verið mikil von­brigði, ekki síst í ljósi þess að hann var sjálfur banka­stjóri Goldman Sachs bank­ans í um fimmtán ár, að stjórn­endur bank­anna hafi ekki verið trausts­ins verðir. Bless­un­ar­lega hafi hann og Bernanke, metið málin þannig að aðeins umfangs­mikið inn­grip með sjóðum skatt­greið­enda, gæti bjargað Banda­ríkj­unum og raunar heim­inum meira og minna öllum. Í ljós þess hvað þetta voru mikil inn­grip, þá muni taka efna­hag­inn mörg ár til við­bótar við þau sjö sem þegar eru liðin frá þessum atburðum, að jafna sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár