Álverið í Straumsvík rekið með tapi alla daga - Berst í bökkum

„Hafa ber í huga að álverð hefur hríð­fallið frá ára­mótum og hefur ekki verið lægra í ein sex ár. Afleið­ingin er að ISAL er nú rekið með tapi frá degi til dags og tapið fer vax­andi,“ segir í opnu bréfi sem Rannveig Rist hefur sent á starfs­menn álvers Rio Tinto Alcan í Straums­vík. Vitnað er til þess frétt á vef Við­skipta­blaðs­ins.

Í bréf­inu fjallar Rannveig meðal ann­ars um kjara­deilur fyr­ir­tæk­is­ins við starfs­menn en Rio Tinto Alcan á Íslandi hefur boðið starfs­mönnum sínum launa­hækkun sem nemur 18,7 pró­sentum til árs­loka 2018, að því er fram kemur í frétt Við­skipta­blaðs­ins. Til við­bótar standi starfs­mönnum til boða nýir bónusar sem hækki laun enn frekar, eða um allt að átta pró­sent.

Í bréf­inu segir Rannveig að hvergi verði kvikað frá kröfum fyr­ir­tæk­is­ins, um að til­teknir þættir í starf­sem­inni verði boðnir út í verk­töku. „Að sjálf­sögðu stendur sú krafa áfram að ISAL fái heim­ild til að bjóða út áður til­greinda verk­þætti, en í þeim efnum býr ISAL við mestu fjötra allra fyr­ir­tækja á Íslandi. Eins og fram hefur komið erum við til­búin að ræða hvernig koma megi til móts við starfs­menn sem þetta hefði áhrif á,“ segir í bréf­inu, sem vitnað er til á vef Við­skipta­blaðs­ins.

Kjara­deilur starfs­manna Rio Tinto Alcan á Íslandi, við fyr­ir­tækið, hafa verið óleystar mán­uðum saman og hafa for­svars­menn starfs­manna sagt stjórn­endur álvers­ins hóta starfs­fólki, verði ekki gengið að kröfum. Yfir­vinnu­bann hefur staðið yfir í sex vikur og segir Rannveig í bréf­inuu að það hafi haft alvar­leg áhrif. „Aðgerð­irnar svipta fyr­ir­tækið sölu­tekjum, þær svipta starfs­menn launum, þær skaða orð­spor ISAL meðal við­skipta­vina okkar og þær valda töfum í rekstr­inum sem geta haft mjög alvar­leg áhrif.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár