Sjö ár frá því að neyðarlög voru sett og Geir H. Haarde bað guð að blessa Ísland

Sjö ár eru í dag frá ávarpi Geirs H. Haarde, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, í sjón­varpi á RÚV. Hann lauk ávarpi sínu á orðum sem eru þrykkt í minni íslensku þjóð­ar­innar. „Guð blessi Ísland“. Flestir Íslend­ingar muna vafa­lítið hvar þeir voru staddir þegar Geir birt­ist á sjón­varps­skjánum.

https://www.youtube.com/watch?v=pQA2kK_MFjA&feature=youtu.be

Neyð­ar­lög voru sam­þykkt á Alþingi sem mið­uðu að því að við­halda fjár­mála­kerfi lands­ins og koma í veg fyrir upp­þot vegna fyr­ir­sjá­an­legs falls bank­anna. Fjár­mála­eft­ir­litið fékk heim­ildir til þess að fram­kvæma neyð­ar­lögin með því að skipta bönk­unum upp og tókst að við­halda svo til hnökra­lausri fjár­mála­þjón­ustu þrátt fyrir að bank­arnir, Glitnir, Kaupþing og Lands­bank­inn, féllu eins og spila­borg dag­ana 7. til 9. októ­ber. End­ur­reistu bank­arnir byggja á grunni þess­arar aðgerðar, Arion banki á grunni inn­lendrar starf­semi Kaup­þings, Íslands­banki á grunni inn­lendrar starf­semi Glitnis, og Lands­bank­inn á grunni gamla Lands­bank­ans. Íslenska ríkið á Lands­bank­ann nán­ast að fullu, 13 pró­sent í Arion banka og 5 pró­sent í Íslands­banka.

Þegar þetta gekk yfir hélt krónan áfram að falla stjórn­laust og end­aði með því að fjár­magns­höftum var komið á í nóv­em­ber 2008. Þau eru enn fyrir hendi, og vinna stjórn­völd að því að rýmka þau og afnema.

Ávarp Geirs í heild sinni má sjá á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins hér.

Verið að skrifa lokakaflann


Um þessar mundir er verið að skrifa lokakafl­ann í sögu yfir­töku, og síðar end­ur­reisnar, íslenska rík­is­ins á banka­kerf­inu. Stjórn­völd kynntu í byrjun júní­mán­aðar áætlun um losun fjár­magns­hafta sem fól meðal ann­ars í sér að leggja á 39 pró­sent stöð­ug­leika­skatt á slitabú Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans. Skatt­ur­inn átti að skila rík­inu um 850 millj­örðum króna. Á kynn­ing­unni var ekki gert grein fyrir því að þegar hafði verið samið við öll slita­búin um að greiða svo­kallað stöð­ug­leika­fram­lag til að sleppa við álagn­ingu skatts­ins. Und­an­farnar vikur hafa kröfu­hafar bank­anna þriggja sam­þykkt þessa ráð­stöfun á kröfu­hafa­fundum og sam­kvæmt kynn­ingum slita­stjórna þeirra mun heild­ar­um­fang stöð­ug­leika­fram­lags Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans vera 334 millj­arðar króna.

Seðla­banki Íslands á þó enn eftir að veita slita­bú­unum und­an­þágu frá fjár­magns­höftum til að þau geti lokið gerð nauða­samn­inga sinna. Takist það ekki fyrir ára­mót mun stöð­ug­leika­skatt­ur­inn verða lagður á. Seðla­bank­inn hefur þegar sagt að nauða­samn­ings­drög bank­anna upp­fylli " í stórum stórum dráttum skil­yrði um stöð­ug­leika í gengis- og pen­inga­málum“ og tryggja fjár­mála­legan stöð­ug­leika í íslensku hag­kerfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár