Skúli Mogensen: Ísland mun tapa 100-200 milljörðum vegna seinagangs stjórnvalda

Skúli Mogensen, for­stjóri og aðal­eig­andi WOW air, segir að Ísland muni tapa á milli 100 og 200 millj­örðum króna á seina­gangi íslenskra stjórn­valda í inn­viða­upp­bygg­ingu í ferða­þjón­ustu. Kefla­vík­ur­flug­völlur sé þegar sprungin og frá árunum 2017 eða 2018 þurfi flug­rek­endur að draga veru­lega úr vexti sínum vegna þess að flug­völl­ur­inn geti ekki tekið á móti fleiri far­þegum. Skúli segir upp­bygg­ingu í Hvassa­hrauni ekki raun­hæfa og telur að það verði að hefja mynd­ar­lega upp­bygg­ingu í Keflavík til að tak­marka það tjón sem þegar er ljóst að verði vegna aðgerð­ar­leysis stjórn­valda. Þetta kemur fram í við­tali við Skúla í Við­skipta­Mogg­anum í dag.

Of seint að forða tjóninu


Skúli segir of seint að forða því tjóni sem seina­gangur viðað mæta hinni miklu fjölgun sem orðið hefur á ferða­mönnum hér­lendis á síð­ustu miss­erum. Hann segir stærstu hindrun ferða­þjón­ust­unar á Íslandi ekki vera sam­keppni, skort á tæki­færum eða fólki, stað­setn­ingu eða getu­leysi til að taka við ferða­mönnum og dreifa þeim um landið. Stærsta hindr­unin sé Kefla­vík­ur­flug­völlur og stjórn­sýslan á Íslandi. "Það að við séum enn að vand­ræð­ast með áætl­anir um fjölgun ferða­manna sem byggj­ast á ein­hverjum skýrslum frá McKinsey og Boston Consulting Group er alveg hræði­legt. Við erum að vasast með far­þeg­a­spár frá þessum ágætu herra­mönnum, sem fengu stórfé til að búa til sín gögn, sem urðu úreltar innan tólf mán­aða. Það sem þeir áætl­uðu að yrði fimm ára vöxtur var orðið að veru­leika innan árs. Því miður hafa inn­lendar spár verið lítið betri og enn er það þannig að far­þeg­a­spár Samtaka ferða­þjón­ust­unnar og Isavia hafa verið allt of var­kárar sem hægir á öllum fjár­fest­ingum. Þetta var skilj­an­legt að ein­hverju leyti fyrir nokkrum árum en er óaf­sak­an­legt í dag."

Miklu stærra en tap sjávarútvegarins vegna Rússlands


Skúli bendir á að allt hafi farið á hlið­ina í íslensku sam­fé­lagi nýverið þegar sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins sáu fram á að missa nokkra millj­arða króna í tekjur vegna við­skipta­banns sem Rússland setti á íslensk mat­væli. Þá hafi verið skipuð neyð­ar­nefnd og rætt um að greiða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­unum miska­bætur. Staðan í ferða­þjón­ust­unni sé hins vegar þannig að Kefla­vík­ur­flug­völlur sé sprungin og í nán­un­ustu fram­tíð muni WOW og aðrir flug­rek­endur þurfa að draga veru­lega úr vexti sínum þar sem flug­völl­ur­inn getur ekki tekið við fleirum. "Þá þurfum við að bíða eftir nýjum velli sem verður von­andi til­bú­inn 2021. Tap Íslands af þessum seina­gangi verður ekki minna en 100 millj­arðar og senni­lega nær 200 millj­örðum. Það er ótækt að þetta sé á höndum margra aðila í stjórn­sýsl­unni og rík­is­stjórnin verður að grípa til aðgerða til að forða frekara tjóni.

Sem dæmi þá er það í engu til­liti raun­hæft að ætla sér að hefja upp­bygg­ingu á nýjum flug­velli mitt á milli Kefla­víkur og Reykja­víkur. Það verður að byggja upp í Keflavík og gera það mynd­ar­lega. Að ráð­ast í það að reisa nýjan völl mun kosta miklu meiri pen­inga og það mun taka svo langan tíma að tjónið verður löngu orðið að veru­leika þegar hann verður tek­inn í gagnið."

Stóriðjustefnan glórulaus


Skúli bendir á að ferða­þjón­usta sé orðin stærsta útflutn­ings­grein þjóð­ar­innar. Á næsta ári megi búast við að gjald­eyr­is­tekjur vegna hennar verði vel yfir 400 millj­arðar króna á ári. Til sam­an­burðar þá eru gjald­eyr­is­tekj­urnar af sjáv­ar­út­veg­inum rúmir 240 millj­arðar og heild­ar­tekjur allrar stór­iðju í land­inu er um 230 millj­arðar. Ferða­þjón­ustan er orðin miklu stærri hér á landi en öll álver, kís­il­ver og járn­blendi saman lögð.

Skúli hefur verið mjög gagn­rýn­inn á frek­ari stór­iðju­upp­bygg­ingu. Hann hafi haft samúð með því þegar stór­iðja var byggð upp hér­lendis á sjö­unda ára­tugnum en nú sé staðan gjör­breytt. "Núna er stór­iðjan orðin mjög stór og hún hefur verið byggð upp á ódýrri raf­orku og slakri umhverfispóli­tík. Nú er staðan hins vegar breytt og engin ástæða til að halda áfram á þeirri veg­ferð. Stór­iðju­stefnan er búin að malla svo lengi í kerf­inu að það er kom­inn mik­ill póli­tískur þrýst­ingur. Það er enda­laust af verk­fræði­stofum, lög­fræði­stofum, fjár­mála­stofn­unum og allskyns sér­fræð­ingum sem hafa hag af því að við­halda þess­ari nálgun. Þetta er hins vegar glóru­laust.

Ég full­yrði að hver sá sem gæfi sér tíma til að kynna sér þetta, meira að segja óháð nátt­úru­vernd­ar­sjón­ar­miðum, myndi sjá að þetta er glóru­laus nálgun og við erum að fórna mun stærri hags­munum og tekju­mögu­leikum fyrir minni. Enn er helsta rétt­læt­ingin fyrir áfram­hald­andi stór­iðju að hún skapi störf en stað­reyndin er sú að atvinnu­leysi er í lág­marki og það eina sem mun ger­ast er að við munum þurfa að flytja inn þús­undir ómennt­aðra far­and­verka­manna, sem skilja lítið sem ekk­ert eftir sig, til að vinna þessi lág­launa­störf. Það er sorg­legt að það séu enn þá ráð­herrar sem full­yrða það að það sé for­senda fyrir áfram­hald­andi hag­vexti á Íslandi að það sé stofnað til nýrrar stór­iðju og fleiri virkj­anir reistar."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár